Frjáls Palestína - 01.11.2010, Blaðsíða 8
8 FRJÁLS PALESTÍNA FRJÁLS PALESTÍNA 9
Nú standa enn og aftur yfir svonefnd-ar friðarviðræður milli Ísraela og Pa-
lestínumanna. Yfirlýstur tilgangur þeirra
og lokamarkmið er stofun ríkis fyrir Pa-
lestínumenn á svæði sem nemur um
22% af þeirra forna heimalandi. Þessar
viðræður, sem eru reyndar strand skv.
nýjustu fréttum, eru framhald af „friðarf-
erli“ sem hefur staðið í tæp 20 ár. Árang-
urinn er enginn og skal engan furða þeg-
ar horft er til þess hvernig til þeirra var
stofnað og raunverulegs tilgangs.
Ísrael er sá aðili sem hefur gengið að
samningaborðinu með þær kröfur að
þeim sé frjálst að halda áfram að ræna
landi og réttindum mótaðilans samtímis
því að menn eiga að ræða leiðir til friðar.
Þeir hafa fullan stuðning Bandaríkjanna,
jafnt Obama sem fyrri forseta, og geta því
sett ný og nú skilyrði. Það blasir því við
að það er enginn vilji til sátta og friðar hjá
þeim aðilum sem fara fram með þessum
hætti. Samt heldur þessi sjónleikur áfram
með nýjum og nýjum sirkusatriðum fram-
mi fyrir fjölmiðlum heimsins.
En það er fleira sem sýnir fáránleika
þessa ferlis. Kjarni þessa máls er sá
að öllum þjóðum og öllum mönnum eru
tryggð viss grundvallarmannréttindi í al-
þjóðasamningum og samþykktum Sam-
einuðu þjóðanna. Meðal þeirra er réttur
til búsetu, atvinnu, frjálsra kosninga og
frelsis til ferðalaga. Allt réttindi sem venj-
ulegur Vesturlandabúi telur sjálfsögð.
Palestíunumenn, um 10 milljónir manna,
hafa verið án þessara réttinda áratugum
saman. Þess er krafist af þeim að þeir
setjist að samningaborði til þess að semja
um þessi réttindi sem allir eiga að njóta
án þess að þurfa að semja um það sér-
staklega. Það liggja fyrir ítrekaðar sam-
þykktir frá S.Þ. að hernumdum svæðum
beri að skila og að flóttamenn skuli fá að
snúa til síns heima eða fá skaðabætur,
kjósi þeir það. Einnig er bannað að nýta
sér hernumin svæði og senda þangað
fólk til búsetu. Það er einnig bannað
að nýta náttúruauðlindir svæðisins fyrir
hernámsþjóðina. 550,000 Ísraelar hafa
sest að á Vesturbakkanum og lagt undir
sig land og vatnslindir. Ennfremur banna
þeir Palestínumönnum aðgang að landi
sínu með vegatálmunum og múrnum
margfræga. Í raun er málið ekki flókið.
Verði þess krafist af Ísraelum að þeir fari
að alþjóðalögum og samþykktum Sam-
einuðu þjóðanna, þá leysist ágreiningur-
inn í stórum dráttum. Eftirleikurinn fælist
í því að alþjóðasveitir mættu á svæðið og
hefðu eftirlit með því að Ísraelar virtu rétt-
indi Palestínumanna.
Fylkingar sem fjalla um málið
Þeir sem fjalla um þessar viðræður á op-
inberum vettvangi, jafnt fréttamenn sem
aðrir, skiptast í tvær fylkingar.
Önnur fylkingin, og þann hóp fylla nær
allir fréttamenn stærri fjölmiðla á vesturl-
öndum, skrifar um málið á þeim forsend-
um sem stjórnendur viðræðanna leggja
fram.
Í því felst að taka það gott og gilt að
Palestínumönnum beri að sitja við sam-
ningaborð og reyna að semja um réttindi
sem er ekki hægt að semja um. Ef Pa-
lestínumenn afsala sér ekki landi sínu að
stórum hluta, ef þeir fallast ekki á skert
ferða- og atvinnufreslsi og afsal á rétt-
indum flóttamanna þá verður enginn ár-
angur. Þá hafa þeir hafnað friði að mati
Ísraels og Bandaríkjanna. Þó eru bæði
þessi ríki aðilar að S.Þ. og hafa undir-
ritað marga alþjóðasamninga um réttindi
og skyldur ríkja. Og ennfremur er talið
eðlilegt að þeir sitji sem fastast við sam-
ningaborðið þótt mótaðilinn haldi áfram
að eyðileggja allar forsendur samning-
anna.
Þetta er sá sannleikur sem blasir við
en samt fjalla vestrænir fjölmiðlar um við-
ræður með þeim hætti að almenningur
skal trúa því að hér sé eitthvað jákvætt
á ferðinni. Mennirnir séu þó að talast við
og þá sé einhver von.
Hin fylkingin fjallar um málið út frá raun-
veruleikanum og segir satt og rétt frá.
Þessi hópur fjölmiðlamanna og skríbenta
á sér fyrst og fremst athvarf á netinu og
einstaka ljósvaka- og prentmiðlum. Þessi
hópur veit að tilgangur Ísraela er sá að
halda áfram að ræða frið og forsendur
hans samtímis því að þeir tryggja með
framferði sínu að friðurinn verður æ fjar-
lægari. Þessum hóp er ennfremur ljóst að
stefna Ísraelsstjórnar, zíonisminn, býður
ekki upp á annað en algjör yfirráð þeir-
ra yfir allri Palestínu. Friður og frelsi fyrir
Palestínumenn er því ekki viðfangsefni
Eftir
Hjálmtý
Heiðdal
Ferðasaga
frá Palestínu
í máli og myndum
Formaður félagsins, Sveinn Rúnar Hauks-son ferðaðist um Palestínu frá 19.
september til 3. nóvember 2010.
Fyrstu 10 dagana var hann á
Vesturbakkanum að meðtal-
inni Austur-Jerúsalem en 1.
október auðnaðist honum
að komast inn á Gaza-
svæðið eftir nokkrar tafir,
en upphafleg áætlun gerði
ráð fyrir að stoðtækjasmið-
ir á vegum Össurar Krist-
inssonar (OK Prosthetics)
ásamt Hauki Sveinssyni ritara
hópsins og SRH færu inn á svæðið
22. september. Eftir vikubið urðu þeir
frá að hverfa. Óskar Lárusson kom svo ein-
um mánuði síðar og smíðaði 21 gervifót á
18 einstaklinga, yngst var sjö ára stúlka.
Sveini hafði þá tekist að koma efninu inn á
svæðið frá Jaffa þar sem það var í geymslu.
Fyrri hluta ferðarinnar var að mestu varið
á sjúkrahúsum í Austur-Jerúsalem og Hebr-
on. Einnig átti formaður ásamt Hauki Sveins
fund með dr. Mustafa Barghouthi og
var tekið viðtal við hann. Lagt var
á ráðin um næstu heimsókn
dr. Mustafa til Íslands, en
utanríkisráðherra stend-
ur að því heimboði.
Dvölinni á Gaza-
svæðinu frá 1.-24. okt-
óber lauk óvænt með
því að landamærum
Egyptalands var lokað
fyrir Sveini. Hann var
bundinn á fundi hjá Aisha
en fór í fljótheitum suður til
Rafah til að kveðja félagana frá
Írlandi og aðra sem komið höfðu í
Viva Palestina bílalestinni. Leyfi fékkst
með vegabréfsáritun til að fara inn í
Egyptaland en þegar Sveinn ætlaði að
snúa til baka á Gazasvæðið sama kvöld
var lokað. Snemma næsta morgun var
hann beðinn um að bíða í 5 mínútur
sem urðu nærri fimm klukkustundir á
landamærunum Egyptalandsmegin en
Aðkoma að Gaza við Erez:
Leigubílastöðin er í um tveggja
km. fjarlægð frá afgreiðslu
ísraelsku landamæravarðanna.
Hár múr umlykur stöðina og
liggur í báðar áttir frá henni. Lægri
múrveggur umlykur gangveginn frá
landamærunum.
SRH með Mahmoud Zahar, einum helsta leiðtoga
Hamas-samtakanna í garðveislu til heiðurs Viva
Palestina á Gaza 22. okt. 2010.
Heimsókn í SOS barnaþorpið í Aqaba, Jórdaníu
Stefanía Khaliefeh, heiðurskonsúll Íslands í Jórdaníu,
er önnur frá hægri.
Að semja um hið
óumsemjanlega
Framhald á bls. 21