Vestfirska fréttablaðið - 03.09.1992, Qupperneq 1
Aigjör bylting á sam-
skiptum með tilkomu
ljósleiðarans
- segir Erling Sörensen, umdæmisstjóri
Pósts og síma á Vestfjörðum
Frá lagningu Ijósleiðarans í Fjarðarstræti á ísafirði. Svona hafa
þessir ótrúlegu glerþræðir verið að skera sig gegnum bæinn og
raunar um Vestfirði þvera.
Grunnskólinn í Bolungarvík. Viðbyggingin nýja er til hægri á
myndinni.
Nýbyggingu Grunnskóla
að Ijúka í Bolungarvík
— Rúnar Vífilsson skipaður skólastjóri
VESTFIRÐIR Nú er verið að
leggja Ijósleiðara um Vestfirði
á vegum Pósts og síma. Að
sögn Erlings Sörensen, um-
dæmisstjóra Póst og síma á
Vestfjörðum, verða fyrstu
notin sem við komum til með
að hafa af Ijósleiðurunum nú
strax í haust, með tilkomu
nýrrar sjálfvirkrar utanbæjar-
símstöðvar á ísafirði og staf-
rænnar útstöðvar í Bolungar-
vík. Þetta eru svokallaðar
AXE-stöðvar og eru þær nú
þegar komnar upp, en bíða
eftir Ijósleiðurunum svo hægt
sé að taka þær í notkun. Erling
sagði ekki liggja fyrir að síma-
númer Vestfirðinga breyttust
eða yrðu fimm stafa í náinni
framtíð. „Pað sem gerist með
þessum Ijósleiðurum, sem
koma úr hringlögninni um
landið og fara um öll þorpin á
Vestfjörðum, Patreksfjörð,
Tálknafjörð, Bíldudal, Þing-
eyri, Flateyri, ísafjörð, Bol-
ungarvík og upp á Bolafjall,
er að við fáum miklu afkasta-
meiri flutningsleiðir og miklu
meiri gæði á samböndin. Þar
getur verið um að ræða
samtöl, útvarp, sjónvarp,
tölvurásir og raunar hvað sem
er“, sagði Erling.
„Það er ekki hægt að segja
alveg nákvæmlega hvenær allt
kerfið verður komið í notkun,
en stefnt er að því að veru-
legur skriður verði kominn á
þetta á næsta ári. Það verður
ekki klárað að tengja strcng-
inn í haust að öllu leyti. Næsta
vor verður klárað að tengja
hann og prófa og síðan kemst
hann smátt og smátt í notkun.
Þegar þetta kerfi er komið í
gagnið alls staðar á Vestfjörð-
um með sjálfvirkum stafræn-
um útstöðvum erorðin bylting
hjá okkur og við komum alveg
inn í nýjan heim í fjarskipta-
tækni“, sagði Erling Sörens-
sen í samtali við blaðið.
-GHj.
BOLUNGARVÍK Á. sl. fjór-
um árum hefur verið unnið við
viðbyggingu við Grunnskól-
ann í Bolungarvfk. Nú er loka-
frágangi inni að ljúka. Verið
er að leggja síðustu hönd á
dúkalögn og málun neðri hæð-
arinnar. Bæjarstjórn Bolung-
arvíkur ákvað í sumar að
sameina almenningsbókasafn
og skólabókasafn í eitt bóka-
safn sem verður á neðri hæð
Grunnskólans nýja. Við sam-
eininguna stækkar safnið og
verður nýtískulegra og betra.
Gamli skólinn sem bókasafnið
er í nú verður nýttur sem tón-
listarskóli eftir að safnið hefur
verið ílutt þaðan. Tónlistar-
skólinn hefur verið í leigu-
húsnæði hjá Verkalýðs- og
sjómannafélagi Bolungarvík-
ur.
„Nú höfum við mannað
Grunnskólann í fyrsta skipti
með réttindafólki og Rúnar
Vífilsson hefur verið skipaður
í skólastjórastöðuna. Hann
tók við í fyrrahaust af Gunnari
Ragnarssyni, sem átti að baki
langt og mikið starf hér við
skólann“, sagði Ólafur Krist-
jánsson, bæjarstjóri í Bolung-
arvík, í samtali við VEST-
FIRSKA.
-GHj.
Núpsskóli
lagður niður
VESTFIRÐIR Svohljóðandi bréf frá menntamálaráðherra
barst vestur á firði á þriðjudaginn:
Reykjavík, 28. ágúst 1992. Vegna dræmrar aðsóknar í
10. bekk og framhaldsdeildir skólans, þrátt fyrir ítrekaðar
auglýsingar, hefur menntamálaráðuneytið ákveðið að
fella niður skólahald i Héraðsskólanum á Núpi skólaárið
1992-93.
Skólastjóri er beðinn að tilkynna þeim nemendum sem
staðfestu umsóknir sínar þessa niðurstöðu. Fræðslustjóri
mun ieitast við að leysa úr málum þeirra nemenda á
Vestfjörðum sem sóttu um í 10. bekk á Núpi.
Menntamálaráðuneytið mun á næstu dögum gera við-
eigandi ráðstafanir vegna þeirra starfsmanna ríkisins sem
ráðnir eru við skólann svo og vegna umsjónar með mann-
virkjum og búnaði.
í fyrra var Héraðsskólinn í Reykjanesi við Djúp lagður
niður og verður hann ekki starfræktur í vetur. Nú þegar
skólahald hefur einnig verið lagt af Héraðsskólanum á
Núpi er enginn héraðsskóli starfræktur í Vestfjarðakjör-
dæmi lengur, og hljóta byggðirnar í nágrenni skólanna að
gjalda þess í atvinnulegu og menningarlegu tilliti, að sögn
Péturs Bjarnasonar, fræðslustjóra á Vestfjörðum.
-GHj.
POLLINN HF. S 3092
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki
SALA ÞJÓNUSTA
Raflagnaefni
Rafmagnsofnar
Rafmótorar
Almennar raflagnir
nýlagnir, breytingar, viðhald
á heimilum, í fyrirtækjum,
og skipum
IFIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992
28. TÖLUBLAÐ • 18. ÁRGANGUR
RITSTJÓRN 0G AUGLÝSINGAR:
SÍMI 94-4011 • FAX 94-4423
Gott atvinnuástand
í Bolnngarvík í sumar
-ogmörg börn
koma í heiminn
BOLUNGARVÍK „Það hefur verið næg atvinna í allt sum-
ar og margir mánuðir eru síðan við höfum haft nokkurn á
atvinnuleysisskrá. Því er ekki að leyna, að yfir vetrarmán-
uðina er það oft sem stærsta frystihúsið er ekki í gangi og
þá eru menn heima og það má kannski deila um það hvort
um dulbúið atvinnuleysi er að ræða. Það hefurfrekar vant-
að fólk til starfa hér í sui.iar heldur en hitt“, sagði Ólafur
Kristjánsson bæjarstjóri t samtali við Vestfirska fréttablað-
ið.
„íbúafjöldinn sýnist mér nokkuð standa í stað, en þó er
mér sagt af fróðum mönnum að blómstrandi líf sé hjá
mörgum fjölskyldum og við vonum að það leiði til íbúafjölg-
unar í bænum. Það vinna fjórar konur á bæjarskrifstofun-
um og það hafa verið þrjár fæðingar hjá þeim síðan í
nóvember. - En það er ekki mér að kenna“, sagði Ólafur
og hló við. „Þær hafa gert sitt besta til að fjölga íbúunum."
„Það er Ijóst að við eins og aðrir Vestfirðingar höfum
áhyggjur af þeirri fiskveiðistefnu sem er nú að ganga all-
harkalega að sjávarbyggðum. Ég held að þrátt fyrir að við
horfum fram á nokkuð dökka tíma, þá eru Bolvíkingar
reiðubúnir að mæta því með sameiningu og festu. Ég
vona að verðum svo gæfusamir að standa saman í þeim
erfiðleikum sem eflaust eru framundan", sagði Ólafur.
-GHj.
Ásgeir Þór á tröppum Gestahússins í Bolungarvík.
Mjög gott sumar
hjá Gestahúsinu
BOLUNGARVÍK I sumar opnaði Ásgeir Þór Jónsson
Gestahúsið í húsi Jóns Friðgeirs Einarssonar í Bolungar-
vík. í Gestahúsinu er pláss fyrir 2f í uppbúnum rúmum
og svefnpokapláss er fyrir 20 manns. VESTFIRSKA leit
inn til Ásgeirs Þórs á dögunum og spurði hvernig hefði
gengið í sumar.
„Miðað við að við renndum blint í sjóinn með þetta í
sumar hefur gengið vel. Við vissum ekkert um þörfina fyrir
svona starfsemi hér. Þetta fór hægt af stað en það hefur
verið mikil stígandi í þessu hjá okkur. Undanfarnar helgar
hefur verið alveg fullt. Það er líka ansi langt síðan að hefur
verið hjá okkur auð nótt. Fólk sem þekkir «11 í þessari grein
segir mér að þetta sé mjög gott miðað við fyrsta sumarið
og lofi góðu um framhaldið. Það hefur því sannað sig að
virkileg þörf var fyrir starfsemi sem þessa hér í Bolungar-
vfk. Það verður opið hjá okkur í allan vetur og ég renni
hýru auga til næsta sumars miðað við reynsluna í sumar.
Ég er hóflega bjartsýnn, því ég veit að vetrarmánuðirnir
verða trúlega erfiðir og þá er bara að sníða sér stakk eftir
vexti", sagði Ásgeir Þór Jónsson í samtali við Vestfirska.
-GHj.
Ólafur Kristjánsson
bæjarstjóri.