Vestfirska fréttablaðið - 20.08.1992, Síða 1
FIMMTUDAGUR 20. AGUST 1992
26. TÖLUBLAÐ • 18. ÁRGANGUR
Óvissa skaðar ferðaþjónustu á Yestfjörðum:
Biðstaða í ferjubryggjuinálum við Djúp
- engin fjárveiting og óvíst hvort nokkuð verður úr
framkvæmdum, segir Halldór Blöndal samgönguráðherra
- allt tilbúið. segir hafnamálastjóri
Ferðamálasamtök Vest-
fjarða hafa sent samgönguráð-
herra álvktun varðandi mál-
efni bílaferjunnar Fagraness.
Ályktunin hljóðar svo:
Framkvœmdastjórn Ferða-
málasamlaka Vestfjarða lýsir
áhyggjum sínum vegna mál-
efna bílaferjunnar Fagraness.
Mœlist framk vœmdastjórn -
in til þess að ráðherra taki
ákvörðun um ferjubryggjur í
Djúpi sem allra fyrst.
Ovissa um þessi mál skaðar
ferðaþjónustu á Vestfjörðum,
sem er ung atvinnugrein í örum
vexti.
„Ferjurekstur hefur alltaf
heyrt undir Vegagerðina sam-
kvæmt lögum", sagði Jón
Leví Hilmarsson starfandi
hafnamálastjóri í samtali við
blaðið, „en við höfum alltaf
séð um framkvæmd mála því
við höfum talið að fram-
kvæmdir við bryggjur tengd-
ust meira því sem við værum
að gera. Skilningurinn hefur
alltaf verið sá að ferjurnar séu
hluti af vegakerfinu. Staða
ferjubryggju á Nauteyri er
þannig í dag, að allt er tilbúið
í útboð en ekki hefur verið
gengið frá fjármögnuninni.
Við gætum boðið verkið út
strax í dag ef við fengum um
það fyrirmæli. Kostnaðaráætl-
unin við Nauteyrarbryggju
hljóðar uppá 38 miljónir
króna. Það er ekkert til fyrir-
stöðu að hefja verkið ef við
fáum fjárveitingu í það“, sagði
Jón Leví.
Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra sagði í samtali við
Vestfirska að engin fjárveiting
væri til þessa máls samkv. fjár-
lögum.
„I fyrsta lagi er engin fjár-
veiting til verksins og af þeim
ástæðum getur ekki orðið af
framkvæmdum og það liggur
ekki endanlega fyrir hvort í
þessa bryggju veröur ráðist.
Það hefur ekki verið tekin
ákvörðun um þessar fram-
kvæmdir. Fé er takmarkað til
framkvæmda í samgöngumál-
um og við verðum að gera það
upp við okkur hvaða verk við
teljum brýnast að ráðast í á
hverjum tíma. Það lá ekki
fyrir síðast þegar ég vissi
hverju ferjubryggja á Naut-
eyri ætti að þjóna nákvæm-
lega. Það verður að meta
,í
Bílar aka um borð í Fagranes á Melgrasevri. í fjárlögum er ráðherra heimilað að semja við
heimamenn um kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs í ferjubryggjum. Hann segir hins vegar óvíst hvort
nokkuð verði af slíkum framkvæmdum.
hvaða arðsemi slík ferju-
bryggja hefur í för með sér, ef
kemur. Þessi mál eru einfald-
lega í athugun. Það er alveg
Ijóst að það er búið að fara
þannig með peninga í ferju-
málum að takmörk eru fyrir
því hverju hægt er að bæta við
meðan hlutirnir standa eins og
þeir standa“, sagði Halldór
Blöndal í viðtali við Vest-
firska.
Vestfirska fréttablaðið vill í
þessu sambandi minna á, að í
fjárlögum íslenska ríkisins
fyrir árið 1992 er fjármálaráð-
herra heimilað að „semja við
Hafnarsjóð Isafjarðar og
hreppsnefnd Nauteyrarhrepps
um kostnaðarhlutdeild ríkis-
sjóðs við byggingu ferju-
bryggja". (Fjárlög 1992, bls.
245.) Þannigað svo virðist sem
vilji sé allt sem þarf til þess að
hefja framkvæmdir við ferju-
bryggjurnar.
-GHj.
Góð höfn á Suðureyri
og örstutt á miðin
„Hér er mjög góð og lygn
höfn og héðan er mjög stutt á
miðin. Gott dæmi um það er,
að hér komu nokkrir trillusjó-
menn í surnar og þar á meðal
einn af Suðurnesjunum sem
hafði áður búið á Hofsósi.
Hann keypti sér bát og flutti
suður því honum hafði verið
talin trú um að gott væri að
róa þaðan. Þar taldist mjög
gott að fá 300 kg á dag. Við-
horf hans breyttist eftir að
hann kom hingað. Hér þykir
ekki gott ef menn hafa ekki
eitt til eitt og hálft tonn yfir
daginn. Þau ætla að vera hér í
vetur“, sagði Halldór Karl
Hermannsson, sveitarstjóri á
Suðureyri.
„Fjarlægðin á fiskimiðin er
auðvitað breytileg en nú er tal-
að um að menn séu um stund-
arfjórðung á miðin á hraðfiski-
bát. Þegar göngin eru komin,
þá liggur í hlutarins eðli að
þeir sem eru með smábáta á
Isafirði komi með þá hingað
vestur. Þetta er bara korters
akstur", sagði Halldór sveitar-
stjóri.
-GHj.
Heyskap að mestu lokið á Ströndum
„Heyfengur er góður hér
um slóðir þó hann sé ekki eins
mikill og sl. tvö sumur. Hey-
skapur hefur gengið mjög vel
og verkum við mest í vothey.
Veðráttan hefur verið góð.
Víðast hvar er heyskap lokið
og á mörgum bæjum var
honum lokið fyrir verslunar-
mannahelgina“, sagði Einar
Magnússon, bóndi í Hvi'tar-
hlíð í Bitru á Ströndum, í sam-
tali við blaðið.
-GHj.
PÓLLINN HF. S* 3092
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki
Hundadagaútsala Japis
í fullu gild-i hjá okkur
Hundóoóóóódýrt
RITSTJORN 0G AUGLYSINGAR:
SÍMI 94-4011 • FAX 94-4423
Þokkalegurafliáfærin
— segir Einar Guðnason
á Suðureyri
„Það hefur verið þokka-
legur afli á færin og reyndar
á línuna líka. Fiskurinn er
góðuren mismunandi langt
hefur verið að sækja hann.
Ekki hefur samt verið róið
langt. Það hefur verið upp
í tonn á færi yfir daginn og
stundum meira, alveg upp
í 1,400 kg nú í vikunni. Það
mjatlast alltaf eitthvað inn
hérna, bara ef við fáum frið
fyrir stjórnvöldum", sagði
Einar Guðnason, fyrrver-
andi skipstjóri og nú vigt-
armaður á Suðureyri, í
samtali við VEST-
FIRSKA.
-GHj.
Einar Guönason við löndun-
arkrana á höfninni á Suður-
eyri.
Greiðasala opnuð
á Nauteyri
Finnbogi Kristjánsson og
Magnea Guðmundsdóttir
með Ragnheiði dóttur sína
á tröppum Félagsheimilis-
ins á Nauteyri, þar sem þau
reka greiðasölu.
Hjónin Finnbogi Krist-
jánsson frá Brckku á
lngjaldssandi og Magnea
Guðmundsdóttir frá Mel-
graseyri hafa opnað greiða-
sölu í Félagsheimilinu á
Nauteyri í Djúpi. Hafaþau
tekið húsið á leigu til fimm
ára. Þau opnuöu um versl-
unarmannahelgina og
munu hafa opið út þennan
mánuð a.m.k.
„Þetta hefur gengið vel
það sem af er. Við bjóðum
upp á morgunverð, súpu,
brauð, kaffi og öl. Það er
einnig hægt að fá staðbetri
mat cf pantað er fyrirfram.
Við erum eingöngu með
hinn gamla góða íslenska
heimilsmat. Nauteyrar-
hreppur á Félagsheimilið
ásamt kvenfélaginu og ung-
mennafélaginu í
hreppnum. Næsta vor opn-
um við aftur og þá verður
þetta allt stærra í sniðum
og verður þá boðið upp á
alla almenna greiðasölu
eins og gengur og gerist við
þjóðveginn. Samt ætlum
við ekki að vera með þenn-
an svokallaða skyndibita-
mat. Við ætlum að ganga
frá lóðinni umhverfis húsið
strax næsta vor og gera
góðan pall framan við
húsið. Við ætlum að kynna
og auglýsa starfsemina í
vetur og svo fer allt í gang
næsta vor“, sögðu þau
Finnbogi og Magnea í sam-
tali við VF í síðustu viku
eftir að hafa boðið blaða-
manni upp á grasamjólk.
-GHj.
Næg atvinna
á Suðureyri
„Atvinnuástandið hérna
er mjög gott. Allir heima-
menn sem vilja vinnu fá
vinnu í frystihúsinu og á
það hefur verið lögð
áhersla að þeir sem búsettir
eru á staðnum séu ekki í
vandamálum. Svo lengi
sem ekki veröur ráðst á
okkur utanfrá með kvóta-
skerðingu verða atvinnu-
málin hjá okkur í lagi“,
sagði Halldór sveitarstjóri
á Suðureyri í viðtali við
Vestfirska.
-GHj. Halldór Karl Hermannsson
sveitarstjóri.