Vestfirska fréttablaðið - 10.09.1992, Side 1
Y1 m FIí (Sl h
FRÉTTABLAÐIÐ |
Byggt við Súðavíkurkirkju
Súðavíkurkirkja. Smiðir eru að vinna í viðbyggingunni.
Nú er verið að byggja við
Súðavíkurkirkju. Að sögn
Salbjargar Þorbergsdóttur,
formanns sóknarnefndar,
verður í viðbyggingunni
skrúðhús, altari og gangur til
að komast niður í kjallara.
„í kjallaranum, sem er ein-
ungis undir viðbyggingunni,
verða snyrtingar og geymslur.
Það var engin snyrting eða
vatn í kirkjunni og verður
mikil bót að þessari
framkvæmd. Nú hefur vatn
verið lagt í kirkjuna", sagði
Salbjörg í samtali við blaðið.
Súðavíkurkirkja var áður á
Hesteyri í Jökulfjörðum og
var reist þar 1899. Aðalvíkur-
sókn var þar með skipt í
tvennt. Norðmaðurinn Markus
C. Bull. sem átti og rak hval-
veiðistöð innan við Hesteyri
(á eyri sem nefnd hefur verið
ýmsum nöfnum, Kálfeyri,
Stekkeyri eða Hekleyri), gaf
Hesteyringum kirkju þessa og
lét flytja hana inn tilhöggna
frá Noregi. Hesteyrarsókn
náði yfir Hesteyri, Strandirog
Fljót. Síðasti ábúandinn flutt-
ist frá Hesteyri 1952 og árið
1960 var þessi kirkja rifin og
flutt til Súðavíkur þar sem hún
var reist að nýju. Ekki voru
allir sáttir við þá ráðstöfun.
Sumarið 1969 var komið fyrir
minnisvarða á grunni Hesteyr-
arkirkju að tilhlutan biskups.
I honum er önnur koparklukk-
an sem var í Hesteyrarkirkju,
en hún er frá árinu 1691. A
eirskjöld eru svo rituð nöfn
þeirra sem í garðinum hvíla.
-GHj.
Stöðugt er unnið að því að
gera Óshlíðarveg öruggari
fyrir grjóthruni með því að
setja upp grjótgildrur, bæði
vírnetskassa og svo staura
með stálneti strengdu á milli.
Að sögn Kristins Jóns Jóns-
sonar, rekstrarstjóra Vega-
gerðarinnar á Vestfjörðum,
hafa þessar varnir gefist vel.
„Kassarnir hafa reynst
ágætlega til varnar hruni úr
bökkum og að varna því að
grjótrusl sé á veginum. Netin
eru fyrir stærra grjót sem kem-
ur lengra að, ofan úr fjalli.
Hvort tveggja hefur reynst
nokkuð vel, en alltaf fer
eitthvað grjót fram hjá þessu.
Það er stefnt að því að láta
svona gildrur við veginn alls
staðar sem hættur eru og talin
er þörf á. Vegskálar, eins og
þeir tveir sem fyrir eru, koma
ekki í bráð, því fé til fram-
kvæmda var skorið niður.
Maður veit ekkert hvað verð-
ur með þá. Þessar gildrur hafa
verið viðhaldsfrekar því
grjótflug hefur verið mikið
ofan úr klettum uppi í fjalli í
sumar á Óshlíð. Það hefur því
mætt verulega á netunum og
hafa þau látið á sjá. Fyrir
kemur að grjót fer í gegnum
netin eða yfir þau og þrír ljósa-
staurar hafa eyðilagst í sumar
vegna þess“, sagði Kristinn
Jón í samtali við blaðið.
-GHj.
Verjur á Óshlíð
- koma að góðum notum,
segir Kristinn Jón
Vegagerðarmenn að störfum við klettinn Húfu fyrir utan Haid
á Oshlíð sl. laugardag. Á mvndinni eru þeir Sveinbjörn Vetur-
liðason, Sófus Magnússon og Kristinn Friðriksson að setja grjót
í vírnetskassa. Grjótið er lábarið og sótt ofan í fjöruna á Óshlíð-
inni.
Kjördæmisráð
Sj álfst æ ðisflokksins:
Geirþrúður Charles-
dóttir tekur við
formennsku af
Einari Oddi
Á aðalfundi Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins um
helgina lét Einar Oddur Kristjánsson á Flateyri af starfi
formanns í ráðinu. Geirþrúður Charlesdóttir á ísafirði var
kjörin í hans stað. Aðrir í stjórn eru: Björg Guðmundsdóttir,
Bolungarvik, ritari, Auðunn Guðmundsson, Hnífsdal,
gjaldkeri, Gísli Ólafsson, Patreksfirði, varaformaður, og
Þórir Guðmundsson, Þingeyri, meðstjórnandi.
POLLINN
HF. 3092
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki
©
SALA
Aðvörunarkerfi vegna
bruna og innbrots
ÞJONUSTA
Uppsetning og viðhald
rafeindabúnaðar
IFIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
29. TÖLUBLAÐ • 18. ÁRGANGUR
SÍMI 94-4011 • FAX 94-4423
VERÐ KR. 150
—
Hvar er Kalli Steini?
/
„Eg hef alveg
strikað yfír
stjórnmálin
- segir Karvel Pálmason
í Kallastofu
Karvel Pálmason við mynd sem hann er að ramma inn.
Myndin er eftir Bolvíkinginn og listamanninn Bjarna
Ketilsson.
BOLUNGARVÍK
Karvel Pálmason, fyrrver- málin, eins og allt annað
andi alþingismaður Vest- sem ég hafði fyrir stafni
firðinga og formaður áður. Nú er ég farinn að
Verkalýðs- og sjómanna- hugsa um sjálfan mig. Það
félags Bolungarvíkur í má segja að ég hafi komið
þrjátíu og þrjú ár, sat á Al- mér upp einskonar ör-
þingi í tuttugu ár samfellt, yrkjaathvarfi hér í kjallar-
utan hvað í kosningunum anum og ég kalla það
1978 náði hann ekki kjöri, Kallastofu, Hér hef ég
en flaug svo inn í desem- komið mér upp smíðaað-
berkosningunum 1979. stöðu en það notast mér lít-
Karvel hætti þingmennsku iö vegna þessaö þörfin fyrir
vorið 1991 og hefur heldur innrömmun virðist vera
verið hljótt um hann síðan. mikil og ég fæst við það að
VESTFIRSKA sótti Kar- nafninu til. Það gæti trú-
vel heim í Kallastofu í lega verið mikið að gera
kjallara Verkalýðshússins fyrirmennsemeruafkasta-
í Bolungarvík, þar sem miklir."
hann hefur komið sér upp - Saknarðu ekki hrepp-
smíðastofu. snefndarstarfanna, þing-
Spurning:-HvarerKar- mennskunnar og verka-
vel Pálmason? lýðsmálanna?
„Hann er hér enn og „Auðvitaðsaknarmaður
verður það vonandi áfram þess. En menn geta ekki
sem lengst. Á honum hefur upplifað eldri tíma og ein-
engin breyting orðið, að ég hvern tíma verða menn að
vona.“ hætta og skynja sinn vitjun-
- Hvernig er heilsan? artíma og hætta tímanlega,
„Heilsufarið er svona áður en þeir verða allt of
þokkalegt, miðað við það gamlir og útbrunnir og úr-
sem búast mátti við. Maður eltir. Ég vona að ég hafí
tórir." gert það.“
- Hvað hefur þú verið að
gera síðan þú losnaðir úr Eftir að hafa fengið sér
þinginu? súkkulaði úr dós og ritað í
„Ég hcid að það sé eðii- gestabók Kailastofu (sem
legurgangurlífsins.aðþeir Karvel krefst að allir geri,
sem hætta afskiptum af annars fá menn ekki að fara
stjórnmálum dragi sig í hlé út) kvaddi blaðamaður
og leyfi öðrum að taka við, Karvel Steindór Ingimar
hvort sem þeir eru betri eða Pálmason og var nokkurs
verri. Það er svo mat vísari um hagi hans nú.
manna hverju sinni. Ég hef
alveg strikað yfir stjórn-