Vestfirska fréttablaðið - 27.02.1992, Síða 1
FIMMTUDAGUR
27. FEBRÚAR 1992
2. TBL. 18. ÁRG.
SÍMl 94-4011
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna fimmtíu ára:
Víðtæk afmælisveisla
og fímmþúsund og
fímmhundruð gjafír
— komið í heimsókn í Hraðfrystihúsið
Norðurtanga hf. á ísafirði
Á þriðjudaginn, þann 25.
febrúar, var haldið upp á
fimmtíu ára afmæli Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna.
Raunar var þetta með stærri
og víðtækari afmælisveislum
íslenskum sem sögur fara af,
því samtímis var haldið upp á
daginn hjá starfsfólki SH í
þrem heimsálfum, Evrópu,
Ameríku og Asíu.
Það var í síðdegiskaffinu
sem tíðindamaður Vestfirska
kom í kaffisal Norðurtangans
á Isafirði þar sem búið var að
slá upp afmælisveislu með
heljarstórum stríðstertum.
Þar vísaði Jón Páll Halldórs-
son gestinum til sætis með
Gromsurum og öðru góðu
fólki og lýsti fyrir viðstöddum
ástæðu veisluhaldsins.
Og hún er sú að það er
hvorki meira né minna en hálf
öld síðan fulltrúar fimmtán
hraðfrystihúsa komu saman
(miðvikudaginn 25. febrúar
1942 kl. 8 1/2e.h. einsogskrif-
að er í fundargerð), og undir-
rituðu stofnfundargerð Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsana.
Meðal þessara fyrirtækja voru
íshúsfélag ísfirðinga hf., ís-
húsfélag Bolungarvíkur og
Hraðfrystihús Flateyrar hf.
Fljótlega bættust svo átta
frystihús til viðbótar í hópinn
og gerðust stofnendur SH.
Þrátt fyrir allt umrótið í
sjávarútveginum á fslandi
kemur í ljós, að nokkur þess-
ara fyrirtækja eru enn í fisk-
vinnslu, þar af eru fjögur enn
framleiðendur hjá SH með
fulla félagsaðild, en það eru
íshúsfélag ísfirðinga, Miðnes
í Sandgerði, Hraðfrystihús
Ólafsfjarðar og íshúsfélag
Bolungarvíkur sem nú heitir
reyndar Einar Guðfinnsson
hf.
Ekki leið á löngu áður en
fleiri frystihús bættust í hóp
SH-fyrirtækjanna og þar á
meðal Hraðfrystihúsið í
Hnífsdal og Hraðfrystihúsið
Norðurtangi hf. á ísafirði, en
einn af starfsmönnum Norður-
tangans, Guðmundur M.
Jónsson, á einmitt álíka starfs-
aldur að baki í þessari grein og
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna.
í dag er Sölumiðstöðin
stærsta útflutningsfyrirtæki
landsins með um fjórðung alls
útflutnings og um 70 framleið-
endur á sínum snærum. Verð-
mæti afurðanna nam tæpum
20 milljörðum króna árið
1991.
Jón Páll Halldórsson framkvæmdastjóri mátar svuntu á Finnboga Hermannsson útvarpsstjóra
Svæðisútvarps Vestfjarða.
í tilefni afmælisins var
starfsfólki boðið til veislu í
frystihúsum SH um land allt.
Veislan var að því leyti
óvenjuleg að afmælisbarnið
færði gjafirnar. Um 5.500 af-
mælispakkar voru sendir til
starfsfólks 70 frystihúsa og
annarra framleiðenda víð-
svegar um land. Starfsfólk SH
í Bandaríkjunum, Japan,
Þýskalandi, Frakklandi og
Bretlandi, alls um 700, fengu
einnig gjafir sendar. Innihald
pakkanna er hugsað sem tákn-
ræn gjöf, eða eins og segir í
skilaboðum SH á öskjunum:
„Samstarf okkar er mikilvægt
og það viljum við þakka. Öll
erum við hlekkir í keðju, sem
gerir fiskinn okkar að verð-
mætri vöru. Störfin eru mörg
og heima bíða eldhúsverkin að
kvöldi dags. Þau verða auð-
veldari, þegar rétt er að
staðið. Til þess er smágjöfin
ætluð. Hún er tákn um verks-
vit okkar beggja, passar á
flesta heima og gerir samstarf-
ið í eldhúsinu virkara".
Þegar starfsfólkið í kaffi-
salnum í Norðurtanganum
opnaði sína pakka kom í ljós
forláta eldhússvunta og spil.
Og til að sannreyna það sem
stóðu utan á, að þetta passaði
á flesta, þá stóð Jón Páll Hall-
dórsson upp og hnýtti svuntu
á Finnboga Hermannsson út-
varpsstjóra Svæðisútvarps
Vestfjarða \tið góðar undir-
tektir viðstaddra.
HK
Guðmundur M. Jónsson fyrir miðri mynd ásamt starfsmanni og
framkvæmdastjóra Norðurtangans.
Starfsstúlkur Norðurtangans með afmælispakkana sína.
Gönguhrólfar í Holta-
hverfí á laugardag
GÖNGUHRÓLFAR hinir isfirsku verða enn á ferðinni á
laugardaginn (hlaupársdag) — ef veður leyfir, vel að
merkja. Nú verður gengið um Holtahverfið og ef til vill
eitthvað fram Dagverðardalinn, undir leiðsögn Guðmund-
ar Einarssonar vélstjóra frá Fagrahvammi, sem er flestum
kunnugri á þessum slóðum hinna yngri manna.
Lagt verður af stað frá Ljóninu kl. 13.30. Allir eru vel-
komnir að slást í förina.
Jón Þór Jóhannsson
sýnir teikningar
í Slunkaríki
Á LAUGARDAGINN, hlaupársdaginn 29. febrúar kl.
16.00, verður opnuð í Slunkaríki á ísafirði sýning á teikn-
ingum Jóns Þórs Jóhannssonar. Á þessari fyrstu einka-
sýningu Jóns Þórs verða um 40 smáteikningar, gerðar
undanfarin tvö ár. Teikningarnar eru gerðar að mestu með
tússi. Ýmist eru þær stakar eða þeim raðað saman í
myndasögur og þemaraðir.
Slunkaríki er opið í viku hverri frá fimmtudegi til sunnu-
dags kl. 16-18. Sýningu Jóns Þórs lýkur sunnudaginn 15.
mars.
Kúttmagakvöld í Félags-
heimilinu í Hnífsdal
Árlegt kúttmagakvöld Lionsklúbbs ísafjarðar verður
haldið í Félagsheimilinu í Hnífsdal laugardaginn 29.
febrúar. Húsið verður opnað kl. 19.00.
Rútuferðir verða til og frá Félagsheimilinu og verður
ekið hefðbundna strætisvagnaleið. Lagt verður af stað úr
Stórholti kl. 18.45.
Þeim sem ekki hafa þegar skráð sig er bent á að hafa
samband:
Ernir Ingason, s. 3696, vs. 3744. HeiðarGuðmundsson,
s. 3277, vs. 3211. Kristinn Haraldsson, s. 4740, vs. 4758.
Magnús Guðmundsson, s. 4046, vs. 3611.
Öllum fullveðja karlmönnum er heimil þátttaka meðan
húsrúm leyfir.
Lionsklúbbur ísafjarðar.
Rafþjónusta Raftækjasala Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki
SALA & ÞJONUSTA
©
PÓLLINN HF.
Verslun 3092