Vestfirska fréttablaðið - 15.05.1985, Qupperneq 8
Fyrir
SKRIFSTOFU - OG
SKÓLAFÓLK
Tölvuborð.......................kr. 5.170,
Ritvélaborð ....................kr. 3.480,
Prentaraborð....................kr. 5.600,
Skrifborðsstólar ...............kr. 3.980,
BÓKAV. JÓNASAR TÓMASSONAR
SÍMI3123 ÍSAFIRÐI
Starfsfólk í fisk-
vinnslu krefst
skattalækkana
vestfirska
hefur
heyrt
AÐ ef þaö dugar ekki aö halda
tvisvar upp á 100 ára afmæli
fsafjarðarkaupstaðar þá sé
þaö allt í lagi. Þaö er nefnilega
hægt aö gera það í þriöja sinn
100 árum eftir sameiningu
ísafjarðar og Eyrarhrepps.
Glöggur maður hefur bent Vf
á aö þaö tímatal gildi allavega
í tölusetningu bæjarstjórnar-
funda. Fyrsti fundur eftir
sameiningu var nefndur
fundur númer eitt í fundar-
gerðum bæjarstjórnar.
AÐ allt bendi nú til að Björn
Hermannsson taki viö sæti
Reynis Adolfssonar í bæjar-
stjórn og þar meö verði hann
formaður bæjarráös síöasta
ár kjörtímabilsins. Auður
Daníelsdóttir sem var önnur á
lista óháöra í síðustu bæjar-
stjórnarkosningum er senni-
lega á förum úr bænum og
getur því ekki tekið við og
stóö valið á milli Björns og
Láru Oddsdóttur.
AÐ ekki veröi um áframhald-
andi rekstur aö ræöa á
skemmtistaðnum Dokkunni.
Fyrirtækið hefur safnaö svo
miklum skuldum að slíkt er
útilokað. Hinsvegar hyggjast
eigendur húsnæöisins ieigja
þaö á ný undir samskonar
rekstur og hafa nokkrir aðilar
sýnt áhuga á að taka þaö á
leigu. Samkvæmt upplýsing-
um Heiðars Sigurðssonar
ætti nýr skemmtistaður að
geta hafið starfsemi innan
fárra vikna.
„Við undirrituð sem störfum i
fiskvinnslu skorum á háttvirt
Alþingi að gera þær breytingar á
skattalögum, að verkafólk í
fiskvinnslu fái skattafrádrátt á
sama hátt og fiskimenn, sem
héti þá fiskvinnslufrádráttur.
Þar sem í mörgum tilfellum
vinnur verkafólk miklu lengri
vinnutíma en það kærir sig um,
til að bjarga verðmætum fyrir
þjóðarbúið.“
Þannig hljóðar áskorun 158
starfsmanna Hraðfrystihússins
Norðurtangans og Hraðfrysti-
hússins í Hnífsdal sem Einar
Garðar Hjaltason verkstjóri í
Hnífsdal aftenti Þorvaldi Garð-
ari Kristjánssyni, forseta sam-
einaðs Alþingis, í kaffistofu
Hraðfrystihússins í Hnífsdal
síðastliðinn föstudag. Sams-
konar undirskriftasöfnun fer nú
fram víðar á Vestfjörðum í
fiskvinnslustöðvum.
Við þetta tækifæri flutti Þor-
valdur Garðar stutt ávarp þar
sem hann þakkaði fyrir og sagði
að hann væri vanur að taka á
móti áskorunum sem berast
þinginu á skrifstofu sinni í Al-
þingishúsinu en honum væri
það kært að taka á móti þessum
undirskriftum á þessum stað.
Hann sagði það skoðun sína að
það væri eitt af því þýðingar-
mesta fyrir þjóðarbúskap ís-
lendinga að rekstrargrundvöll-
ur sjávarútvegsins væri slíkur að
hann gæti greitt góð laun og
staðist samkeppni við þjón-
ustugreinar um vinnuafl.
Þorvaldur Gardar tekur við undirskriftunum úr hendi Einars Gardars Hjalta-
sonar.
Hestamannafélagið Gnýr:
Bauð börnum á hestbak
— Seldi kaffi í nýstandsettu félagsheimili
Hestamannafélagið Gnýr í
Bolungarvík var með árlegan
barnadag síðastliðinn sunnudag.
Þá var börnum boðið á hestbak
en fullorðnum selt kaffi og
meðlæti.
Að sögn Jóns Guðna
Guðmundssonar, formanns
Gnýs, komu um 180 til 200
manns í kaffi í nýstandsett fé-
lagsheimili sem hestamenn eiga
við Múrhúsaveg.
Líkt og undanfarin ár hyggj-
ast hestamenn í Bolungarvík
standa fyrir reiðnámskeiði og
hefst það síðar í þessum mán-
uði.
©
PÓLLINN HF
Isafirði
Sími3792
Fermingargjöfina færðu hjá okkur
■ Sinclair tölvur
■ BBC-Acorn tölvur
■ Stereo ferðatæki
■ Útvarpsvekjara
■ Klukkulampa
■ Skrifborðsljós
■ Vasareiknivélar
Myndavélar
Sjónauka
Rakvélar
Vasadiskó
Krumpujárn
Quartsúr
Borvélar
Glæsilegar hljómtækjasamstæöur frá
SANYO — KENWOOD — MARANTZ
FRETTABLASID
ERNIR P Símar 3698 og 3898
ISAFIROI
BÍLALEIGA
Endurbætur á
Alþýðuhúsinu
— Ný sæti og hljómflutningstæki
Gagngerar endurbætur hafa
farið fram á Alþýðuhusinu á
ísafirði og er nú aðstaða öll
önnur og betri til að fara á
kvikmyndasýningar.
Gömlu sætunum var rutt út,
salurinn máláður og iagfærður.
Ný tjöld voru sett fyrir sviðið og
ný teppi á gólfið. Þá voru settir
inn nýir og glæsilegir stólar frá
Úr Alþýðuhúsinu.
frönsku fyrirtæki, Quinette,
sem selt hefur sæti til margra af
stærstu og bestu kvikmynda-
húsum í Evrópu. Þau eru mjög
þægileg og með hærra baki en
venjulegt er.
Einnig hafa verið sett upp
ný og fullkomin Dolby-hljóm-
flutningstæki með hátölurum
um allan sal, allt eftir nýjustu
tísku.
I
„Það virðist enginn vilja vera
við þetta núorðið. Það er nóg í
öðru”, sagði Bjarni Einarsson
útgeröarstjóri um mannekluna í
frystihúsum. Það er nokkurn-
veginn sama við hvern er talað,
það er sama sagan í öllum
frystihúsum á Vestfjörðum. Það
vantar fólk í vinnu. í frystihúsi,
þar sem yfirmenn gátu fyrir
nokkrum árum sagt við konu
sem vildi fá vinnu hálfan daginn
að hún yrði þá að útvega aðra
til að vinna hinn helminginn á
móti, er nú svo komið að þaó er
ekki með nokkru móti hægt aö
fá nægilegan mannskap til
starfa. Á Tálknafirði er veriö að
reyna að kenna skólastrákum
að vinna þau störf sem konur
hafa sinnt fram til þessa. „Karl-
ar hafa ekki viljaö vinna þetta,
það eru einhverjir hleypidóm-
ar”, sagði viðmælandi blaðsins
á Tálknafirði.
Rækjuvertíð lýkur í dag á
Bíldudal en hún var framlengd
um tvær vikur vegna dræmrar
veiði. Fljótlega fer að berast út-
hafsrækja til vinnsiu í staðinn.
BESSI eríslipp.
GUÐBJARTUR er væntanlegur
úr slipp, seinnihluta vikunnar.
PÁLL PÁLSSON kom inn í gær
með um 90 tonn.
JÚLÍUS GEIRMUNDSSON kom
inn í gær með um 150 tonn.
GUÐBJÚRG landaði 70 til 75
tonnum af blönduðum afla í
gámasíðastliðinn fimmtudag.
DAGRÚN er að fiska í siglingu.
HEIÐRÚN landaði 70 tonnum
af blönduðum afla á laugardag.
SÚLRÚN landaði um 56 tonn-
um af rækju síðastliðinn föstu-
dag.
ELÍN ÞORBJARNARDÚTTIR er
á veiðum.
GYLLIR kom inn með um 80
tonn á laugardaginn, mest grá-
lúðu.
FRAMNES landaði 13 tonnum
af rækju á ísafirði á fimmtu-
daginn.
SLÉTTANES kom í land [
morgun með eitthvað í kring
um 100 tonn.
SÚLVI BJARNASON er á veið-
um.
TÁLKNFIRÐINGUR kom inn í
gær.
SIGUREY er á veiðum.
HAFÞÚR kom inn á laugardag-
inn með 87 tonn af rækju. Þar
af fóru 30 tonn á Japansmark-
að.
BÍLALEIGA
Nesvegl 5 - Súðavík S 94-4972 - 4932
Vatnsmýrarvegi 34 - V/Miklatorg S 91-25369
Sendum bílinn
Opið allan sólartiringinn