Vestfirska fréttablaðið - 27.06.1985, Blaðsíða 1
25. tbl. 11. árg.
vestfirska
27. júní 1985
FRETTABLASID
Farþegaþjónusta
Sumaráætlun, í viku hverri:
16 ferðir til Reykjavíkur
8 ferðir til Akureyrar
—Vöruþjónusta
FLUGLEIÐIR
Símar 3000 - 3400 - 3410
TÓKUM UPP í DAG
NÝJA SENDINGU
AF FATNAÐI
MARCO herrabuxur
POLO herrajakkar
Belti - Bolir - Skyrtur
o. fl. o. fl.
Verslunin ísafiröi sími 3103
ísafjörður:
Umferðardagur á
sunnudaginn
— Keppt í ýmsum þrautum
Það var sól og hiti á Galtarvita þegar blm. bar að garði s.l. sunnudagskvöld og vitavarðarhjónin nutu veðurblíð-
unnar. Skömmu áður höfðu þau sent veðurskeyti sem reyndist hafa að geyma hæsta hitastig á landinu þann dagínn.
Nú er verið að lagfæra íbúðarhúsið á vitanum en það er komið nokkuð til ára sinna og heldur illa vatni.
Stóraukið öryggi
í símamálum
—þegar nýtt örbylgjusamband Pósts og síma kemst í gagnið í haust
Nú er að hefjast vinna við
uppsetningu á búnaði tii að
koma á örbylgjusímasambandi
milli ísafjarðar og Reykjavíkur
um Blönduós. Verður þetta
samband væntanlega komið í
gagnið fyrir haustið. Þar með
mun fjölga mjög línum út úr 94-
svæðinu, sem þýðir stóraukið
öryggi í símasambandi við aðra
landshluta og reyndar umheim-
inn allan, þar sem hið nýja ör-
bylgjusamband mun verða al-
gjörlega óháð sambandinu
gamla. Ef annað kerfið bilar í
framtíðinni verður hægt að not-
ast við hitt. Uppsetning þessa
búnaðar er stærsta framkvæmd-
in á vegum Pósts og síma í
Vestfjarðaumdæminu á þessu
ári.
Þessa dagana er verið að
leggja síðustu hönd á frágang
sjálfvirks símakerfis í Inn —
Djúpinu, en fyrstu símarnir
voru tengdir við það skömmu
eftir áramótin. Hins vegar kom
fram galli í kerfinu og hefur
hann m.a. leitt til þess að símar
hafa dottið út. Þetta stendur nú
til bóta því nýliðinn mánudag
komu vestur sérfræðingar frá
hinum belgísku framleiðendum
kerfisins og er vonast til að þeir
komi því fljótlega í lag. Þess má
geta að samskonar kerfi hefur
verið sett upp í Þingvallasveit
og gefist vel.
Alls eru það um 50 símnot-
endur í þremur hreppum,
Reykjafjarðar- Ögur- og Naut-
eyrarhreppi, sem verða tengdir
við umrætt kerfi. Snæfjalla-
hreppur verður tengdur beint
við sendi í Bæjum. Vegna hinna
tæknilegu örðugleika hefur
sveitasíminn ekki verið af-
tengdur enn og bjóst Erling
Sörensen, umdæmisstjóri, jafn-
vel við að hann yrði látinn
Félag vestfirskra skreiðar-
framleiðenda, Févesk, var upp-
haflega stofnað til að annast út-
flutning á skreið. Það hlýtur því
að vera tímanna tákn að nafni
félagsins skuli hafa verið breytt
á nýliðnum félagsfundi. Heitir
það nú ísfang, en fang merkir
afli. Að sögn Guðmundar Páls
Einarssonar, stjórnarformanns,
eru ástæður nafnbreytingarinn-
ar aðallega tvær. I fyrsta lagi er
lítið sem ekkert flutt út af skreið
nú til dags, og í annan stað var
gamla nafnið óþjált fyrir út-
lendinga. Þess má geta að höf-
undur nýja nafnsins er Högni
Torfason.
ísfang stundar nú alhliða út-
flutning á sjávarafurðum.
standa næsta vetur, þar sem
fullreyna þyrfti sjálfvirka kerfið
áður en hann væri aftengdur.
Þegar búið verður að ganga
frá kerfinu í Djúpinu verður allt
umdæmið orðið sjálfvirkt utan
tveir bæir í Arnarfirði, Lokin-
hamrar og Hrafnabjörg. Raf-
magnsleysi stendur þar í vegi
fyrir sjálfvirkum síma.
Nafnbreyting:
Undanfamar vikur hefur fersk-
ur fiskur verið fluttur út í stór-
um stíl á vegum fyrirtækisins,
enda aflabrögð góð og verð
gott. Þessi starfsemi er tiltölu-
lega ný af nálinni, hófst ekki
fyrr en í nóvember í fyrra og var
töluvert flutt út fram í endaðan
janúar. Síðan varð nokkurra
mánaða hlé. En í maí hófst út-
flutningur á ný og voru í þeim
mánuði fluttir út 36 gámar,
samkvæmt upplýsingum Gísla
Jóns Hjaltasonar, starfsmanns
ísfangs. Það sem af er júní hafa
verið fluttir út 105 gámar, þar af
41 í síðustu viku og mun það
vera met. í hverjum gámi eru
um 12 tonn.
Langmestur hluti fiskjarins
Bindindisfélag ökumanna
gengst fyrir svokölluðum um-
ferðardegi á ísafirði n.k. sunnu-
dag. Hefst dagskráin kl. 13:00 í
þeim hluta Hafnarstrætis sem
afmarkast af Túngötu og Sól-
götu. Keppt verður í ýmsum
þrautum sem gaman ætti að
verða að fylgjast með.
Meðal keppnisgreina er öku-
leikni, og er búist við að Is-
landsmeistarinn frá í fyrra,
Einar Halldórsson, taki þátt. Þá
verður vélhjóla- og reiðhjóla-
keppni og er síðarnefnda
keppnin nýnæmi á þessum
degi. Fá þrír fyrstu verðlaun en
að auki fá allir keppendur
happdrættismiða og verður
dregið um DBS reiðhjól 1.
september. Eins og í fyrra verð-
ur efnt til þríhjólakeppni fyrir
þá sem eru á aldrinum 3 — 5
ára. Ennfremur eru uppi hug-
myndir um að efna til hjóla-
skautakeppni og keppni í akstri
lyftara. Þess má geta að vist-
mönnum í Bræðratungu er sér-
staklega boðin þátttaka.
Reynir Ingason, umsjónar-
maður umferðardagsins, sagði
tilgang hans vera að þjálfa fólk í
meðferð tiltekinna ökutækja og
vekja það til umhugsunar um
stöðu þeirra í umferðinni.
Reynir sagði umferðarmenn-
hefur verið seldur til Grimsby
og Hull en einnig til Belgíu,
Frakklands og Þýskalands. Is-
fang mun vera frumherji í sölu
fersks fisks frá íslandi á Frakk-
landsmarkaðnum.
Flestir togarar á Vestfjörðum
hafa selt fisk í gegnum ísfang.
Landa þeir þá oftast í gáma á
Isafirði, en þeir eru síðan fluttir
á markað með fossum Eim-
skips. I vetur fóru gámarnir í
gegnum Reykjavík, en undan-
farið hefur ekki verið talið ráð-
legt að flytja þá öðruvísi en
beint á markað sökum sumar-
hitans og þar af leiðandi minna
geymsluþols.
ingu á ísafirði að sumu leyti
vera fyrir neðan allar hellur og
tók sem dæmi hjólreiðamenn
og gangandi vegfarendur. Máli
sínu til stuðnings sýndi hann
blm. myndir sem teknar voru á
götum ísafjarðar og var þar
ekki um að villast.
Á hverju ári efnir BFÖ til
reiðhjólakeppni meðal skóla-
barna. Eru þá lagðar skriflegar
og verklegar þrautir fyrir börn-
in. Úrslit í keppninni í vor urðu
sem hér segir:
1. bekkur
1. Halldóra Ó. Brynjólfsd.
2. Ingvar Sveinsson
2. bekkur
1. Smári Karlsson
3. bekkur
1. Magnús Kristjánsson
2. Unnar Þór Reynisson
4. bekkur
1. Hagbarður Valsson
2. -3. Guðm. Sveinbjörnsson
Unnar Jóhannesson
5. bekkur
1. Helgi St. Kjartansson
Framhald á bls. 7
Stjórnsýslu-
húsið:
Tilboði ís-
verks tekið
Ákveðið hefur verið að
ganga til samninga við verk-
takafyrirtækið ísverk um
uppsteypu á Stjórnsýsluhúsi
ísfirðinga. Tilboð ísverks
var lægst allra tilboða sem
bárust og hljóðaði upp á
23.498.154 eða 88% af
kostnaðaráætlun. Að sögn
Haraldar L. Haraldssonar,
bæjarstjóra, verður leitað
samninga við fyrirtækið um að
það kaupi steypu af Steypu-
stöðinni. Mundi það vænt-
anlega þýða einhverja hækk-
un á tilboðinu, en þar sem
töluverður munur var á til-
boði ísverks og því sem næst
kom, er gert ráð fyrir að til-
boð fsverks verði eftir sem
áður lægst.
Verkinu á að vera lokið
fyrir 1. ágúst 1986. Það má
því búast við miklum fram-
kvæmdahljóðum í miðbæ
ísafjarðar á næstunni.
Févesk verður ísfang
— Metvika í ferskfiskútflutningi