Frjáls Palestína - 01.06.2007, Blaðsíða 1
FRJÁLS PALESTÍNA 1
PALESTÍNA
Frjáls
Forsætisráðherra á að hafa sagt, að spurður um tillögu Valgerðar
Sverr isdóttur að viðurkenna lögleg og
lýðræðislega kjörin stjórnvöld í Palestínu,
að hann sé nú ekkert hrifinn af Hamas.
Nú geri ég ráð fyrir að þetta hafi verið
sagt í hita leiksins hjá Kosninga-Agli.
Geir Haarde hafði verið í samtali við
Egil í Silfrinu á lokadegi landsfundar
Sjálfstæðisflokksins og mæltist þá á allt
annan og jákvæðari hátt um Palestínu
sem hann vildi að Ísland hefði gott
samband við.
Varla ætlar forsætisráðherra að láta
það ráða afstöðu sinni til stjórnmála-
sambands við einstök ríki, hvort honum
líki við flokka eða einstaklinga þar um
slóðir. Kann Geir Haarde vel við Pútin
eða Bush? Er hann hrifinn af kínverska
kommúnistaflokknum? Ef ekki, ætlar hann
þá beita sér gegn stjórnmálasambandis
Ísland við Rússland, Bandaríkin og
Kína? Varla.
Annað mál er, að það er engan veginn
jafnaðarmerki á milli Hamas-samtakanna
og palestínsku stjórnvaldanna. Þar er
sannanlega þjóðstjórn við völd sem ekki
einasta stærstu stjórnmálaöflin, Fatah
og Hamas, hafa sameinast um, heldur
líka smærri flokkar á löggjafarþinginu,
þannig að bókstaflega öll stjórnmálaöfl á
herteknu svæðunum hafa lagt grunn að
réttnefndri þjóðstjórn.
Það var skömm að því að Vesturveldin
skyldu veita Ísraelsstjórn liðsinni í að
einangra Palestínu, pólitískt og efna-
hagslega, eftir kosningarnar í janú ar í
fyrra, vegna þess að mönnum líkuðu
ekki úrslitin. Kosningarnar höfðu þó
farið fram eins vel og kostur var við
aðstæður hernáms. Erlendir eftirlits-
aðilar, þar á meðal Jimmy Carter,
fyrrum Bandaríkjaforseti, gáfu þeim
hæstu einkunn og kosningaþáttaka
var góð. Úrslitin breyttu ekki miklu hjá
Ísraelsstjórn. Hún hefur hvort sem er
neitað að eiga viðræður við palestínsk
stjórnvöld um framtíð landsins. Allt frá
því að Sharon og síðar Olmert komust
til valda hefur það verið opinská stefna
Ísraels að ákveða einhliða málefni
hertekinnar Palestínu. Engu breytir hvort
Fatah eða Hamas eru við völd. Ekki var
rætt við Arafat. Það hefur hins vegar
auðveldað Ísraelsstjórn málin að Hamas
vann síðustu kosningar.
Ísraelsstjórn hefur fyrr og síðar
reynt að einangra Palestínumenn, gera
þeim ömögulegt að búa í landi sínu
og helst að gera þá útlæga. Stærstur
hluti palestínsku þjóðarinnar, yfir fjórar
milljónir eru flóttmenn. Úrslit kosninganna
í fyrra urðu Ísraelsstjórn verkfæri til að
auka enn á þjáningar Palestínumanna.
Skýrslur hjálpar- og mannúðarstofnana,
þar á meðal Sameinuðu þjóðanna eru
einróma í mati sínu á hörmulegu ástandi
á herteknu svæðunum, ástandi sem
versnaði enn frekar með viðskiptabanni
Ísraels og Vesturlanda.
Noregsstjórn hefur nú tekið frumkvæði
í að rjúfa einangrun Palestínu með því
að viðurkenna þjóðstjórnina tafarlaust og
aflétta viðskiptabanninu. Ísland á þegar í
stað að fylgja þessu fordæmi. Það væri
skerfur til mannúðar og friðar í landi sem
búið hefur við hernám í 40 ár.
Sveinn Rúnar Hauksson
læknir og formaður FÍP
[Greinin birtist upphaflega
í Morgunblaðinu]
Málgagn Félagsins Ísland-Palestína - 1. tbl. 18. árg. - Júní 2007
Eftir
Svein
Rúnar
Hauksson
Viðurkennum
þjóðstjórn Palestínu