Vestfirska fréttablaðið - 10.09.1987, Blaðsíða 7
6
ísafjarðarkaupstaður
Skóladagheimili
ísafjarðarkaupstaður óskar eftir að ráða for-
stöðumann á væntanlegt skóladagheimili.
Fóstrumenntun áskilin.
Einnig er óskað eftir að ráða fóstru eða að-
stoðarmann á sama heimili.
Upplýsingar um störfin veita dagvistarfull-
trúi eða félagsmálastjóri í síma 3722. Um-
sóknum ber að skila til undirritaðs fyrir 20.
sept. 1987.
Félagsmálastjóri.
Dagheimili - Leikskólar
Isafjarðarkaupstaður óskar eftir að ráða fóstr-
ur eða aðstoðarmenn í eftir taldar stöður.
Bakkaskjól: 50% staða e.h. laus 15. sept.
Eyrarskjól: 50% staða fyrir hádegi, laus 1.
október.
Staða afleysara með 50% kaup-
tryggingu, laus strax.
Hlíðarskjól: 50% staða eftir hádegi, laus
strax.
Upplýsingar um störfin veita forstöðumenn
viðkomandi heimila.
Heimilisþjónusta
Starfsfólk vantar nú þegar við heimilsþjón-
ustu.
Upplýsingar gefur félagsmálastjóri í síma
3722.
SLÁTURHÚS-
VINNA
Starfsfólk vantar nú þegar
til almennra starfa í sláturhúsi
Kaupfélags Dýrfirðinga
á Þingeyri.
Fœöi og húsnseði á staðnum.
Upplýsingar í síma 94-8200
og hjá sláturhússtjóra.
Kaupfélg Dýrfirðinga
Þingeyri
Meiraprófsbílstjórar
óskast
Atvinna
Vantar tvo meiraprófsbílstjóra á
vöruflutningabíla.
Geta hafið vinnu strax.
Vöruflutningar
Ármanns Leifssonar
(94) 7148 og 7548
Bolungarvík.
Róbert Á Schmidt:
Hitti í mark
— frásögn af starfi Skotveiðfélags Suðureyrar og fyrsta
mótinu í skotfimi sem haldið er á Vestfjörðum
UPPHAFIÐ
Skotveiðifélag Suðureyrar var
stofnað 24. ágúst 1986. Gengið var í
hús á Suðureyri og áhugi manna
kannaður og tókst að safna yfir 15
manns sem er lágmarksfjöldi til
þess að mega stofna deild úr Skot-
veiðifélagi Islands sem var stofnað
23. september 1978.
Skotveiðifélag Suðureyrar var
félagið látið heita og starfar það
algerlega sjálfstætt. Félagar borga
árgjald til Skotveiðifélags íslands
(SKOTVfS) og rennur það til
kostnaðar við útgáfu fréttabréfs og
fleira. Félagið hefur atkvæðisrétt
ásamt öðrum félögum innan
SKOTVÍS um ný lög um fugla-
friðun sem verið hafa til umræðu
hjá Alþingi. Félagið hefur verið
með nokkra fundi á síðasta hálfa
ári. Aðalfundur var haldinn 12.
apríl 1987 voru þar samþykkt lög
félagsins, stjórn kosin og nýir fé-
lagar teknir inn. Árgjald var á-
kveðið kr. 1.500. Félagið hyggst
reyna að fá aðstöðu til fundarhalda
og geymslu á uppstoppuðum dýr-
um en fram að þessu hafa fundir
verið haldnir í húsnæði Verkalýðs-
og sjómannafélagsins og í félags-
heimilinu á Suðureyri.
Stjóm félagsins er nú þannig
skipuð: Formaður er Róbert Á.
Schmidt, ritari Ellert Guðmunds-
son, gjaldkeri Þorsteinn Erlingsson,
meðstjómendur Grétar Schmidt og
Jón Víðir Njálsson. Endurskoð-
endur voru kjörnir Arnar Guð-
mundsson og Gunnlaugur Guð-
leifsson.
ÖNNURFÉLÚG
Fyrsta félagið sem stofnað var á
landsbyggðinni var Skotveiðifélag
Eyjafjarðar (SKOTEY) sem stofn-
að var 17. nóv. 1983, Skotveiðifélag
Suðureyrar (SKOTSÚG) stofnað
24. ágúst 1986, Skotveiðifélag
Reykjavíkur og nágrennis (SKOT-
REYN) stofnað 27. ágúst 1986 og
síðast Skotveiðifélag Þingeyrar,
stofnað á þessu ári.
SKOTVÍS stefnir að því að
stofna félög um alla landsbyggðina
til að tryggja og auka stétt skot-
veiðimanna á íslandi.
Á hverjum stað þarf minnst 15
manns til að stofnuð verði deild eða
aðildarfélag út frá SKOTVl'S.
Þeir sem áhuga hafa á stofnun
skotveiðifélags geta hringt í síma
6113 á Suðureyri og Róbert Á.
Schmidt mun gefa allar upplýsing-
ar um það hvernig beri að snúa sér í
þessum málum.
AF AFMÆLISMÓTI í STAÐAR-
DAL.
Afmælismót var haldið sunnu-
daginn 23. ágúst og var keppt í
skotfimi með 22 cal rifflum með
sjónauka.
Keppt var í þríþraut sem er í því
fólgin að hver maður fær að skjóta í
mark úr þremur mismunandi skot-
stöðum og 10 skot úr hverri stöðu á
50 metra færi. Skotstöðurnar eru:
liggjandi, hnéstaða og standandi.
11 keppendur voru skráðir en 9
tóku þátt og luku keppninni.
Samið var við bónda í Staðardal í
Súgandafirði sem góðfúslega veitti
leyfi fyrir keppninni. Félagið bjó til
tryggingarskjal þar sem félagið
skuldbatt sig til að bæta það tjón
sem kynni að verða á svæðinu á
meðan keppni stæði. Síðan var ná-
kvæmri skýrslu komið til lögregl-
unnar á ísafirði og þaðan til sýslu-
manns sem gaf endanlegt leyfi til
keppninnar með þeim fyrirvara að
lögreglan tæki út svæðið vegna
hættu sem af kynni að stafa.
Kl. eitt á sunnudag var síðan lagt
af stað á keppnisstað og voru
keppendur fullir tilhlökkunar.
Fresta varð keppninni um eina klst.
vegna veðurs. Það rigndi mikið en
síðan stytti upp og menn öxluðu
rifflana og gengu yfir tún og engi á
keppnisstað.
Fyrst var skotið úr liggjandi
stöðu og þegar Grétar Schmidt
hafði skotið var ljóst að hann hafði
forystuna. Síðan kom hnéstaðan og
Jón Víðir Njálsson hreinlega
burstaði keppinauta sína í þeirri
stöðu. Síðasta skotstaðan var
standandi en hún er erfiðust og
blótuðu menn gjarnan, en þar kom
Robert Schmidt einna skárst út. Og
hér koma stigin eftir röð.
Eftir keppnina var farið í sölu-
skála Esso og þar voru stigin reikn-
uð út eftir tvöföldu kerfi. Eftir að
úrslitin voru kunn birtist Sr. Karl
Matthíasson sóknarprestur og tók
hann það að sér eftir smáþrýsting
að afhenda verðlaunapeninga við
mikinn fögnuð viðstaddra. Á eftir
var boðið upp á kaffi og ræddu
menn það mikið sín á milli að hinn
eða þessi þyrfti nú að æfa sig betur
fyrir næstu keppni. Skotveiðifélag-
ið gaf glæsilegan farandbikar,
verðlaunapeninga og síðast en ekki
síst öll skotin sem notuð voru í
keppninni.
Ákveðið hefur verið að halda
rifflakeppni ár hvert og verið er að
athuga möguleika á haglabyssu-
keppni í skeet (leirdúfuskotfimi)
seinna meir.
Skotveiðifélag Suðureyrar.
Arnar Guðmundsson mundar riffilinn.
Frá verðlaunaafhendingu. Lengst til vinstri Sr. Karl Matthíasson sem afhenti
verðlaunin, þá Jón Víðir Njálsson sem varð í öðru sæti, fyrir miðju Róbert
Á Schmidt sem sigraði og lengst til hægri Grétar Schmidt sem varð þriðji.
vestlirska 1
iTTABUfllD
Keppendur í fyrsta móti í skotfimi á Vestfjörðum sem Skotveiðifélag Suðureyrar gekkst fyrir.
Efri röð frá vinstri: Arnar Guðmundsson, Sturla Eðvarðsson, Gunnlaugur Guðleifsson,
Þorsteinn Erlingsson og Ellert Guðmundsson.
Fremri röð frá vinstri: Hlynur Jónsson, Grétar Schmidt, Robert Á. Schmidt og Jón Víðir
Njálsson.
Skotið úr krjúpandi stöðu. Fremst á myndinni er EUert Guðmundsson. í
baksýn sjást Þorsteinn ErUngsson, Arnar Guðmundsson og Gunnlaugur
Guðleifsson.
10. skotinn var greinilegt að hann hafði forystuna. Síðan kom
hnéstaðan og Jón Víðir Njálsson hreinlega burstaði keppinauta sína
í þeirri stöðu, og svo síðasta skotstaðan var erfiðust, standandi án
stuðnings og blótuðu menn gjarnan eða blésu frá sér sí og æ. Þar kom
Róbert Schmidt skárst út. Keppninni lauk um 5.30 og hafði staðið
yfir í 4 tíma tæpa. Og hér koma stigin eftir röð.
1. sæti 30 skot á 50 m færi.
1. sæti Róbert Á. Schmidt
2. sæti Jón Víðir Njálsson
3. sæti GrétarSchmidt
4. sæti GunnlaugurGuðleifsson
5. sæti Sturla G. Eðvarsson
6. sæti Hlynur Jensson
7. sæti Ellert Guðmundsson
8. sæti Arnar Guðmundsson
9. sæti Þorsteinn Erlingsson
Efstir í hverri skotstöðu
Róbert Á. Schmidt
Jón VíðirNjálsson
Grétar Schmidt
Ligg. Hné Stand Samtals stig
79 90 65 234
76 101 53 230
95 64 61 220
87 69 27 177
63 42 49 154
69 60 Z'.f 149
53 63 31 147
59 50 26 135
40 19 31 90
Rifflateg.
65 Mauser
22 cal.
101 Bruno
22 cal.
95 Mauser
22cal.
7
Séð yfir Austurvöll þar sem fyrirhugað er að útisundlaugin verði.
Isafjörður:
„Meira að segja ána-
maðkarnir eru farnir“
— segir Fylkir Agústsson sem er ósammála áliti
Ingimundar Sveinssonar um útisundlaug á Austurvelli
„Við lítum ekki á þessa skoð-
un Ingimundar sem neitt loka-
svar í málinu. Sumt af því sem
hann nefnir eru pólitískar á-
kvarðanir bæjarstjórnar á Isa-
firði og því ekki hans fagsvið"
sagði Fylkir Agústsson í samtali
við Vestfirska fréttablaðið. Fylkir
er upphafsmaður þeirrar hug-
myndar að byggja útisundlaug á
Austurvelli, en Ingimundur
Sveinsson skipulagsarkitekt
ísafjarðarkaupstaðar hefur lýst
sig andvígan þeim ráðagerðum.
„Ég get ekki heyrt annað en fólk
hér í bænum sé mjög hlynnt þessari
hugmynd. Það sem Ingimundur
segir um væntanlega sundlaug á
Torfnesi í tengslum við nýtt í-
þróttahús er á áætlanastigi enn sem
komið er. Slík sundlaug yrði byggð
af bæjarsjóði og því pólitísk á-
kvörðun hvort af byggingu hennar
verður og hvenær".
Að sögn Fylkis er það samdóma
álit margra að sundlaug á Austur-
velli sé langsamlega hagstæðasti
kosturinn sem völ er á bæði fyrir
keppnisfólk í sundi og bæjarbúa
almennt. Slík sundlaug myndi nota
sama upphitunarkerfi og núver-
andi sundlaug, sama starfsfólk og
búningsaðstöðu og er því fremur
ódýr kostur miðað við nýbyggingu
á Torfnesi. Með uppsetningu heitra
potta og sólbaðsaðstöðu sem fylgja
myndu sundlauginni yrði Austur-
völlur útivistarsvæði sem nýtast
myndi fleirum en nú er .
„Ef leyfi fengist mætti byrja á
uppsetningu heitra potta í austur-
horni garðsins sem myndu nýtast
almenningi allan ársins hring"
sagði Fylkir. „Á þessu mætti byrja
strax á næsta ári, þó laugin sjálf
yrði ekki tilbúin fyrr en síðar.“
Þess má geta að aðsókn að
Sundhöll Isafjarðar/hefur stórauk-
ist síðan sett var app gufubað og
heitur pottur á síðasta ári. Mun
aðsóknin vera nálægt því að vera
30% meiri fyrstu 7 mánuði ársins en
á sama tíma í fyrra.
„Menn verða að gera það upp
við sig hvort þeir vilja bíða til
aldamóta eftir nýrri sundlaug á
Torfnesi eða hefjast handa á Aust-
urvelli strax. Vilja menn þá í fram-
tíðinni reka tvær sundlaugar í
bænum“ sagði Fylkir að lokum.
„Við erum meira að segja vissir
um að allir ánamaðkarnir eru
famir af Austurvelli, þeim er svo
illa við klórlyktina. Þeir eru sem-
sagt búnir að sætta sig við væntan-
lega sundlaug á Austurvelli“ sagði
Fylkir.
SIÐASTI DAGUR
UTSOLUNNAR
ER Á MORGUN
FÖSTUDAG
OG ENN
STORLÆKKAR
VERÐIÐ
4!
SRORTHLAÐAN h.f.
SILFURTORGI 1
400 ÍSAFIRÐI
SÍMI 4123