Frjáls Palestína - 01.11.2010, Blaðsíða 11

Frjáls Palestína - 01.11.2010, Blaðsíða 11
10 FRJÁLS PALESTÍNA FRJÁLS PALESTÍNA 11 þá var honum tilkynnt að hann fengi ekki að fara inn á Gaza. Egypsk stjórnvöld leyfðu það ekki og engin skýring fékkst. Formaðurinn stóð uppi nær auralaus og vantaði alla hluti til daglegs brúks nema myndavélar og tölvu sem voru í bakpokanum. Hann kom sér fyrir á ódýru hóteli í El Ariesh en peningar bárust ekki fyrr en tveimur vikum frá Íslandi, en tal- að hafði verið um í bankanum að það tæki tvo daga. Þá var Sveinn löngu far- inn norður á bóginn fyrir peninga sem bárust frá Gaza og tók það minna en klukkustund þrátt fyrir 50 km akstsur frá Rafah til El Ariesh. Hann átti síðan eftir að aka yfir 1000 km leið til að komast út úr Egyptalandi um Taba og inn í Eilat í Ísrael, algerlega athugasemdalaust. Síð- an inn í Jórdaníu til Aqaba og þaðan til Amman. Frá Amman var svo farið yfir Al- lenby/King Husseini-brúna 1. nóvember. Þá lenti Sveinn í 10 klst yfirheyrslu hjá leyniþjónustunni sem lauk með þeim úr- skurði að honum væri heimilt að vera í Ísrael næstu þrjá mánuði en mætti ekki fara inn á Gaza. Undarlegur úrskurður ef um var að ræða mann sem á ein- hvern hátt stofnaði Ísrael í hættu! Auð- vitað var ekki um það að ræða, heldur refsingu fyrir að eiga fundi með forystu- mönnum stjórnvalda á Gaza, forsætis- ráðherra og öðrum sem tilheyra Hamas. Amitai kapteinn í þeirri deild Ísraelshers sem sér um alþjóðasamtöl og erlenda ferðamenn til Gaza fékk ekki skýringu á banninu sem hernum fannst ástæðu- laust og hafði veitt Sveini leyfi. En Am- itai kapteinn taldi bannið komið til af því að Sveinn hefði verið að hitta leiðinlegt fólk á Gaza, einsog hann orðaði það. Það var heilmikið áfall að komast ekki aftir inn á Gaza. Sveinn var þar mitt í mörgum verkum. Eitt var Maríusjóðurinn, en ekki var búið að fullskipa stjórn hans og halda fyrsta fund til að ákveða hvert fyrsta styrktarverkefnið yrði. Þá var Sve- inn að vinna á fullu með samstarfsaðila okkar í Heilsustarfsnefndunum (UHWC) og var vart byrjaður í verkefnum með öðrum slíkum, það er Geðhjálparsam- tökunum. Sveinn var nýkominn í sam- band við læknadeild Íslamska háskólans sem er stærsti háskólinn á Gaza. Hann hafði verið þar í heimsókn í vikunni áður og hitt rektor háskólans að máli, fram- kvæmdastjóra alþjóðlegrar samvinnu, en fyrst og fremst forseta læknadeildar og samverkamenn hans. Samvinnuverkefni voru að komast á dagskrá. Háskólinn er mjög fallegur og vel útbúinn. Nánast allir prófessorar eru doktorar úr fræg- ustu háskólum Bandaríkjanna og Bret- lands og öll kennsla fer fram á ensku. Þannig mætti áfram telja og ekki síst var Sveinn hálfnaður við að eiga viðtöl við - og skoða alla þá sem fengið hafa gervifætur frá okkur og meta árangurinn. Stefnt er að áframhaldi á verkefninu, en Óskari tókst ekki einungis að smíða gerv- ifætur á 18 einstaklinga heldur kenndi hann tveimur fagkonum á Gervilimastöð- inni að smíða gervifætur með íslensku aðferðinni, aðferð Össurar. Hann skildi tækin eftir þannig að nú þarf einungis að koma efni til smíðanna á áfangastað. Morgunfundur á Al Mezan: Al Mezan sérgreinasjúkrahúsinu er rekið af hjónunum dr. Hazim Shelaldeh, konu hans Sahar Qawasmi kvensjúkdómalæknis og þingmanns Fatah samtakanna og tíu samstarfslækna þeirra, Sahar situr fyir enda borðsins. Auðvelt er að ganga beint inn á læknafundi því að allt fer fram á ensku og sjúkraskýrslur er á ensku. Vinafundir. Með dr. Sakaria Agha, leiðtoga Fatah og PLO á Gazasvæðinu: Dr Zakaria tók upphaflega á móti mér í maí 1990 og fór með mig um Gazsvæðið. Gervifætur til Gaza; Hér sést allur hópurinn sem flutti gervifætur til Gaza í september síðastliðnum, en varð frá að hverfa. Hópurinn er í heimsókn hjá dr. Hazim bæklunarskurðlækni og lækningaforstjóra Al Mezan sjúkrahússins í Hebron. Frá vinstri: Óskar Þór Lárusson, Johan Snyder frá Suður-Afríku, Sveinn Rúnar Hauksson, dr. Anton Jóhannesson frá Svíþjóð, Hazim Shelaldeh yfirlæknir og Haukur Sveinsson. Með Maurice Jacobsen, bandarískum kvikmyndagerðarmanni á Gaza. Maurice Jacosen er nú að leggja lokahönd á heimildarmyndina Inshallah Insallah, en hún verður sýnd í Bíó Paradís 9. desember nk. Maurice dvaldi um 13 mánaða skeið á Gaza við gerð myndarinnar. Hann er væntanlegur til landsins til að vera við sýningu myndarinnar. Gert er ráð fyrir umræðum um efni hennar að sýningu lokinni. Stefnt er að því að lokahönd verði lögð á gerð myndarinnar hér á Íslandi. Al Awda sjúkrahúsið: Al Awda (=rétt- urinn til heimkomu) sjúkrahúsið í Jabaliya flóttamannabúðunum er rekið af Heilsustarfsnefndunum, UHWC, sem er einn helsti sam- starfsaðili FÍP á Gaza. Al Awda er mikilvægasta sjúkrahús norður- svæðisins þótt ekki sé það í stærri kantinum. Þar er meðal annars eina kvensjúkdóma- og fæðingardeild norðurhluta Gaza og sinnir það um 360 þúsund manna byggð, þar af eru 150 þúsund manns í flóttamannabúðunum. Geysilegt álag var á sjúkrahúsinu í árásarstríðinu sem hófst þriðja í jólum 2008 og stóð í þrjár vikur með látlausum sprengjuárásum úr lofti, af landi og sjó. Gjörgæsludeild Al Awda sjúkrahúss- ins er staðsett á annarri hæð. Í þrjú ár hindruðu ísraelsk hernámsyfirvöld að lyfta kæmi á sjúkrahúsið sem búið var að greiða að fullu og öll gjöld. Þetta kom sér sérstaklega illa í árásarstríðinu um áramótin 2008 –2009 en þá varð að bera hina verst særðu upp á aðra hæð. Lyftan er nú komin. Þetta er aðeins eitt dæmi um hvernig ísraelsk stjórnvöld spilla fyrir allri þjónustu á Gaza, þar á meðal heilbrigðisþjónustunni. Eins var með fluoroskopiu, grundvallar röntgentæki sem fékkst ekki afgreitt gegnum Ísrael í meira en ár, þótt hún væri að fullu greidd.

x

Frjáls Palestína

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls Palestína
https://timarit.is/publication/1150

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.