Vestfirska fréttablaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 1
PLATAN
MEÐ
KAN
„MEGISA DRAUMUR“
RÆTAST MEÐ JÓLAPAKKANUM
Sinarffuðfjinnsson k fí.
g<W 7200 - tf 15 fíol untja’iOib
í RÆKTINNI
Tvær ísfirskar
meðal 10 söluhæstu
Nú þegar jólabókavertíðin er í
algleymingi datt okkur á Vest-
firska í hug að kanna hvaða
bækur seldust best. Sérstakan
áhuga höfðum við náttúrulega á
að vita hvernig Saga fsafjarðar
og Ekkert slor hefðu selst, þar
sem þetta eru ísfirskar bækur.
Þ.e. önnur eftir ísfirðing en hin
er um ísafjörð og báðar eru að
mestu leyti unnar í ísfirskri
prentsmiðju.
Hér á eftir fer listi yfir 10
söluhæstu bækur í Bókhlöðunni
á Isafirði fram að deginum i gær:
1. Saga fsafjarðar eftir Jón Þ.
Þór.
2. Á Gljúfrasteini, eftir Eddu
Andrésdóttur og Auði Sveins-
dóttir.
3. Dyr dauðans eftir Alister
Maclean.
4. Guðmundur skipherra
Kjærnested eftir Svein
Sæmundsson.
5. Ekkert slor eftir Rúnar Helga
Vignisson.
6. 15 ára á föstu eftir Eðvarð
Ingólfsson.
7. Töff týpa á föstu eftir Andrés
Indriðason
8. Við Þórbergur eftir Gylfa
Gröndal.
9. Gefðu þig fram Gabríel eftir
Snjólaugu Bragadóttur frá
Skáldalæk.
10. Hinrik og Hagbarður með
víkingum.
Það var hátíðleg stund á sunnudag-
fnn var þegar frú Ruth Tryggvason af-
henti ísafjarðarhæ jólatré að gjöf frá
Roskilde vinabæ ísafjarðar í Dan-
mörku. Fjöldi fólks hafði safnast
saman í skrúðgarðinum við Austurveg.
Forseti b-æjarstjórnar ísafjarðar.
Sigurður Ólafsson formaður Sjómannafélags ísfirðinga:
GuðiWúndúr S^einsson, flutti ávarp og
þakkaði gjöfina og Sunnukórinn söng
nokkur jólalög. Síðan mættu jóla-
sveinar á svæðið, yngstu samkomu-
gestunum til óblandinnar ánægju.
Mynd: Hrafn Snorrason.
Skorar á A.S.I.
að bjóða fram!
Á Alþýðusambandsþingi sem
haldið var í Reykjavík dagana
26. — 30. nóvember flutti Sig-
urður Ólafsson formaður Sjó-
mannafélags ísfirðinga ræðu þá
sem hér fer á eftir.
„Á þjóðfundi hinn 9. ágúst
1851, risu þingmenn úr sætum
og sögðu flestir í einu hljóði,
þessi frægu orð: VÉR MÓT-
MÆLUM ALLIR.
Þessi orð voru sögð af festu
og einlægni og það sem meira
var, að baki þeirra bjó einnig
fullur vilji til að koma í veg fyrir
að slíkar gerræðis aðferðir er þá
voru hafðar í frammi, endur-
tækju sig.
Ég hefi oft heyrt þessi orð
síðan, en í hálfgerðum ar-
mæðutón. Að baki þeirra býr
enginn vilji til að koma í eitt
skipti fyrir öll í veg fyrir að þær
svívirðilegu aðgerðir endurtaki
sig, að ríkisstjórn eftir ríkis-
stjórn, leyfi sér að ónýta ný-
gerða kjarasamninga okkar.
Allir stjórnmálaflokkarnir eru
jafnsekir, og staðan sem blasir
við er sú, að í reynd höfum við
engan samningsrétt og getum
því alveg eins hætt þessari
sýndarmennsku.
Nakin komum við í þennan
heim og nakin munum við
hann yfirgefa. En það er ekki
8ar með sagt, að við eium að
sætta okkur við að stríplast um
allan tímann þar á milli, og láta
okkur aðeins nægja til fæðis þá
mola er húsbændunum þóknast
að láta falla frá borðum sínum.
Þið eruð flest, sennilega öll
eins og ég, stjórnarfulltrúar í
ykkar félögum. Ég skammast
mín, og það ættuð þið að gera
líka. Við erum alls ekki vinir
litla mannsins, við tröðkum á
herðum hans. Okkur finnst
meira gaman, að leika litla
kónga í smá kóngsríkjum, held-
ur en vinna saman af alefli, það
fólk, sem treystir okkur til að sjá
hagsmunum sínum þannig
borgið að það geti eitthvað nýtt
sér það lítilræði sem í launa-
umslögunum leynist.
Allir pólitísku flokkarnir eru
samsekir í að reyna að brjóta á
bak aftur samningsrétt okkar.
Segið því ekki áfram. Þetta er
svona, af því að það hefur alltaf
verið svona. Þetta er svona af
því að flest okkar eru bundin á
pólitískan klafa einhvers
stjórnmálaflokksins og þann
bás getum við ekki hugsað okk-
ur að yfirgefa.
Nú er rétta tækifærið, til að
sýna því fólki sem treystir okkur
til forystu í samtökum sínum,
að við höfum kjark, þor og vilja
til að mótmæla því öll, að laun-
þegar íslands hafi ekki rétt til að
vera til, nema einhverjum póli-
tískum pótentátum þók ist svo.
Eins og staðan er orðin, er að-
eins leið fær, til að koma í veg
fyrir það að haldið verði áfram
að traðka á lögbundnum samn-
ingsrétti okkar.
Við höfum aflið fyrir hendi,
en hingað til hefurskort viljann,
til að bei a 8ví í réttan farveg.
Þess vegna skora ég á þingfull-
trúa, hvar í flokki sem þeir
standa. Bindumst samtökum,
hér á þessu þingi, til að stuðla
að því að í næstu alþingiskosn-
ingum bjóði Alþýðusamband
íslands, fram sinn eigin lista.“
Undirtektir við þessa hug-
mynd um að ASÍ bjóði fram í
næstu kosningum voru dræmar,
enda eru margir af þeim full-
trúum sem þingið sátu flokks-
bundnir í hinum ýmsu flokkuh
og ekki tilbúnir til þess að yfir-
gefa þá. Hins vegar var sam-
þykkt ályktun á þinginu þar
sem skorað er á launafólk „að
samfylkja öllum sem aðhyllast
hugsjónir félagshyggju til að
mynda fylkingu sem yrði í
samvinnu við verkalýðshreyf-
inguna „nýtt landstjórnarafU.
Pétur Sigurðsson, formaður
Baldurs á ísafirði, sem fylgdi
fyrrgreindri tillögu úr hlaði
sagðist vera hóflega bjartsýnn á
að forsetar og miðstjórn ASÍ
myndu ganga hart fram í því að
fylgja ályktuninni eftir.
Eins og kunnugt er stendur nú yfir
söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar
undir kjörorðinu „Brauð handa
hungruðum heimi.“ Þessi söfnun er nú
orðin fastur liður í undirbúningi jól-
anna á aðventunni. Við viljum ekki
aðeins þiggja jólagleði heldur einnig
miðla í þeirri gleði, svo vonlausu fólki
bætist í bragði og einnig það eignist
jól.
í ísafjarðarprestakalli hefur það
tíðkast að fermingarbörn gangi í húsin
og taki við framlögum fólks og komi
þeim til skila með aðstoð sókn-
arprestsins. Svo mun einnig verða að
þessu sinni. Á sunnudaginn 23. des.,
Þorláksmessu, munu þau koma. Þau
munu verða með skilríki meðferðis,
sem sýna að þau séu á vegum söfnun-
arinnar. Afhenda má baukana eins og
þeir koma fyrir.
Jólapottur Hjálpræðishersins er
einnig venjubundin fjáröflun á að-
ventu. Einnig hann mun styðja
Eþíópíumenn á þurrkasvæðunum.
Það hefur komið í ljós fyrr að gott
er að leita til fólksins hér við utanvert
Djúp í forbón fyrir nauðstatt fólk, þó
það búi í fjarlægum álfum og er það
von mín að svo muni reynast enn.
Guð gefi öllum gleðileg jól.