Vestfirska fréttablaðið - 07.11.1985, Síða 1
1 FRSTTABLADID
EIMSKIP
MS MÁNAFOSS
STRANDFLUTNINGAR
Á ÍSAFIRÐI
Símar:
Skrifstofa
Vöruhús
AÐ SUNNAN, ALLA ÞRIÐJUDAGA
AÐ NORÐAN, ALLA FÖSTUDAGA
Mikið úrvai af finnskum
dömubuxum og blússum
Einnig mjög mikið
úrvai af metravöru
QnarQu^innszon k
^yímt ~)20G - föoluntja’iúílz
Yfírvöld í Bretlandi
hetja rannsókn
I fréttum útvarpsins 4. nóv. sl.
var sagt frá þvf að nú stæði yfir í
Bretlandi rannsókn þarlendra yfir-
valda á meintum brotum á breskum
innflutningslögum. Beinist rann-
sóknin einkum að fiskinnflytjend-
um frá tslandi og hvort þeir hafi
vfsvitandi gefið rangar upplýsingar
um verðmæti fisks frá tslandi sem
seldur hefur verið á uppboðum i
Bretlandi, fyrirhugað er að rann-
sóknin nái 3 ár aftur f tfmann. Að
sögn kunnugra gæti hugsanleg
krafa um endurgreiddan mismun
numið um 30 milljónmum króna.
Verði það sfðan niðurstaða að
ranglega hafi verið staðið að
skýrslugerð kann það að leiða til
jafnhárrar sektargreiðslu. Þannig
að málið gæti snúist um 60 milljónir
króna.
Nú er það svo að verðmæti afl-
ans er áætlað á innflutningsskýrsl-
um, fiskurinn er seldur á uppboði
þannig að það hlýtur að mega bú-
ast við einhverju misræmi. Mál
þetta gæti reynst íslenskum fiskút-
flytjendum þungt í skauti. Hér er
um háar upphæðir að tefla og full
ástæða til þess að forðast stórar yf-
irlýsingar meðan rannsókn stendur
enn yfir.
Að sögn kunnugra er hér ekki
um neins konar misferli að ræða af
hálfu útflytjenda, þeir töldu sig
hafa gert samkomulag við tollayf-
irvöld í Immingham og Grimsby
um ákveðið viðmiðunarverð sem
fyrst og fremst var ákveðið til þess
að einfalda málið, því það liggur í
augum uppi að ekki er hægt að
segja fyrir um verðmæti fisks sem
seldur er á uppboði. Það ætti því að
vera tiltölulega einfalt mál að leið-
rétta það misræmi sem orðið var
milli þessa fasta viðmiðunarverðs
og hins sem fékkst fyrir fiskinn á
markaðnum. Það ætti ekki að þurfa
að ýja neitt að lögbrotum í þessu
sambandi.
Þessa mynd tók Ijósmyndari blaðsins þegar vetur konungur gekk í garð. Hann hefur læst sinni köldu hönd um
trén í skrúðgarðinum.
FaUþungi
Nýtt
skip
Fljótlega eftir helgina er búist
við að komi til heimahafnar á
ísafirði skip sem Rækjuverk-
smiðjan í Hnífsdal hefur fest
kaup á. Hér er um að ræða skip
sem heitir Heimir og er frá
Keflavík, þetta er 190 tonna
skip sem verksmiðjan hyggst
gera út til rækjuveiða.
Skipstjóri verður Stefán Þór
Ingason frá Hnífsdal.
Sauðfjárslátrun er nú fyrir
nokkru lokið á vegum Kaupfélags
ísfirðinga. Alls var slátrað 9.782
dilkum á vegum Kaupfélagsins. Þar
af á Hólmavik 2.887 og á ísafirði
6.895. Meðalþyngd var 16.41 kg.
Þyngsti dilkur einstaklings var 29.8
kg., eigandi Birkir Friðbertsson
Birkihlið.
Hæsta meðalvigt hjá einstökum
bónda var 20,83 kg. Það var Sigur-
geir Jónsson í Engidal. Ekki vitum
við hér á blaðinu hvaða aðferðum
Sigurgeir beitir en trúlega er þetta
með því hæsta sem þekkist. Jens
Ólafsson kaupfélagsstjóri sagði í
viðtali við Vf að slátrunin hefði
gengið í alla staði vel, og vildi taka
sérstaklega fram vegna blaðaskrifa
sem orðið hefðu í upphafi slátur-
tíðar um slaka umgengni kringum
sláturhús K.Í., að hann teldi að
tekist hefði að ráða bót á því sem
miður fór. Hann sagði að sér hefðu
ekki borist neinar kvartanir í þetta
skipti.
VKSTIIRSKA FRETTABLAÐIÐ
10 ÁRA
Sjá nánarl umfjöllun á innsíðum