Vestfirska fréttablaðið - 29.08.1985, Side 1
34.tbl. 11. árg.
vestfirska
29. ágúst 1985.
FR 'U .BLADID
EIMSKIP ' STRANDFLUTNINC Sfmar: Skrifstofa 41 Vöruhús 4f s IAR »55 >56 MS MÁNAFOSS Á ÍSAFIRÐI AÐ SUNNAN, ALLA ÞRIÐJUDAGA AÐ NORÐAN, ALLA FÖSTUDAGA
Kaffisala í
kynningarveislu
Slysavarnardeild kvenna í Bolungarvík verður
með köku- og kaffisölu í kynningarveislunni,
laugardag kl. 13:00 — 17:00 og
sunnudag kl. 13:00 — 17:00.
Sinarffuðfjinnsson k fí.
gími 7200 - 4/5 S oluníjalOíli
Athyglisverð samvinna:
Vestfirskir togarar
fiska fyrir
Hafnfirðinga
„Gyllir var að landa hjá okkur
núna og við munum láta hann hafa
kvóta fyrir þvf magni sem hann
landaði”, sagði Þorsteinn Már
Baldvinsson hjá Hvaleyri f Hafnar-
firði, þegar við spurðum hann f síð-
ustu viku hvort eitthvað væri til f
því, að vestfirskír togarar væru að
fiska fyrir Hafnfirðinga. Sagði
Þorsteinn Már, að þeir ættu eftir
dálftinn kvóta, en hefðu ekki skip
og hefðu þvf brugðið á það ráð að
bjóða mönnum kvóta ef þeir væru
tilbúnir að leggja upp f Hafnarfirði.
Togarar Hvaleyrar eru í klössun
og töldu þeir Hvleyrarmenn, að í
stað þess að halda þeim úti öðrum í
einu, væri alveg eins gott að fá til að
fiska fyrir sig togara, sem ekki ættu
of mikið eftir af sínum kvóta.
Þannig gæti þetta orðið gagn-
kvæmt.
Þorsteinn Már sagði, að þeir
keyptu aflann af togurunum eins
og um óskyldan aðila væri að ræða.
Ekki vildi hann nafngreina fleiri
skip héðan af vestan, en sagðist
vonast til að sjá fleiri Vestfirðinga
með haustinu.
„Við erum nýlega byrjaðir á
þessu, því hingað til hefur verið
nægt framboð af fiski og það er
ekki langt síðan við rúlluðum okk-
ur af stað.”
Gunnlaugur Kristjánsson hjá
Hjálmi h.f. sagði, að með þessu
væru þeir að lengja úthaldsdaga
Gyllis. Sagði hann, að Gyllir hefði
farið einn túr fyrir Hvaleyri, en
meiningin væri að hann færi tvo.
Flateyringar fengu fisk til
vinnslu frá Súgandafirði og Þing-
eyri á meðan togari þeirra lagði
upp í Hafnarfirði. Við höfðum
samband við Bjama Grímsson,
kaupfélagsstjóra á Þingeyri, og
spurðum hann hvort Hafnfirðingar
hefðu leitað til þeirra.
Bjami sagði, að þeir Þorsteinn
Már hefðu ræðst við. „Við höfum
boðið þeim oftar en einu sinni að
fara fyrir þá túra. Þeir geta hins
vegar ekki tekið á móti nógu miklu
magni af þorski og á meðan þorsk-
fiskiríið var sem mest í sumar, þá
var ekki fýsilegt fyrir okkur að
senda togara á skrap. Það er skil-
yrði hjá þeim þarna suður frá, að
ákveðið hlutfall aflans sé karfi.
Meðan svo vel veiddist af þorskin-
um og við höfðum undan eða gát-
um sett hann í gáma og fengið við-
unandi verð fyrir, þá treystum við
okkur ekki til að veiða það sem þeir
vildu. Hvort eitthvað verður úr
þessu verður bara að koma í ljós.
Við verðum fyrst og fremst að sinna
okkar húsi.”
— Nú fengu Flateyringar fisk frá
ykkur á meðan togari þeirra var á
veiðum fyrir Hafnfirðinga. Er
hugsanlegt að þið fengjuð fisk til
vinnslu frá Flateyri ef þið færuð að
fiska fyrir Hafnfirðinga?
„Við höfum verið að ræða sam-
starf um fiskmiðlun o.fl. og það var
hugmyndin hjá okkur Einari Oddi
að miðla okkar á milli þannig að
vinna félli hvorki niður hjá þeim né
okkur. Flateyringar hafa fengið
talsvert af fiski frá okkur í ágúst og
eitthvað í júlí.
Við stefnum inn í verksmiðju-
fyrirkomulag, því það eru gerðar
svo miklar kröfur til fiskiðnaðarins
í dag. Við verðum að standa undir
raunvöxtum og til þess að svo geti
orðið verðum við að skipuieggja
okkur betur en við höfum gert. Það
þýðir, að við verðum að færa okkur
meir yfir í verksmiðjuiðnað, svo
hægt sé að gera vinnuna stabílli og
þá verður hráefnisöflunin að vera
það líka”, sagði Bjami Grímsson.
Þessa mynd tók Ijósmyndari blaðsins í blíðviðrinu um daginn og sýnir hún
garðyrkjukonur að störfum. Mikið hefur verið unnið að því að fegra bæinn
nú í sumar og viðrað vel til þeirra verka. En senn líður að hausti og vorum
við minnt á það í gærmorgun því gránað hafði í fjöll nóttina áður.
Undanþága
fyrir
sláturhús?
Við slógum á þráðinn til Ein-
ars Otta, héraðsdýralæknis, og
spurðum hann hvemig væri með
undanþágu fyrir sláturhúsið.
Einar sagói, að það væri ráðu-
neytið sem veitti starfsleyfi fyrir
sláturhús, að fenginni umsögn
héraðsdýralæknis. Hann sagðist
eklti mega skýra frá þvf hvað
hann hefði lagt til að gert yrði
við sláturhúsið, en umsögn hans
I ár hefði verið nánast sam-
hljóða umsögninni frá fyrra ári.
Eins og allir vita hefur slátur-
hús KÍ verið rekið á undanþágu
um árabil.
Er útvarp Isafjörður
á næsta leiti?
— er bara að tryggja mér nafnið, segir Kristján Kristjánsson í Silfurtorginu
Um áramót taka gildi ný út-
varpslög sem fela í sér aukið frelsi
til útvarps- og sjónvarpsrekstrar.
Víða um land er hafinn undirbún-
ingur að rekstri stöðva innan
ramma nýju laganna.
Ýmislegt bendir til að Isfirð-
ingar fari ekki varhluta af þessu
kærkomna frelsi í fjölmiðlun. I síð-
asta tbl. Lögbirtingablaðsins birtist
þessi tilkynning:
„Hér með tilkynnist, að Versl-
unin Silfurtorgið sf., ísafirði, mun
reka hér á ísafirði útvarpsstöð og
sjónvarpsstöð undir heitinu, Út-
varp ísafjörður og Sjónvarp Isa-
fjörður. Oskast það hér með stað-
fest.”
Við höfðum samband við Krist-
ján Kristjánsson, kaupmann í Silf-
urtorginu, og hann sagði að það
hefði fyrst og fremst vakað fyrir sér
að tryggja sér einkarétt á nafni nú.
Hann sagði lítið vera ákveðið um
framhaldið, en hann hefði fullan
hug á að stofna fyrirtæki um þenn-
an rekstur og safna hlutafé til að
koma þessu á laggimar. Sagðist
hann lítið hafa kynnt sér innihald
nýju útvarpslaganna, en vitað væri
að kostnaður við að hleypa lítilli
sjónvarpsstöð af stokkunum væri
um það bil 2,5 milljónir. Hluti af
þeim tækjabúnaði sem til þarf er
þegar fyrir hendi hér á staðnum,
þannig að ef hentugt húsnæði
undir rekstur sjónvarpsstöðvar
fengist, væri sáralítið því til fyrir-
stöðu að hefjast handa.
Úlfar Ágústsson, sem er mikill
áhugamaður um frjálsan útvarps-
rekstur sagði þegar við leituðum
álits hans á þessari framvindu
mála, að það skipti í sjálfu sér engu
máli þótt einhverjir aðilar tækju sér
einkarétt á einhverju nafni. Meðan
tekjuhliðin væri ekki ljós væri allur
undirbúningur í lausu lofti. Hann
sagði, að það væri ekki nóg að hafa
áhuga á útvarpsrekstri, menn yrðu
að hafa einhverja faglega þekkingu
á rekstrargmndvelli slíkra stöðva.
Til fróðleiks má geta þess, að í
útvarpslögum segir í 4. grein.
„Útvarpsstöðvum er heimilt að afla
tekna með auglýsingum, afnota-
gjaldi eða sérstöku gjaldi vegna út-
sendingar fræðslu- og skýringar-
efnis. Ayglýsingar skulu vera skýrt
afmarkaðar frá öðrum dagskrár-
liðum. Gjaldskrár fyrir auglýsingar
skulu vera háðar samþykki út-
varpsréttamefndar.”
Bíll stórskemmdur
við bílaverkstæði
Þegar starfsmenn Bflaverkstæðis
Isafjarðar komu til vinnu á mánu-
dagsmorgun, hafði bil sem nýlokið
var að gera við, verið ýtt fram af
planinu og hann stórskemmdur.
Bfllinn var læstur og I fyrsta gír
þegar að var komið. Virtist sem
aunar bfll hefði veríð notaður til að
ýta honum út af, þvf greinilegt var
að einhver bíll hafði spólað á plan-
inu í þeirri stefnu sem hann lá.
Bfllinn, sem um ræðir, er sendi-
ferðabfll í eigu Vegagerðarinnar.
Svipað mál kom upp í Bolungar-
vik og leikur grunur á að þessi mál
tengist, að sögn lögreglunnar.