Vestfirska fréttablaðið - 28.03.1985, Page 1
12. tbl. 11. árg.
vestfirska
28. mars 1985
FR h—. 'T/i iBLASIS
EIMSKIP ' STRANDFLUTNINÍ Sfmar: Skrifstofa 45! Vöruhús 45! +|1 iAR 55 56 MS MÁNAFOSS Á ÍSAFIRÐI AÐ SUNNAN, ALLA ÞRIÐJUDAGA AÐ NORÐAN, ALLA FÖSTUDAGA
IHATIÐARMATINN
Þegar þú kaupir inn
til hátíðarinnar, þá
skaltu renna við hjá
okkur og líta á kjötborðið.
STORKOSTLEGTMATVORUURVAL
Sinarffuðfjinnssoyi k £
gími J200 - 1(15 Sol u.Híja’iOíli
Vestfjörðum:
Sáttafundur í dag
Stéttarfélög undirmanna á
fiskiskipum á Vestfjörðum hafa
lagt fram kröfur í kjaradeilu við
Útvegsmannafélag Vestfjarða
og eru kröfurnar í meginatriðum
samhljóða kröfum Sjómannafé-
lags Isfirðinga.
Sáttasemjari hefur boðað
fund sem hefjast átti klukkan
14:00 í dag, milli ASV, sem fer
með samningsumboð félaganna
á Vestfjörðum utan Isafjarðar,
og Útvegsmannafélagsins. Enn
situr við sama í deilu Sjó-
mannafélags ísfirðinga og út-
vegsmanna og allt bendir til
þess að verkfalli verði fram
haldið.
Vestfirskir sjómenn utan ísa-
fjarðar hafa ekki boðað verk-
fall.
Sölvi á uppboð?
Fiskveiðasjóður íslands hefur
farið fram á að togarinn Sölvi
Bjarnason BA 65 verði seldur á
nauðungaruppboði vegna skulda
við fiskveiðisjóð.
Starfsfólk
í fiskvinnslu:
Krefst
skatta-
frádráttar
í Hraðfrystihúsinu í
Hnífsdal og e.t.v. víðar, er
farin af stað undirskrifta-
söfnun meðal fiskvinnslu-
fólks þar sem skorað er á
stjórnvöld að veita fisk-
vinnslufólki skattafrádrátt,
líkt og sjómenn hafa.
Áskorunin hljóðar svo:
„Við undirrituð, sem störf-
um í fiskvinnslu, skorum á
háttvirt Alþingi að gera þær
breytingar á skattalögum að
I verkafólk í fiskvinnslu fái
skattafrádrátt á sama hátt og
fiskimenn, sem héti þá fisk-
vinnslufrádráttur. Þar sem í
mörgum tilfellum vinnur
verkafólk miklu lengri
vinnutíma en það kærir sig
um til að bjarga verðmætum
fyrir þjóðarbúið.“
Einar Garðar Hjaltason,
verkstjóri í Hraðfrystihúsinu
í Hnífsdal segir að erfiðlega
gangi að manna fiskvinnslu-
húsin og því séu þau ekki
rekin með fullum afköstum.
Ef það tækist með skatta-
lækkunum að fá fleira fólk
til að vinna við fiskvinnslu
myndi það skila sér til baka í
auknum gjaldeyristekjum til
hagsbóta fyrir þjóðarbúið.
ImBBBBMBnaaamM ■■■■
Eigandi Sölva er Tálkni hf á
Tálknafirði, en hann hefur
undanfarið eitt og hálft ár verið
í leigu hjá Hraðfrystihúsinu á
Bíldudal og lagt þar upp afla
sinn. Annar af helstu hluthöf-
um Tálkna hf, Ársæll Egilsson,
sagði í samtali við Vf að skuldir
þær er hvíla á togaranum væru
hátt á annað hundrað milljóna
og umtalsvert hærri en raun-
virði skipsins, sem er byggt árið
1980 og hefur alltaf fiskað í
ágætu meðallagi. Ársæll sagðist
reikna með að skipið yrði boðið
upp í næsta mánuði. Óvíst er
um það hvað af skipinu verður
ef af uppboði verður, en víst er
að ef Bílddælingar missa það
frá sér missir fjöldi fólks í landi
atvinnu sína.
k I! i
Thor Vilhjálmsson heimsótti ísafjörð um síðustu helgi í boði Menningarráðs ísafjarðar. í farteskinu hafði hann
myndir sem hann hefur málað og eru þær til sýnis í Slunkaríki, sýningarsal Myndlistarfélagsins á Isafirði. Á
laugardaginn var svo kynning á verkum Thors í hinu nýja bókasafni M. í.. Þar flutti Matthías Viðar Sæmundsson
(lengst til vinstri) fyrirlestur um verk Thors, og Thor og Rúnar Guðbrandsson lásu úr verkum skáldsins. Á
myndinni sést Thor lesa upp úr einni bóka sinna. Mynd: Hrafn Snorrason.
Flateyri:
Félagsheimilið tekið í notkun
— Ýmsar framkvæmdir fyrirhugaðar á vegum hreppsins
Frumvarp að fjárhagsáætlun
Flateyrarhrepps hefur verið lagt
fram og er fyrri umræðu lokið.
Kristján Jóhannesson, sveitar-
stjóri var spurður um helstu
framkvæmdir sem í gangi væru
eða fyrirhugaðar á vegum
hreppsins.
íþróttahús er í byggingu og er
gert ráð fyrir því að það verði
fokhelt á þessu ári. í haust
verður sett niður 55 metra langt
stálþil í bátahöfninni. Tvær
götur, Tjarnargata og Hjalla-
vegur, fá bundið slitlag og er
ætlunin að reyna svokallað
Otta-dekk, sem víða hefur verið
Frumvarp Magnúsar Reynis:
Ríkið taki þátt í byggingu
tónlistarskóla
Magnús Reynir Guðmunds-
son, bæjarritari og varaþing-
maður Framsóknarflokksins í
Vestfjarðakjördæmi, hefur lagt
fram á Álþingi frumvarp, þar
sem lagt er til að ríkið taki þátt í
byggingu tónlistarskóla til jafns
við sveitarfélög á hverjum stað.
Eins og er greiða sveitarfélög
laun kennara við tónlistarskóla
og ríkið endurgreiðir svo sveit-
arfélögum helming launakostn-
aðar. Annar reksturskostnaður
skólanna er greiddur með
skólagjöldum, sem yrðu ó-
heyrilega há ef þau ættu að
standa undir kostnaði við út-
vegun húsnæðis skólanna.
Þarna telur Magnús eðlilegt að
ríkið komi til móts við viðkom-
andi sveitarfélag með því að
leggja fram sömu fjárhæð og
sveitarfélagið.
í þessu sambandi má minna á
það að Tónlistarfélag ísafjarðar
hyggst hefja byggingu tónlist-
arskólahúss í vor og myndi það
eflaust skipta sköpum fyrir þá
byggingu ef þetta frumvarp
Magnúsar Reynis yrði
þykkt á þingi.
lagt á þjóðvegi og í þéttbýli, en
það er mun ódýrara en aðrir
kostir.
Um helgina var félagsheimil-
ið tekið í notkun eftir talsverðar
endurbætur sem gera varð
vegna skemmda sem urðu á
húsinu í fyrra. Þá sprakk vatns-
leiðsla og olli miklum skemmd-
um.
Kristján sagði aðalvandamál
Flateyringa vera það að þangað
vantaði alltaf vinnuafl, og þá
sérstaklega í fiskvinnslu.
Bruna-
útkall en
enginn
eldur
sam-
Torgsala
j Slökkviliðið á Isafirði var
I kallað út milli klukkan 8 og 9
I á föstudagsmorguninn.
J Reykskynjari í frystigeymslu
■ Niðursuðuverksmiðjunnar
J hafði farið í gang og sett af
■ stað sjálfvirkt boðunarkerfi.
Styrktarsjóður byggingar
tónlistarskóla á ísafirði verður
með torgsölu miðvikudaginn 3.
apríl klukkan 15:00.
Á boðstólum verður kakó og
lummur og einnig verða seldar
páskagreinar, þ. e. greinar af
birki, ösp og víði sem hafa verið
teknar inn í hita fyrir nokkru og
eiga að springa út um páska-
leytið. E.t.v. verða einhverjar ó-
væntar uppákomur ef veður
leyfir.
Fréttatilkynning.
Þegar komið var á staðinn
kom í ljós að engin hætta var
á ferðum heldur hafði reyk-
skynjarinn farið í gang vegna
þess að verið var að rafsjóða
í frystigeymslunni og hafði
gleymst að aftengja boðun-
arkerfið.