Vestfirska fréttablaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 1
15. tbl. 11. árg.
vestfirska
18. apríl 1985
rRETTABLASID
TIL REYKJAVIKUR
TIL AKUREYRAR FLUGLEIDIR
Tækjasýning
LAUGARDAG
KL. 10:00 — 18:00
Verslunin tJdxó ísafirði sími 3103
Skipasmíðastöð Marsellíusar hf.:
Smíðar skip fyrir
Rækju-
verksmiðjuna hf.
Rækjuverksmiðjan í Hnífsdal
hefur samið við Skipasmíðastöð
Marsellíusar hf um smiði á 90
— 100 lesta bát fyrir verksmiðj-
una.
Bátur þessi verður gerður út á
rækjuveiðar, bæði í ísafjarðar-
djúpi og úti á djúpmiðum.
Hann verður 22 m langur og 6.5
m á breidd. Öll hönnunarvinna
bátsins fer fram í Skipasmíða-
stöðinni og er aðallega unnin af
Sævari Birgissyni fram-
kvæmdastjóra. Smíðin hefst í
sumar og er reiknað með að hún
taki um eitt ár. Guðmundur
Sigurðsson framkvæmdastjóri
Rækjuverksmiðjunnar segir að
þetta sé mjög heppileg stærð á
rækjuveiðiskipi, þeir hafi reynt
að vera með loðnubáta á þess-
um veiðum en þau hefðu varla
haft fyrir olíukostnaði.
Með smíði þessa báts er
brotið blað í sögu járniðnaðar á
ísafirði þar sem þetta er fyrsta
nýsmíðaverkefni Skipasmíða-
stöðvar Marsellíusar hf eftir að
fyrirtækið varð til í núverandi
mynd og jafnframt er þetta
fyrsta skip sem smíðað er á ísa-
firði frá árinu 1982. Áætlað er
að skipið muni kosta Rækju-
verksmiðjuna um 30 milljónir
króna.
Hópur áhugamanna um úrbætur
í húsnæðismálum:
Ástandið að leggja
heimili í rústir
Hópur áhugamanna um úr-
bætur í húsnæðismálum á Vest-
fjörðum hefur tekið saman bréf
sem sent hefur verið öllum
’Brúðu-’l
leikhús j
— ísamkomusal |
skólanna
íþrótta- og æskulýðsráð !
ísafjarðar gengst fyrir |
brúðuleiksýningum á vegum I
Brúðuleikhússins um næstu J
helgi. I
Sýningar verða í sam- ■
komusal skólanna laugar-j
daginn 20. apríl klukkan I
15:00 og á sunnudaginn 21. J
apríl klukkan 14:00. Sýndir \
verða leikþættir sem voru í |
Brúðubílnum, en þeir heita I
„Afmælisdagur uglunnar“ I
og „ Gestir frá Afríku.“ I
Sýningin tekur um l'Æ g
klukkustund og miðaverð er I
100 krónur. Það eru þær J
Helga Steffensen og Sigríður \
Hannesdóttir sem standa að I
Brúðuleikhúsinu.
þingmönnum kjördæmisins.
Samskonar bréf hafa verið send
þingmönnum annarra kjördæma
af „áhugamönnum'4 á hverjum
stað. Bréfið til þingmanna
Vestfjarða er svohljóðandi:
Það hefur vart farið fram hjá
neinum að undarlegt ástand
hefur skapst hjá því fólki á ís-
landi, sem er að koma þaki yfir
höfuð sér. Menn eru lengur að
vinna fyrir eftirstöðvum lána
sinna, jafnvel þótt þeir standi í
skilum, vegna þess að skuldir
vaxa með hækkandi vísitölu, en
laun eru ekki bundin sömu
vísitölu. Það ætti að vera hverj-
um manni ljóst að þannig er
ekki hægt að halda áfram, fyrr
eða síðar hlýtur þetta að enda
með ósköpum ef ekkert er að
gert. Það getur ekki talist sann-
gjarnt að húsbyggjendur beri
svostóran hluta byrðarinnar við
að kveða verðbólgu niður.
Að undanförnu hafa á þriðja
hundrað Vestfirðingar látið
skrá sig í hóp áhugamanna um
úrbætur í húsnæðismálum.
Þetta er mjög fjölbreyttur hópur
fólks alls staðar að úr kjör-
dæminu, en hefur það sameig-
inlegt að ástandið í húsnæðis-
málunum er að leggja heimili
þess í rústir. Þetta fólk krefst
skjótra úrbóta og væntir þess að
allir góðir menn leggist hér á
eitt.
Síðastliðið sunnudagskvöld hélt bæjarstjóm ísafjarðar hóf á Hótel ísafirði til heiðurs skíðamönnum sem stóðu
sig afburðavel á nýafstöðnu landsmóti og sundmönnum úr Sunddeild Vestra en þeir hafa sem kunnugt er staðið
sig með afbrigðum vel að undanförnu og núna síðast á Sundmeistaramóti Islands og á innanfélagsmóti sem haldið
var strax eftir sundmeistaramótið settu ísfirðingar fjölda íslandsmeta í íþrótt sinni.
Fyrir einhvern misskilning afþakkaði einn af forráðamönnum sunddeildarinnar boðið fyrir sína menn og þegar
misskilningurinn hafði verið leiðréttur, þá var orðið of seint að boða sundmenn til hófsins á nýjan leik.
A mvndinni er sigursveit Isfirðinga í flokkasvigi. Hana skipa þeir Hafsteinn Sigurðsson, Rúnar Jónatansson,
Guðjón Olafsson og Guðmundur Jóhannsson. Nú eru rétt tuttugu ár síðan Hafsteinn Sigurðsson vann fyrst sigur
■ flokkasvigi á Islandsmóti með félögum sínum, en það var á Akureyri árið 1965. Aðrir í þeirri sveit voru Samúel
Gústafsson, Kristinn Benediktsson og Arni Sigurðsson.
L. I. frumsýnir á miðvikudaginn revíuna:
Engin mjólk og ekkert sykur
Litli Leikklúbburinn á Isa-
firði verður 20 ára næsta mið-
vikudag, þ.e. síðasta vetrardag.
Ætlunin er að halda veglega upp
á afmælið og hefur verið samin
heil revía í því skyni sem verður
frumsýnd á afmæliskvöldið.
Fyrir áramót var skipuð 5
manna nefnd til að semja revíu
en fljótlega þynntist hópurinn
nokkuð. Höfundar revíunnar
eru því aðallega þrír, þau Pétur
Bjarnason, Páll Ásgeirsson og
Hanna Lára Gunnarsdóttir. Sú
síðastnefnda var spurð um efni
revíunnar og hvernig undir-
búningurinn hefði gengið. Að
sjálfsögðu var ekki mikið gefið
út um efni revíunnar því að
revíur fjalla á gamansaman og
ef til vill nokkuð gagnrýninn
máta um samtímamálefni og
það er engum greiði gerður með
því að fara að skrifa of mikið
um það í blöð. Þó getur Vf
upplýst að sögusviðið er hótel
sem á við ákveðna rekstrarörð-
ugleika að stríða og það ásamt
nokkrum persónum mynda
nokkurs konar ramma sem
tengir verkið saman. Hinsvegar
samanstendur verkið af mörg-
um aðskildum atriðum eða
þáttum þar sem ýmislegt úr
umhverfi okkar er til umfjöll-
unar. Hanna Lára sagði að það
hefði gert höfundunum erfitt
um vik við revíusmíðina að
þegar til átti að taka reyndist
veruleikinn svo fáranlegur á
köflum að næsta ómögulegt var
að krydda hann nokkuð án þess
að eiga það á hættu að ofbjóða
fólki. Hvernig til hefur tekist
verða sýningargestir að dæma
um en blaðamaður Vf getur
vottað það að miðað við sýnis-
horn sem hann sá af revíunni á
æfingu um daginn er óhætt að
fullyrða að þar var gott verk í
uppsiglingu.
Eitt var það sem Hanna Lára
sagði að hefði vakið furðu leik-
klúbbsmanna, en það var að í
þessum makalausa tónlistarbæ
sem hefur útskrifað fjöldann
allan af konsertpíanistum
reyndist næstum ógerlegt að fá
einhvern til að glamra undir á
eitt píanó. Sú sem að endingu
fékkst til starfans er Stefanía
Sigurgeirsdóttir.
Frá æfingu L. I. á Engri mjólk og engu sykri. í þessu atriði er verið að ræða
hlutverkaskipan í leikriti um Fjalla-Eyvind og Höllu hjá áhugaleikflokki.
Slagsmál í uppsiglingu.