Vestfirska fréttablaðið - 21.11.1985, Blaðsíða 1
PURVEYOR TO HER MAJESTY THE QUEEN OF DENMARK
BING & GR0NDAHL
VÖRURNAR ERU KOMNAR:
+ Jólaplattinn * Jólabjallan * Jólahjörtun
ásamt mávastellinu og fleiru og fleiru
íiÉi 1 Sincirffudfc/insson k
gbo^ Í>,mí 1200 - tflS Solumju’iOík
Þessa mynd tók Vf. á sunnudag þegar veðrið var hvað verst. Glöggt má sjá að veðurhæðin var afskapleg.
Slapp naumlega
— Bíll lenti útaf á Óshlíð
og eyðilagðist
Ungur maður barg Iffi sínu með
ótrúlegu snarræði síðastliðið föstu-
dagskvöld, þegar bifreið hans lenti
út af veginum á Óshlíð.
Maðurinn var á leið út í Bolung-
arvík frá Isafirði þegar hann missti
stjóm á bifreið sinni og lenti hún út
af veginum. Á síðustu stundu tókst
ökumanninum að varpa sér út úr
bílnum og komast þar með ó-
meiddur úr þessum hildarleik. Bif-
reiðin fór niður i fjöra og er gjöró-
nýt.
Eins og myndin ber með sér
hefði ökumaður varla sloppið heill
á húfi ef hann hefði orðið bifreið-
inni samferða niður í fjöru.
Skemmdir á mamrvirkjum
— en engin slys á fólki í aftakaveðri sem gekk
yfir Vestfirði um helgina
Rysjótt veður hefur verið á Vest-
f jörðum að undanförnu og verst var
það um helgina þegar aftakaveður
af suðvestri gekk yfir fjórðunginn.
Olli veðrið talsverðum skemmdum
á mannvirkjum. en ekki er kunnugt
um að slys hafi orðið á mönnum.
Telja elztu menn að hér sé um að
ræða eitt versta veður sem gengið
hefur yfir Vestfirði sfðan haustið
1936.
I Hnífsdal urðu skemmdir á
hesthúsum og vélageymsla sem
stóð rétt við húsin fauk í heilu lagi á
haf út. Skemmdir urðu bæði á
húsum og bílum vegna fjúkandi
fiskikassa og einnig losnuðu plötur
af nokkrum húsum og stafaði af
þeim nokkur hætta. 16 feta plast-
bátur sem stóð í garði eiganda síns
við Miðtún á Isafirði hvarf út í
veður og vind og hefur ekki fundist
af honum tangur né tötur. Skúr við
Grænagarð fauk um koll og
skemmdist.
Ríllinn er illa útleikinn eftir ferðina niður hh'ðina.
Þingeyri:
Tveír bátar sukku
í óveðrinu sem var nú í síðustu
viku og um helgina, losnuðu tveir
bátar frá bryggju á Þingeyri, og eru
þeir taldir ónýtir.
Það voru bátarnir Stígandi 1,5
tonn og Dýrfirðingur 6 tonn sem
losnuðu frá bryggju með þessum
afleiðingum. Bátarair voru báðir
bundnir utan í aðra báta, og mun
festin hafa losnað í hamagangin-
um. Bátana rak báða upp í fjöru og
brotnuðu þar mélinu smærra.
Að sögn Bjama Einarssonar á
Þingeyri eru báðir bátamir það illa
famir að þeir verða að teljast geró-
nýtir.
Mlssti tvö
skrúfublöð
— Framnes IS í hrakningum
Framnes ís frá Þingeyri varð
fyrir áfalli á sunnudagsmorgun.
Talið er að annað af svokölluð-
um slingubrettum hafi losnað
undan skipinu og farið í skrúf-
una. Brotnaði skrúfuhringurinn
af og sömuleiðis 2 skrúfublöð.
Þetta skeði um kl. 9 á sunnu-
dagsmorgun í aftakaveðri, var
vindurinn 10 til 13 vindstig eftir
lýsingum að dæma og heldur
hvassari í hryðjunum. Rak
skipið stjómlaust undan veð-
rinu uns hjálp barst um kl. 15.
Var það Sléttanesið frá Þingeyri
sem kom Framnesinu til að-
stoðar og dró það til hafnar.
Komu skipin til hafnar á Þing-
eyri kl. 20.00 á mánudagskvöld
eftir langt og strangt ferðalag í
vonskuveðri. „Svona er sjó-
mannslífið", sagði Bjami Ein-
arsson útgerðarstjóri á Þingeyri
í viðtali við blaðið, „það er
stundum meira en að labba upp
á skrifstofu og sækja kaupið
sitt.“ Þrátt fyrir þessa hrakninga
taldi Bjami að þeir hefðu ekki
verið i neinum lifsháska, þetta
væm traustbyggð skip sem
þyldu vel fangbrögð Ægis.
Sléttanesið hélt rakleiðis til
veiða á ný en að sögn Bjama
hefur ekkert verið ákveðið hvar
eða hvenær Framnesið fer í
slipp. Bjami sagði að þrátt fyrir
þetta áfall myndu skip Kaupfé-
lags Dýrfirðinga klára sinn
kvóta á árinu. Hann sagði að
kvótinn dygði tæplega. Þannig
hefði Sléttanesið verið að koma
af veiðum fyrir Hafnfirðinga.
Skipstjóri á Framnesi í þessari
veiðiferð var Skúli Elíasson.