Vestfirska fréttablaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 2
I vestfirska I
FRETTABLASID
Vestfirska fréttablaðið kemur út á fimmtudögum kl. 17:30. Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Hafnarstræti 14 er opin virka daga ki.
10:00 til 12:00 og 13: til 17:00. Síminn er 4011. Ritstjóri: Árni Sigurðsson. Blaðamaður Yngvi Kjartansson Stórholti 17. Fjármál ogdreifing: Guðrún
Halldórsdóttir. Útgefandi og ábyrgðarmaður: Árni Sigurðsson, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100. Prentun: Prentstofan ísrún hf. ísafirði. Verð í
lausasölu kr. 25,00. Auglýsingaverð kr. 130,00 dcm. Áskriftarverð er lausasöluverð reiknað hálfsárslega eftirá.
Gagnfræðaskólinn fær veglega gjöf
— í minningu Haraldar Leóssonar kennara
Nýlega barst Kjartani Sigur-
jónssyni, skólastjóra Gagn-
fræðaskólans á ísafirði, bréf þar
sem tilkynnt er um höfðinglega
gjöf til þess nemanda sem skarar
gegndi því starfi til ársins 1931.
Þá var skólanum breytt í gagn-
fræðaskóla og gerðist Haraldur
þá kennari við skólann. Því
starfi gegndi hann svo óslitið
hafi verið helgað Gagnfræða-
skólanum á Isafirði. — Harald-
ur lést árið 1960.
Eftirlifandi eiginkona Har-
aldar er Hertha Leósson. Hún
Gagnfræðingar
frá árinu 1951
gáfu Gagnfræð-
askólanum þessa
mynd af Haraldi
Leóssyni. Ör-
lygur Sigurðsson
málaði myndina.
fram úr í þýskunámi við skólann
í vetur. Bréfið fer hér á eftir.
„Þann 21. september s.l. voru
liðin 100 ár frá fæðingu Har-
aldar Leóssonar, kennara.
Hann kom til starfa hér á ísa-
firði árið 1923 sem skólastjóri
Unglingaskóla ísafjarðar, og
allt til ársins 1954, en þá lét
hann af störfum fyrir aldurs
sakir. Þó var hann prófdómari
við skólann í nokkur ár eftir
þetta. Starfstími hans við skól-
ann spannar því hartnær hálfan
fjórða áratug, og má því með
sanni segja, að lífsstarf hans
er þýsk að uppruna, en fluttist
hingað til lands árið 1934.
Hertha er kennari að mennt og
réðist hún fljótlega til starfa við
Gagnfræðaskólann á Isafirði
sem stundakennari í þýsku, og
er hún fyrsti þýskukennari
skólans. Þegar þýskukennsla
var lögð niður á heimsstyrjald-
arárunum hóf Hertha heima-
kennslu í tungumálum, og þau
kennslustörf annaðist hún á
meðan heilsa og kraftar entust.
Nú hefur Hertha ákveðið að
heiðra minningu eiginmanns
síns á þessum tímamótum með
því að veita nokkra viðurkenn-
ingu þeim nemanda Gagn-
fræðaskólans á Isafirði, sem
bestum árangri nær í þýsku á
skólaárinu 1984 — 85. Verð-
launin verða í því fólgin, að
umræddum nemanda verður
boðið til þriggja vikna dvalar í
Þýskalandi á komandi sumri,
þar sem sótt verður þýsku-
námskeið fyrir útlendinga á
vegum Göthe-lnstitut. Slík
námskeið eru haldin árlega fyr-
ir unglinga á aldrinum 14 — 18
ára. Um val milli nokkurra
námskeiða verður að ræða.
Hefjast þau á mismunandi
tíma, allt frá júlíbyrjun og fram
í ágúst. Þau fara fram á mis-
munandi stöðum, öll í fögru og
friðsælu umhverfi, en þó í ná-
grenni stórra borga, svo sem
Frankfurt, Hannover og Stutt-
gart.
Þarna verður nemendum
boðið eftirfarandi:
— 24 stunda þýskukennsla á
viku;
— öll nauðsynleg námsgögn;
— gisting og fullt fæði í heima-
vist;
— fjölbreytt aðstaða til íþrótta-
iðkana, svo og tilsögn;
— skoðunarferðir ásamt
fræðslu um land og þjóð;
— heimsóknir á þýsk heimili;
— allar nauðsynlegar trygging-
ar.
Auk þess mun gefandi greiða
öll fargjöld, innanlands og utan.
Eins og áður segir vill Hertha
Leósson minnast aldarafmælis
eiginmanns síns, Haraldar
Leóssonar, með þessari verð-
launaveitingu. Jafnframt væntir
hún þess, að með þessu verði
stuðlað að auknunr áhuga á
þýskunámi við Gagnfræðaskól-
ann á ísafirði."
Sjómannafélag ísfirðinga
heldur
AÐALFUND
miðvikudaginn 26. desember 1984
(annan dag jóla)
kl. 14:00 í Sjómannastofunni
Félagar fjölmennið
STJÓRNIN
Hvað kostar jólasteikin?
Nú eru jólin í nánd og flestir
farnir að hyggja að jólamatnum.
Þann 10. desember s.l. kannaði
Verðlagsstofnun verð á 16 teg-
undum kjötvöru sem ætla má að
verði á borðum landsmanna nú
um jólin. Verðið var kannað í 55
verslunum, þar af eru 43 á höf-
uðborgarsvæðinu, 4 á Ísafirði, 5
á Akureyri, 1 á Egilsstöðum og 2
á Eskifirði.
Helstu niðurstöður eru eftir-
farandi;
1. Af könnuninni má draga þá
ályktun að mikil samkeppni ríki
milli verslana sem selja kjöt og
eru þess jafnvel dæmi að kjöt sé
selt í smásölu á verði sem er
undir skráðu heildsöluverði. Að
meðaltali er hæsta kjötverð
82,7% hærra en lægsta verð.
2. Mestur verðmunur er á
Londonlambi úr framparti sem
kostar 145 kr. hvert kg. þar sem
það er ódýrast, en 380,15 kr. þar
sem það er dýrast eða 162,2%
meira.
3. I öðrum tveimur tilvikum
er hæsta verð meira en helm-
ingi hærra en lægsta verð.
Lambahamborgarhryggur úr-
beinaður kostar á bilinu 229 kr.
hvert kg. til 550.50 kr. og er það
140% hærra verð en lægsta
verðið. Úrbeinað lambalæri
fyllt með ávöxtum kostar frá
200 kr. hvert kg. til kr. 441.90,
sem er 121% hærra verð.
Verð á lambakjöti var miðað
við 1. verðflokk D 1, á svína-
kjöti verðflokk A og á nauta-
kjöti 2. verðflokkur UN 1.1 öll-
um tilvikum var eingöngu skráð
verð á nýslátruðu.
Þess skal og getið að svína-
hamborgarhryggur með beini
er ýmist seldur með lundum eða
án og í einstaka tilvikum er
hryggbeinið að hluta til sagað
af. I könnuninni er eingöngu
birt verð á óhamflettum rjúp-
um, en verð í verslunum á
hamflettum rjúpum er allt að 20
kr. hærra.
Neytendur geta m.a. nýtt sér
þessa könnun þannig, að þegar
ákvörðun hefur verið tekin um
hvaða kjötrétt á að hafa á jóla-
borðinu, má sjá hvar hægt er að
kaupa hann á hagkvæmasta
verði. Rétt er að undirstrika að
könnunin er ekki tæmandi og
nær ekki til allra verslana á
höfuðborgarsvæðinu eða úti á
landsbyggðinni en neytendur
geta haft könnunina til viðmið-
unar í öðrum verslunum.
Verðkynning Verðlagsstofn-
unar liggur frammi endur-
gjaldslaust í skrifstofu Verð-
lagsstofnunar, Borgartúni 7, og
hjá fulltrúum Verðlagsstofnun-
ar úti á landi, fyrir þá sem á-
huga hafa á að kynna sér nið-
urstöðurnar.
Hér á eftir fara tölur úr verð-
könnun í verslunum á Isafirði.
Einnig eru birtar tölur um
hæsta og lægsta verð á landinu
öllu.
Lambalærl fyllt m. ávöxtum úrbeinað, 1 kg Londonlamb úrframparti 1kg Hanglkjötslæri meft beini mg Hangikjötslæri, úrbeinað 1 kg Svínaham- Svínaham- borgarhryggur borgarhryggur m. beini111 kg úrbein. 1 kg Svínalæri nýttm.beini 'kg Svínalæri reykt m. beini 1 kg Svínalæri reykt úrbeinað 1 kg Svínabógur nýrm. beini ' kg Svína- kótilettur 1kg Nauta- lundir 1 kg Rjúpur óhamflettar 1 stk. Peking- önd ' kg Ali- gæs ikg
ÍSAFJÖRÐUR
Verslun Björns Guðmundssonar 235,00 281,00 460,00 418,00 232,00 230,00 382,00
Kauptélag ísfirðinga 310,00 258,00 278,00 398,00 357,00 217,00 264,20 395,00 232,70 338,50 599,50 150,00 273,00 461,00
Norðurtanginn 215,60 211,20 316,80_ 550,55 293,37 376,96 529,98 281,94 491,04 700,92 446,40
Vöruval 390,80 304,50 295,00 *560,00 424,00 619,00 243,00 235,00 365,00 668,00 150,00
HÆSTAVERÐ 441,90 380,15 326,80 493,20 550,55 690,00 293,37 376,96 529,98 281,94 491,04 700,92 150,00 298,00 468,00
LÆGSTAVERÐ 200,00 145,00 199,00 316,80 298,65 402,00 160,65 202,00 285,00 151,00 275,75 390,00 130,00 198,00 262,00