Vestfirska fréttablaðið - 04.06.1992, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 4. JUM 1992
16. TÖLUBLAÐ • 18. ÁRGANGUR
YESTFIRSKA
RITSTJORN OG AUGLVSINGAR:
SÍMI 94-4011 • FAX 94-4423
I SALA & ÞJÓNUSTA PÓLLINN HF.
1 PÓLLINN HF Verslun S 3092
Þau voru á mcðal veislugesta á Hótel ísafirði. Frá vinstri: Cuðfinna Halldórsdóttir, Hulda Pálmadóttir, Jón Páll Halldórsson,
Guðmundur Guðmundsson og Margrét Gísladóttir.
Saltfiskpönniikökur, saltfiskroð
— og matardiskurinn með heim!
Efnt var til saltfiskveislu á
Hótel ísafirði á þriðjudags-
kvöldið. Tilefnið er 60 ára af-
mæli Sölusambands íslenskra
fiskframleiðenda (S.Í.F.)
núna í sumar, en spánskir
meistarakokkar og Rúnar
Marvinsson matargerðar-
snillingur fara um landið og
töfra fram hina fjölbreytileg-
ustu rétti úr saltfiski á völdum
veitingastöðum um þessar
mundir, í samvinnu við kokk-
ana á hverjum stað.
Naglasúpan margfræga kom
reyndar upp í hugann, þegar
hver rétturinn öðrum betri (og
allir gerólíkir hver öðrum)
voru bornir fram, og allir úr
saltfiski. Á sínum tíma þótti
undrum sæta þegar svo mikil
og góð súpa var soðin af aðeins
einum nagla, en nú var saJt-
fiskur kominn í stað naglans,
og árangurinn ekki síðri!
Hér skal getið spænskra
rétta sem fram voru bornir:
Djúpsteikt saltfiskroð, salt-
fiskfingur, saltfiskkæfa, salt-
fisk-eggjakaka, grænmetis-
súpa með saltfiskbollum,
pönnukökur í rækjusósu, fyllt-
ar með saltfisk og tómat, salt-
fiskur á grænni sósu og salt-
fiskterta á la S.Í.F. Sá eini af
þessum réttum sem minnti
undirritaðan verulega á gamla
góða íslenska saltfiskinn
heima í Mosfellssveitinni var
sá næstsíðasti, hér var bara
komin græn sósa og grænmeti
og kruðirí í staðinn fyrir flotið
og kartöflurnar. Að auki var
svo sangría og sítrónukrapís,
en f þeim réttum var ekki salt-
fiskur.
Snætt var af forláta matar-
diskum sem S.Í.F. hafði látið
búa til af þessu tilefni, með
mynd af gulum saltfiski og
áletruninni BACALAO IS-
LANDIA -1932-SÍF-1992.
Að loknum uppþvotti fékk
síðan hver gestur sinn disk til
að hafa heim meðsér til minja.
Ekki er undirrituðum grun-
laust um að þessi skemmtilega
gjöf hafi valdið því að sumum
gestunum dvaldist nokkuð á
Hótel ísafirði eftir málsverð-
inn; a.m.k. hafði hann sjálfur
af því áhyggjur, hvernig við
skyldi bregðast ef pólitíið ætti
leið hjá í þann mund sem hann
kæmi út af hótelinu með sælu-
svip á andlitinu og áletraðan
matardisk í hendinni.
Sem betur fer reyndust þær
áhyggjur ástæðulausar.
Við upphaf málsverðarins
ávarpaði Guðmundur Páll
Einarsson úr Bolungarvík
veislugesti og bauð þá vel-
komna. Hann rakti síðan að-
draganda að stofnun S.Í.F.
fyrir sextíu árum, en það voru
hinir miklu erfiðleikar sem þá
voru í sölumálum saltfisks.
Það kom fram í máli Guð-
mundar Páls, að árið 1930 var
talið mesta aflaár íslandssög-
unnar til þess tíma. í árslok
voru miklar saltfiskbirgðir í
landinu og síldveiði auk þess
góð, en verðfallið á flestum
sjávarafurðum svo ægilegt að
heita mátti að útgerð lands-
manna væri í molum um ára-
mótin. Margir útgerðarmenn
og fiskverkendur töpuðu
offjár, og þeir sem mestan
höfðu aflann töpuðu mestu.
Ástandið átti þó eftir að
versna á árinu 1931. Sá glund-
roði sem skapaðist leiddi síðan
til stofnunar SÍF árið eftir.
Samkvæmt lögum SÍF er til-
gangur sambandsins að selja
saltfisk og stuðla að vöruvönd-
un og þróun nýrra afurða.
Undanfarin ár hefur SÍF ár-
lega selt saltfisk fyrir 300-400
félagsmenn. Framleiðslan hef-
ur verið um 50-60 þúsund
tonn árlega og 30-40% þorsk-
afla íslendinga farið í salt.
---------------------------------
Vatnslitamyndir
Guðmundar Thoroddsen
á Hótel ísafirði
Þessa dagana stendur sterdam á árunum 1976-
yfir sýning á 18 vatnslita- 85. Hann hefur margsinnis
myndum eftir Guðmund sýnt verk sín, bæði hér
Thoroddsen í aðaisölum á heima, í Danmörku, Hol-
neðstuhæðinniáHótellsa- landi og Frakklandi.
firði. Myndirnar eru allar
Guðmundur Thoroddsen gerðar á Ísafirði á þessu ári
stundaði myndlistarnám í og fjallar myndefnið um
Reykjavík, Parfs og Am- hafið.
Titringur
í Bolungarvik
Vcstfirska hefur frégnað Viðræður fóru fram milli
að um þessar mundir sé Samstöðu og krata og náð-
mikill titringur í méirihluta ist ekki samkomulag um
krata og sjálfstæðismanna nýjan meirihluta. Kratar
f bæjarstjörn Bolungarvík- héldu síðan fund með sínu
ur. Hafi kratar óskað eftir ftílki og þar var ákveðið að
formlegúm viðræðum við styðja óbreyttan meiri-
minnihluta bæjarstjórnar hiuta. Vestfirska hefur
sem skipaður er þrentur staðfestar fregnir af því að
fulltrúum Samstöðu, lista mikil óánægja sé nú í
vinstrimanna. Meirihlutinn röðum krata með núver-
hins vegar samanstendur af andi meirihluta.
þremur fulltrúum sjálf-
stæðismanna og einum
krata.
Rafþjónusta Raftækjasala Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki
Kokkarnir skera saltfiskterturnar, eftir að slökkt hafði
verið í einskonar eldvörpum sem á þeim voru gjósandi þegar
þær voru bomar í salinn. Rúnar Marvinsson grallaralegur á
svipinn og Sigurgeir Sigurgeirsson. Auk þeirra önnuðust mats-
eldina þeir Florencio Martinez og Þorfinnur Þorfinnsson.
Róið og beitt
af kappi á Agli B A
Páll Líndal, sjómaður á
Patreksfirði, beitir af kappi
eins og sjá má hér á mynd-
inni. Páll er skipverji á Agli
BA og stundar bæði sjóinn
og beitningar í landi.
Myndin var tekin á laugar-
dagskvöldi þegar Egill BA
var á ieið út, en Páll varð
eftir í landi til aö beita.
Að sögn Páls róa þeir
alla sjö daga vikunnar þeg-
ar gefur, með 48 Itnubala.
Egill var nýkominn úrslipp
á Skagaströnd og hafði
bara farið einn róður og
fengið tæp fimm tonn.
En skyldi hann Palli vera
búinn að beita línu sem nær
til Japans og heim aftur
eins og elstu og reyndustu
beitningarmenn á Vest-
fjörðum hafa gert, margir
hverjir?
-GHj.