Vestfirska fréttablaðið - 13.05.1992, Side 1
MKMKUDAGUR
13. MAÍ 1992
13. TBL. 18. ÁRG.
SIMI944011
Rafþjónusta Raftækjasala Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki
Sauðburður er hafinn af
fullum krafti á Ströndum. Þeg-
ar blaðamaður var þar á ferð
um helgina leit hann í fjárhús-
in hjá Guðbirni Jónssyni,
bónda á Broddanesi, og tók
þessa mynd af nýborinni á.
Ærin karar lamb og annað ný-
borið er aftan við hana og
skömmu síðar bar hún þriðja
lambinu. Sagði Guðbjörn
bændur fá lítinn svefn næsta
mánuðinn því þeir þyrftu að
vaka yfir sauðburðinum. Ef
það væri ekki gert sam-
viskusamlega lánaðist burður-
inn ekki vel.
SALA & ÞJONUSTA
PÓLLINN HF.
Verslun ‘S13092
Þessa sögulegu mynd tók Hörður Kristjánsson á ísafjarðarflugvelli á laugardaginn: Síðasta Fokker F-27 vél Flugleiða í síðustu
áætlunarferð sinni út á land. Framan við vélina stendur þriggja manna áhöfn hennar með hlómvendi ásamt þremur starfsmönnum
Flugleiða á Isafirði. Frá vinstri: Björgvin Björgvinsson, Þorsteinn Guðmundsson flugmaður, Kristján Harðarson flugstjóri, Sturla
Bragason flugþjónn, Finnbogi Sveinbjörnsson og Guðmundur Stefánsson.
Frónfari, síðasta Fokker
F 27 flugvél Flugleiða, lauk
þjónustu sinni í innanlands-
fluginu síðastliðinn iaugardag.
Vélin lenti á Isafjarðarflug-
velli flmmtán mínótur yfir
flmm síðdegis, og síðan fór
hún einn hring í kveðjuskyni í
lágflugi yfir kaupstaðinn og
flugbrautina, þegar hún hélt á
brott um sexleytið.
Frónfari er sú vél Flugleiða
af Fokker gerð, sem lengst
hefur þjónað í innanlandsflug-
inu. Nú eru liðin nær þrjátíu
ár frá því að vélin fór í sína
fyrstu áætlunarferð, og að
sögn Flugleiðamanna á hún að
baki um sex lendingar að með-
altali á dag þessi þrjátíu ár.
Flugstjóri í þessari síðustu
áætlunarferð Frónfara var
Sauðburður hafínn
af fullum krafti
á Ströndum
FULL BUÐ AFHJOLUM
— ALDREIBETRA VERÐ —
Gott úrval af varahlutum
JFE Byggingaþjónustan
Bolungavík Sími 7353
Flonum til aðstoðar á Fokk-
ernum á laugardaginn var Þor-
steinn Guðmundsson flug-
maður ásamt Sturlu Bragasyni
flugþjóni.
Við brottförina frá ísafirði
færðu starfsmenn Flugleiða á
Isafirði áhöfninni blómvendi,
en áhöfnin kvaddi með því að
fljúga einn hring í lágflugi yfir
kaupstaðinn og flugvöllinn.
Tuttugu og fimm farþegar
voru með vélinni í þessu síð-
asta flugi til Rcykjavíkur, cn
þar fer hún í nokkurra daga
skoðun. Þaðan verður síðan
flogið til Hollands, en Fokker
verksmiðjurnar taka hana sem
greiðslu upp í kaupin á nýju
vélunum.
Og þeir flugu lágflug yfir völl-
inn í kveðjuskyni.
Kristján Harðarson sem þekk-
ir vel til staðhátta vestra, enda
alinn upp ef svo má segja, hjá
flugfélaginu Erni á ísafirði.
Einkum ferða-
málin á næstunm
— segir Gunnar Jóhannsson, nýkjörinn
formaður Fjórðungssambands Y estfirðinga
Þing Fjórðungsambands
Vestfirðinga var haldið á
Isafirði nú um síðustu
helgi. Formaður FV var
kjörinn Gunnar Jóhanns-
son, hreppsnefndarmaður
á Hólmavík. Vestfirska
hafði samband við Gunnar
og spurði hann um verkefni
Fjórðungssambandsins í
náinni framtíð.
„Það eru þessi verkcfni
sem við höfum vcrið að
vinna að og ferðamálin sem
við komum til með að
styrkja. Við ákváðum á
þinginu að styrkja Ferða-
málasamtök Vestfjarða við
að ráða ferðamálafulltrúa.
Það er verkefni sem tekur
æði mikið af fjármunum
Fjórðungssambandsins.
Atvinnuráðgjafi er inni á
okkar verkefnalista líka og
við munum hugsanlega
taka við rekstri hans. Þetta
eru mál sem við eigum eftir
að semja um við Byggða-
stofnun.
Það standa fyrir dyrum
miklar breytingar í sveitar-
stjórnarmálum á Vest-
fjöröum, og reyndar land-
inu öllu, og þá helst sam-
einingarmál sveitarfélaga.
Eg reikna með að Fjórð-
ungssambandið komi til
með að starfa mikið að
þeim. Þetta eru helstu mál
sem unnið verður að.
Önnur hefðbundin mál eru
þau að viö komutn fram
fyrir sveitarfélögin á svæð-
inu“, sagði Gunnar.
Varðandi það hvort
tímabært væri að leggja
Fjórðungssambandið
Nýkjörinn formaður,
Gunnar Jóhannsson, á tali
við Eirík Finn Greipsson í
þinghléi á laugardaginn.
niður, eins og hefur verið í
umræðunni, sagði Gunnar:
„Það tel ég engan vcginn.
Ef sameinað verður á þessu
svæði þá fækkar sveitarfé-
lögum verulega og ein-
ingarnar verða stærri. Þau
þurfa samt sem áður að
hafa sér einhvern samnefn-
ara til að koma fram út á
við fyrir þeirra hönd. Eg
held að enginn sé betur til
þess fallinn en Fjórðungs-
sambandið."
Aðspurður um hvernig
honum litist á að takast á
við formennskustarfið,
sagði Gunnar: „Eg er
hræddur um að þetta geti
orðið dálítið erfitt en ég
hlakka til þess að takast á
við þetta verkefni. Egreyni
að gera mitt besta þessi tvö
ár sem ég er kjörinn til for-
mennsku í Fjórðungssam-
bandi Vestfirðinga.“
-GHj.
Síðasti gamli Fokkerinn kveður
— lauk ferli sínum í innanlandsfluginu sl. laugardag
eftir nær 30 ára dygga þjónustu
-GHj.