Vestfirska fréttablaðið - 08.08.1985, Side 1
31. tbl. 11. árg.
vestfirska
8. ágúst 1985.
FRÉTTABLASIS
SUMARÁÆTLUN
Þingeyri — Reykjavík — Þingeyri
Mánudaga — Fimmtudaga
Umboð Þingeyrí
Sími 8117
FLUGLEIDÍR
Um verslunarmannahelgina:
Þéttbýlisstaðir tæmdust
Áreksturinn norðan Hólmavíkur var harður, en enginn í bflnum hlaut meiðsli.
Segja má að þéttbýlisstaðir á Vest-
fjörðum hafi tæmst af fólki núna um
verslunarmannahelgina. Á Isafirði
var fámennt á götum bæjarins og lít-
ið um að vera. Fréttamaður Vf. var
á ferð um Strandaveg og má segja að
annar hver bfll á þeirri leið hafi borið
I- númer. Ljóst er að fjöldi fólks leit-
aði til útihátíðanna fyrir sunnan, en
þar skein sól alla helgina, og margir
vestfirðingar lögðu leið sína austur í
Atlavík.
Hjá lögreglunni á ísafirði fengum
við þau ánægjulegu tíðindi að helgin
hefði verið róleg og áfallalaus að öllu
leyti. Lögreglan var viðbúin mikilli
helgarumferð og var með eftirlitsbíl
Leikja og íþrótta-
námskeið að
hefjast:
í fyrra tóku
meira en 100
þátt og von á
öðru eins nú
Það má búast við miklu fjöri á
íþrótta og leikjanámskeiðinu sem
hefst í fyrramálið, föstudagsmorg-
un, á íþróttaleikvanginum í Torf-
nesi. t fyrra tóku yfir 100
krakkar þátt í námskeiðinu, sem
þótti takast hið besta.
Kennari á námskeiðinu verður
Guðjón Reynisson íþróttakennari
og honum til aðstoðar vaskir menn.
Kenndar verða ýmsar frjálsar
íþróttir og knattleikir auk leikja.
Kennt verður í 5 flokkum og
hefst kennsla kl. 10:00 á morgnana.
Námskeiðið er ætlað ungu fólki á
aldrinum 7—14 ára.
Og þá er bara að láta innrita sig á
bæjarskrifstofunni eða á leikvang-
inum sjálfum.
A 80 km.
hraða í Hafn-
arstræti
— sviptur ökuskír-
teini umsvifalaust
Á mánudagskvöldið var ökumað-
ur einn á ferð um Hafnarstrætið á
ísafirði og ók fullgreitt, mældist á 80
kílómetra hraða, sem allir hljóta að
sjá að er óðs manns æði.
Lögreglan færði mann og bíl til
lögreglustöðvar. Fulltrúi bæjarfó-
geta svipti manninn ökuskírteini
sínu þar á staðnum. Ætti það að
verða mönnum nokkurt umhugsun-
arefni hvað gálaus akstur getur haft
í för með sér, enda vill enginn missa
ökuréttindi sín.
í Djúpinu. Þar var allt í besta lagi,
enginn tekinn fyrir ölvun eða of
hraðan akstur.
„Hinsvegar fannst okkur að menn
mættu nota bílbeltin meira en gert
er, og sömuleiðis að aka með fullum
ljósum. Bæði þessi atriði eru stórfellt
öryggismál fyrir ökumennina og því
undarlegt að menn skuli ekki huga
að þessum atriðum“, sagði varðstjóri
hjá lögreglunni.
Einhver minni háttar óhöpp urðu
á Strandavegi. Tveir aðkomubílar
lentu saman rétt norðan við Hólm-
avík og aðrir tveir norðan við
Framnes. Ekki urðu slys á fólki.
Tveir ökumenn voru teknir grunaðir
um ölvun við aksturinn, annar að
koma af balli í Sævangi, hinn í Árn-
esi.
Full ástæða er til að benda öku-
mönnum á að aka varlega um vegi í
Þá eiga
„Þessi verkfæri notum við nú
ekki nema héma rétt í kringum
húsin, svona upp á sport,” sagði
Sigurjón Samúelson bóndi í
Hrafnabjörgum í Laugardal, þegar
blaðamaður Vf. hitti hann og ung-
an kaupamann, Snorra, að máli á
mánudaginn í brakandi þurrki.
Á heimatúninu var mannskapur
að hirða töðuna, gestir Sigurjóns þá
um helgina. Sagði Sigurjón að
þokkalega hefði gengið með hey-
skap og var hann bjartsýnn á að
ljúka heyvinnu fljótlega.
Sigurjón var við önnur störf um
verslunarmannahelgina, því hann
segist eiga það til að „snúa plötum”
á böllum, og það gerði hann í
Reykjanesi þessa helgi.
Sigurjón bóndi hefur það fyrir
tómstundagaman að safna hljóm-
Strandasýslu. Víða eru blindar beyj-
ur og hæðir, þar sem hættan er oft á
næsta leyti, enda umferðarþungi
orðinn mun meiri á vegunum eftir að
farið var að aka Steingrímsfjarðar-
plötum, ekki síst þeim íslensku.
Segist hann hafa byrjað á því 1952,
eða um það leyti sem hljómplötu-
útgáfa hófst hér á landi. Á hann
merkilegt safn íslenskra platna,
heiðina suður. Kaflinn frá Hrófbergi
að Hólmavík er sérlega varhuga-
verður í þessu tilliti, en einnig víða
í Kollafirði.
sem margir líta hýru auga. Hefur
það t.d. hjálpað upp á sakirnar hjá
ríkisútvarpinu, þegar sérstakar
plötur hefur vantað.
Sandfell reynir að
opna fleiri markaði
fyrir gámafisk:
Þrettán gámar
til fjögurra
Evrópulanda
„Það getur tekið drjúgan tíma að
kynna nýjan fisk á nýjum markaði
eins og til dæmis í Belgíu , Frakk-
landi og Hollandi,” sagði Ólafur B.
Halldórsson í viðtali við Vestfirska
fréttablaðið. „Við verðum að hafa
biðlund og veita kaupendunum
sinn aðlögunartíma.”
ísfang h.f. hefur um nokkurt
skeið haft vakandi auga á mörkuð-
um víðar í Evrópu en í Bretlandi,
þar sem offramboð er nú að stór-
skaða söluverðið. Þar voru 2800
lestir af gámafiski frá íslandi á
markaði núna í vikunni með til-
heyrandi verðhruni.
Ólafur sagði að reynt hefði verið
að koma fiski frá Isafirði á aðra
markaði, t.d. fóru 13 af 26 gámum á
fimmtudaginn var til Danmerkur,
V - Þýskalands, Hollands og
Belgíu. Siglt er með gámana til
Hirtshals í Danmörku en þaðan eru
þeir fluttir í kælivögnum til mót-
takenda í þessum löndum.
SÍÐUSTU FRÉTTIR: 1 gær barst
Ísfangi skeyti um sölur á fiskmörk-
uðum í Evrópulöndunum fjórum.
Gæðum fisksins var hælt og óskað
eftir meira af slíkum gæðafiski.
Verðið sem fékkst fyrir fiskinn var
líka hagstætt, 40 til 46 krónur á
kílóið. Ljóst er því að Isfang lék
þama sterkan leik.
Skreiðin:
13000 óseldir
pakkar af
skreið á Vest-
fjörðum
—virði meiraen út-
svarstekjur ísafj-
arðar nema
„Það þarf vart að fjölyrða um
það, skreiðarmálin standa afar illa
hér á Vestfjörðum eins og annars
staðar,” sagði Ólafur B. Halldórs-
son í samtali við VF.
Á milli 12 og 13 þúsund skreið-
arpakkar eru til á Vestfjörðum og
kvað Ólafur afar erfitt að segja
nokkuð um horfur á sölu. Margt
hefði verið reynt, en hvorki gengið
né rekið.
Reiknað er með að skreiðar-
pakki kosti 200 Bandaríkjadali eða
sem svarar 8000 krónum. Verð-
mæti óseldu skreiðarinnar sem
liggur hjá vestfirskum skreiðar-
framleiðendum er því meira en 100
milljón króna virði. Ekki lítil upp-
hæð, þegar haft er í huga að út-
svarstekjur ísafjarðarkaupstaðar f
ár nema um 70 milljónum króna.
Vestfjarðamót í golfi
Vestfjarðamót í golfi verður haldið núna um helgina. Keppt verður í
öllum flokkum. Keppnin hefst kl. 10:00 á laugardagsmorgun í Bolungarvík
og lýkur skráningu kl. 11:00 fyrir hádegi. Leiknar verða 18 holur í Bolung-
arvík.
Á sunnudagsmorgun heldur keppnin áfram, þá á golfvellinum á ísafirði
og hefst keppni þann dag kl. 10:00 f.h. Búist er við góðri þátttöku, enda
stækkar óðum hópur harðsnúinna kylfinga á Vestfjörðum.
Um þarnæstu helgi verður bæjarkeppni Bolvíkinga og ísfirðinga háð í
Bolungarvík og hefst hún kl. 13:00 á sunnudag. Þar verða allir hlutgengir,
en aðéins 6 þeir bestu í hvoru liði reiknaðir með í lokauppgjörinu.
Sigurjón bóndi og Snorri litli rifja á hlaðinu á Hrafnabjörgum.
Brakandi þerrir á verslunarmannafrídaginn:
bændur ekki frí