Vestfirska fréttablaðið - 09.07.1992, Qupperneq 1
ry IÞROTTA-
4 ** KÁLFUR
j WFIRSKA
Settu þér takmark
og náðu því á asics
Sportbúð Kópavogs
C-Gíróþjónusta s. 91-641000
Meistaramót Golfklúbbs Isafjarðar:
Sigurður Samúelsson
sigraði í meistaraflokki
Meistaramót Golfklúbbs Isafjarðar var haldið dagana
1.-4. júlí. Keppt var í ðflokkum. í karlaflokkumvoruleiknar
72 holur en I flokkum unglinga og drengja og kvenna voru
leiknar 36 holur. Sigurvegari í 1. flokki karla og jafnframt
ísafjarðarmeistari varð Sigurður Samúelsson sem fór á
318 höggum. Úrslit urðu annars þessi:
Unglinga- og drengjaflokkur:
1. Atli Atlason 175 högg
2. ÓmarF. Ómarsson 190-
3. Jóhann G. Jóhannsson 223-
Kvennaflokkur:
1. Valgerður Jónsdóttir 226-
2. Margrét Guðnadóttir 3. Il.karla: 1. Rúnar Vífilsson 227-
2. fl.karla:
l.GylfiSigurðsson 335-
2. GunnarSigurðsson 360-
3. Egill Sigmundsson l.fl.karla: 364-
1. Sigurður Samúelsson 318-
2. Kristinn Kristjánsson 334-
3. PéturH.R. Sigurðsson 340,
Næstu mót eru J.Ó.D.-mótið 11.-12. júlí (36 holur) og
Opna BB-mótið 18.-19. júlí (36 holur).
Knattspyrnan
um helgina
Það má segja að skipst hafi á skin og skúrir í heimi knatt-
spyrnumanna um helgina. Þá kepptu 3. flokkur drengja, karla-
lið og kvennalið BI í meistaraflokki, bæði í 2. deild, og meistara-
flokkur UMFB í 4. deildinni.
3. flokkur drengja:
s
BI - Ægir 4:2
Á sunnudag kepptu BÍ og
Ægir í þriðja flokki drengja og
var leikurinn mjög fjörugiir og
skemmtilegur á að horfa. BI-
drengirnir voru heldur sterk-
ari aðilinn í leiknum og var
sigur þeirra fyllilega verð-
skuldaður. Þeir skoruðu 4
mörk á móti 2 mörkum Ægis-
manna. Þeir Örn Árnason
sem gerði tvö mörk, Pétur
(markmaður) Magnússon
(eitt) og Friðrik Guðmunds-
son (eitt) sáu um þá hlið mála
í þetta sinn.
Að sögn þjálfara liðsins,-
Péturs Guðmundssonar, var
þetta einn besti leikur strák-
anna í sumar og er þeim sífellt
að fara fram hvað varðar leik-
skipulag og meðferð knattar-
ins.
Það setti leiðindasvip á
þennan annars ágæta leik að
illa gekk að fá starfsmenn á
hann og þurfti að standa í tölu-
verðu stímabraki við fá menn
til að starfa við hann. Það end-
aði með því að Jóhann Torfa-
son tók að sér línuvörslu öðru-
megin og Pétur þjálfari liðsins
stóð hinumegin. Þetta er
óneitanlega neikvæð hlið á
þessum málum hvað illa
gengur að manna leiki í yngri
flokkum, ekki bara hér heldur
víða um land og það er fyllsta
ástæða til að hvetja foreldra til
að nema þessi fræði og taka að
sér þessi störf sem alvöru
knattspyrnumenn virðast ekki
hafa tíma til að sinna.
íþrótta- og æskulýðsráð ísafjarðar og íþróttabandalag ísafjarðar hafa ákveðið að efna til söfnunar fyrir Helgu Sigurðar-
dóttur, sundkonu.
Helga Sigurðardóttir hefur fyrst íþróttamanna ísafjarðar náð lágmarki til þátttöku á sumarólympíuleikum, og verður
meðal þátttakenda á leikunum í Barcelona nú í sumar.
Helga hefur um langt skeið stefnt að þátttöku í þessum leikum, og hefur tvö sl. ár verið við æfingar og nám í háskóla
í Bandaríkjunum. Hún hefur sjálf kostað sitt nám að öllu leyti án hérlendra styrkja.
Nú þegar þessum áfanga er náð, teljum við það skyldu okkar að styðja hana, enda hefur hún helgað sig sundinu í sumar,
og fer aftur til náms eftir leikana, og hefur því enga möguleika til öflunar tekna í sumar.
Á þessum leikum verður Helga Sigurðardóttir nokkurs konar fulltrúi ísafjarðar, og því teljum við það skyldu okkar að
leita eftir stuðningi almennings og fyrirtækja. Nú næstu daga verður leitað til fyrirtækja, og almenningi gefinn kostur á
að styðja hana með því að leggja beint á ávísanareikning nr. 1001 í íslandsbanka á ísafirði.
F.h. íþróttabandalags ísafjarðar, F.h. íþrótta- og æskulýðsráðs,
Gylfí Guðmundsson, formaður. Björn Helgason, íþróttafulltrúi.
Helga Sigurðardóttir
hefur um langt skeið verið
ein fremsta sundkona
landsins. Hún hefur æft
sund og keppt fyrir
Vestra frá 12 ára aldri,
og varð fljótt í fremstu
röð sundkvenna.
Hún hefur sett fjölmörg
íslandsmet, oft verið valin
í landslið íslands og keppt
á fjölmörgum mótum
hér heima og erlendis.
Hún hefur verið valin
íþróttamaður ísafjarðar
til margra ára. Helga
hefur verið góð fyrirmynd
og prúðmenni hið mesta
á leikvelli jafnt
sem utan hans.
Meistaraflokkur karla, 2. deild:
Grindavík — BÍ 4:0
Mórallinn samt í góðu lagi og ótímabært að afskrifa BÍ
Það blés ekki byrlega þegar
drengirnir okkar í BÍ sóttu
heim lið Grindvíkinga suður
með sjó á laugardaginn sl.
Grindvíkingar léku þar sinn
langbesta leik í sumar og unnu
verðskuldaðan sigur, 4—Ö.
Strax frá fyrstu mínútu
leiksins var ljóst hvert stefndi,
og á 12. mínútu skoraði Þórð-
ur Bogason fyrsta mark
Grindvíkinga. Ekki leið
langur tími þar til annað mark-
ið kom og enn var það Þórður
Bogason sem var þar að verki.
Skömmu fyrir leikhlé bætti
síðan Grétar Gylfason þriðja
markinu við. Ekki tókst BÍ-
mönnum að laga stöðuna þrátt
fyrir góða baráttu og góðar
skyndisóknir.
Það var svo margnefndur
Þórður sem gerði endanlega út
um leikinn, þegar hann skor-
aði sitt þriðja mark og fjórða
mark Grindvíkinga á 81. mín-
útu.
Ummæli eins af leik-
mönnum BI eftir leikinn:
„Mörkin sem við fengum á
okkur í þessum leik voru engin
klaufamörk, sérstaklega voru
góð mörkin sem Þórður skor-
aði. Þetta var hans dagur. En
við erum ekki búnir að segja
okkar síðasta orð í þessari
keppni. Mórallinn ér í góðu
lagi og keppnisskapið er til
staðar."
Undirritaður er sammála
þessu og ekki tilbúinn að af-
skrifa BÍ þrátt fvrir úrslit eins
og þessi. Einungis er 6 stiga
munur á neðsta liðinu
(Selfoss) og ÍR sem er í 5. sæt-
inu, þannig að ekki þarf mikið
til að staðan lagist.
- Guðjón Þorsteinsson.