Vestfirska fréttablaðið - 15.08.1985, Qupperneq 1
FRETTABLASIS
EIMSKIP STRANDFLUTNIh Símar: Skrífstofa Vöruhús |* GAR 1555 1556 MS MÁNAFOSS - Á ÍSAFIRÐI AÐ SUNNAN, ALLA ÞRIÐJUDAGA AÐ NORÐAN, ALLA FÖSTUDAGA
Nú eiga allir leið í
BOLUNGARVÍK
eftir nýja veginum!
NÝTT GRÆNMETI O FERSKIR ÁVEXTIR
Lítið á kjötborðið okkar það bregst aldrei!
Sinarffuðfjinmson k
£im 7200 . iflS fiol untja’iOík
Knattspymuráð leitar til bæjaryfirvalda:
Skuldirnar nema tveim milljónum
Knattspyrnuráð ísafjarðar á nú
orðið í verulegum fjáhagsvandræð-
um. í viðtali við Vf. sagði Jakob
Þorsteinsson að þetta væru skelfi-
leg vandræði og ætti KRl orðið í
miklum erfiðleikum við að halda
rekstrinum gangandi.
Meginástæðan fyrir þessari
skuldasöfnun er sú að tekjur sem
gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun
brugðust algjörlega. I fyrsta lagi
hafði verið gert ráð fyrir u.þ.b. 500
þús. króna tekjum af rækjuveiði
sem brást, einnig hafði verið gert
ráð fyrir að spilakassar sem voru í
KRÍ-húsinu myndu gefa af sér 300
þús. í tekjur. Spilakassamir voru
gerðir upptækir sem gerir það að
verkum að all mikill hallarekstur er
á KRÍ-húsinu. Skuldahali frá fyrra
ári var 1200 þús sem þýðir það að
samtals skuldar KRÍ 2 milljónir.
Stór hluti þessarar upphæðar er
ógreiddur ferðakostnaður. Einnig
hefur þjálfun Uðsins verið mjög
kostnaðarsöm, liðið hefur verið
þjálfað á tveim stöðum, í Reykjavík
og á ísafirði og hefur þurft að kosta
þjálfara og húsnæði á báðum stöð-
um. Jakob sagði að þessi skuldahali
hefði verið að vaxa undanfarin ár
og hefði þetta vandamál verið rætt
ítarlega á tveim síðustu aðalfund-
um.
Vandamál Knattspyrnuráðs
hafa nú verið lögð fyrir bæjaryfir-
völd, en ekki er ljóst til hvaða ráða
verður gripið. Ólafur Helgi Ólafs-
son formaður íþróttabandalags
Isafjarðar sagði í viðtaU við Vf. að
ekki væri útséð um hvaða meðferð
málið fengi hjá bæjarráði en ljóst
væri að þetta kallaði á algjöra end-
urskipulagningu á allri starfsemi
Knattspymuráðs.
Hvað varðar framtíðarlausn
þessara mála sagði Jakob að hann
teldi helst koma til greina að spara
ferðakostnað í yngri flokkunum
með því að stofna sérstakan Vest-
fjarðariðil. Einnig að byggja
meistaraflokkinn meira upp á
heimamönnum til þess að forðast
óþarfa þjálfunarkostnað, sem
minnst er á hér að framan. Hann
sagði að Uðið væri ekki í neinni
fallhættu í 2. deild, sú deyfð sem
væri yfir liðinu væri alfarið leik-
mönnum sjálfum að kenna. Þeir
einir gætu bjargað Uðinu úr þeúri
lægð sem það væri í.
Nýr forstöðu-
maður tækni-
deildar
Bjarnason.
Eyjólfur Bjamason hefur verið
ráðinn forstöðumaður tæknideild-
ar Isafjarðarkaupstaðar. Eyjólfur
var áður byggingafulltrúi þar til nú
að hann tekur við starfi forstöðu-
manns, sem Bjami Jensson gegndi
áður.
„Það er fjöldamargt framundan
hjá mér í þessu nýja starfi m.a. við-
haid á ýmsum húseignum bæjarins.
Mér líst vel á starfið og hygg gott til
glóðarinnar”, sagði Ejólfur þegar
við röbbuðum við hann eitt augna-
bUk eða svo.
Allt í skrúfunni:
Skólastjóra og
3 kennara
vantar að
Iðnskólanum
„Þetta er ekki verra en vant er,
það er aUt í skrúfunni”, sagði Einar
Hremsson þegar hann var spurður
hvemig gengi að ráða kennara og
starfslið að Iðnskólanum á Isafirði,
Einar er formaður skólanefndar
Iðnskólans sem á í verulegum
vandræðum með að fá starfslið
fyrir komandi skólaár. Ennþá er ó-
ráðið í stöðu skólastjóra og 3 kenn-
arastöður eru enn lausar. Einar var
bjartsýnn þó enginn hafi enn sótt
um þessar stöður. Taldi hann enga
ástæðu til svartsýni og vildi hvetja
þá sem hugsanlega vildu leggja
hönd á plóg til að efla þetta skóla-
starf til þess að hafa samband við
sig.
Japanimir tveir ásamt jóbanni bónda i Heimabæ
Japanir rannsaka
norðurljósin í
Arnardal
Tveir japanskir vísindamenn, doktorar í stjarneðlisfræöi,
dvelja um þessar mundir við vísindastörf í Heimabæ í Arnardal.
Þeir hafa komið upp flóknum vísindatækjum, m.a. myndavél
sem tekur myndir af norðurljósunum. Þá hafa þeir mikinn loftnet-
aútbúnað, sem er knúinn sólarorku, segulbönd og myndbanda-
tæki svo eitthvað sé nefnt.
Vf. heimsótti þá félagana frá landi sólarinnar og ræddi við þá.
— Nánar á bls. 3.
13 —15 ára skattgreiðendur á Vestfjörðum:
Mun meiri tekjur en tíðkast í Reykjavík
Ungmenni á aldrinum 13 —
15 ára greiða að öllu jöfnu ekki
háa skatta, enda ekki orðnir
matvinnungar á þeim aldri
hvað þá meir. Hér á Vestfjörð-
um kemur hinsvegar í ljós að
unglingar, 13, 14 og 15 ára
greiða 1.456,000 krónur í opin-
ber gjöld í ár.
Til samanburðar má taka
Reykjavík. Þar er lagt á ein-
staklinga á sama aldursskeiði
3,3 miDjónir, og eru Reykvík-
ingar þó ca. 8 sinnum fleiri en
Vestfirðingar.
Ólafur Helgi Kjartansson
skattstjóri tjáði blaðinu að
meðaltekjur þessa aldurshóps
hér á Vestfjörðum i fyrra hefðu
reynst vera um 41 þúsund
krónur, en yfirleitt stendur
sumarvinnan þetta 2 — 3 mán-
uði.
1 Reykjavík er mun minna
um atvinnu í fiski en hér vestra
þar sem segja má að hver
hjálpandi hönd sé þegin til að
bjarga verðmætunum sem sótt
eru í fang Ægis.
Steingrímsfjaðar-
heiði:
Efsta lag
vegarins
kemur fyrir
næsta sumar
Mikið hefur verið kvartað yf ir
nýja veginum yfir Steingrims-
fjarðarheiði í sumar, eða öllu
heldur köflum í þeim vegi.
Næsta sumar ættu ökumenn
að geta liðið í Ijúfum draumi yfir
þennan veg, sem í sjálfu sér er
mikil samgöngubót Að sögn
Gisia Eiríkssonar hjá Vega-
gerðinni verður byrjað að mala
efni í efsta lagið á veginum núna
í næsta mánuði.
Grunnskólinn:
Fimmtán
kennara
vantar
Nú er tæpur mánuður þangað til
Grunnskóli Isafjarðar á að taka tii
starfa. Unnið er að breytingum á
húsnæði skólans með það fyrir aug-
um að bæta vinnuaðstöðu kennara
og starfsfólks. Ennþá er óráðið í 1S
kennarastöður við skólann, og litil
eftirspurn eftir þeim að sögn Jóns
Baldvins, nýráðins skólastjóra.
Flest ef ekki öil sveitarfélög úti á
landi bjóða kennurum ýmis friðindi
auk fastra launa, má þar nefna hluti
eins og fritt eða ódýrt húsnæði,
flutningsstyrk, ókeypis barnagæslu
og fleira.
Á ísafirði hafa kennurum enn
ekki verið boðin fríðindi af þessu
tagi, en ætlunin er að bæjarráð
fjalli um þessi mál á sérstökum
fundi. Vonandi finnst einhver
lausn þannig að Grunnskóli Isa-
fjarðar geti hafið störf á tilsettum
tíma.