Vestfirska fréttablaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 4
4
Fimmtudagur 10. september
Sýslumaðurinn á ísafirði
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn á ísafirði skorar hér
með á gjaldendur, sem ekki hafa staðið
skil á gjöldum, sem voru álögð 1990,
1991 og 1992 og féllu í gjalddaga fyrir
15. ágúst 1992 og eru til innheimtu hjá
ofangreindum innheimtumanni, að
greiða þau nú þegar og ekki síðar en
innan 15 daga frá dagsetningu
áskorunar þessarar.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur,
útsvar, eignarskattur, sérstakur eign-
arskattur, slysatryggingagjald vegna
heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlána-
sjóðs- og iðnaðarmálagjald, lífeyris-
tryggingagjald samkvæmt 20. gr. laga
nr. 67/1971, slysatryggingagjald at-
vinnurekenda samkvæmt 36. gr. sömu
laga, atvinnuleysistryggingagjald,
, kirkjugarðsgjald, gjald í framkvæmda-
sjóð aldraðra, sérstakur skattur af
verslunar- og skrifstofuhúsnæði,
launaskattur, bifreiðaskattur, slysa-
tryggingagjald ökumanna, þunga-
skattur samkvæmt ökumæli, viðbótar—
og aukaálagning söluskatts vegna fyrri
tímabila, skemmtanaskattur og miða-
gjald, virðisaukaskattur af skemmtun-
um, tryggingagjald af skipshöfnum
ásamt skráningargjöldum, vinnueftir-
litsgjald, vörugjald af innlendri fram-
leiðslu, aðflutningsgjöld og útflutn-
ingsgjöld, verðbætur á ógreiddan
tekjuskatt og verðbætur á ógreitt
útsvar. Jafnframt er skorað á gjaldend-
ur að gera skil á virðisaukaskatti fyrir
24. tímabil 1992, með eindaga 5. ágúst
1992 og staðgreiðslu fyrir 7. tímabil
1992, með eindaga 17. ágúst 1992,
ásamt gjaldföllnum og ógreiddum virðis-
aukaskattshækkunum, svo og ógreiddri
staðgreiðslu frá fyrri tímabilum.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrir-
vara fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna að liðnum 15 dögum frá dag-
setningu áskorunar þessarar.
ísafirði, 2. september 1992.
Sýslumaðurinn á ísafirði
Ólafur Helgi Kjartansson
Penna-
saums-
námskeið
Námskeið í pennasaumi (japanskt
kúnstbróderí) verður haldið
á ísafirði um miðjan september.
Innritun fyrir 14. september
í Versluninni Föndurloftinu,
Mjallargötu 5, sími 3659.
Héraðsmót
HHF í sundt
TÁLKNAFJÖRÐUR Hér-
aðsmót Héraðssambands
Hrafna-Flóka í sundi var
haldið á Tálknafirði dagana 8.
og 9. ágúst.
Stigahæsti einstaklingurinn
varð Hafrún Sigurðardóttir,
hún hlaut56stig. Afreksbikar-
inn hlaut Andrés Heiðarsson
fyrir 50 metra skriðsund, hann
hlaut 426 stig. í kvennaflokki
varð Hafrún Sigurðardóttir
afreksdrottning í 50 m skrið-
sundi, hún hlaut 469 stig.
Veður var gott meðan á mót-
inu stóð, sól og hiti. Fjölmarg-
ir áhorfendur fylgdust með
sundmótinu. Það voru félagar
úr UMFT sem unnu tii flestra
verðlauna, enda afbragðs
sundfólk sem Tálknfirðingar
eiga og hafa þjálfað undanfar-
in ár.
Róbert Schmidt.
Golfklúbbur
Bíldudals form-
lega stofnaður
BÍLDUDALUR Golfklúbbur
Bíldudals var formlega stofn-
aður á fundi sem haldinn var í
Grunnskólanum sunnudaginn
9. ágúst. Daginn áður var tví-
menningsmót á golfvellinum
og var það þriðja mót sumars-
ins.
í stjórn Golfklúbbsins voru
kosnir þcir Karl Þór Þórisson,
formaður; Óskar Magnússon,
varaformaður; Stefán Heið-
arsson, ritari; og Ágúst Sörla-
son, gjaldkeri og vallarstjóri.
Úrslit í tvímenningsmótinu
laugardaginn 8. ágúst urðu
þannig: Pétur Bjarnason,
fræðslustjóri á Vestfjörðum
og fyrrum skólastjóri á Bíldu-
dal, og Jón Hákon Ágústsson
urðu í fyrsta sæti; Óskar
Magnússon og Stefán Heið-
arsson í öðru sæti; og Karl Þór
Þórisson og Þórarinn Her-
mannsson í þriðja sæti. Tíu
manns tóku þátt í mótinu.
Róbert Schmidt.
Keppendur í þriðja golfmótinu í sumar. Sigurvegarar urðu Pétur
Bjarnason, 3.f.h. og Jón Hákon Ágústsson, 2.f.h.
Utsýnispallur
á Bolafjalli
næsta vor
BOLUNGARVÍK
Eftir að ratsjárstöðin var
byggð á Bolafjalli hefur mikil
umferð ferðamanna verið um
fjallið enda fagurt útsýni af
því og nokkuð góður vegur
upp á það.
„Þegar verið var að byggja
stöðina vildum við vita hvaða
ábyrgð við bærum á fólki
þarna uppi eftir að vegur væri
kominn þangað", sagði Ólafur
Kristjánsson bæjarstjóri í Bol-
ungarvík. „Við vildum ekki
hefta neina umferð um fjallið.
Okkur fannst líka eðlilegt og
sjálfsagt að nota þennan veg
því útsýnið er fallegt af fjall-
inu. Það varð svolítil deila við
Aðalverktaka um hvort leyfa
ætti frjálsa umferð, en ég beitti
mér fyrir því að þetta var sam-
þykkt og náði samkomulagi
við þá um að þarna yrði byggð-
ur sérstakur útsýnispallur",
sagði Ólafur.
„Þarna verður afmarkað
bílastæði fyrir gesti og þar
verður þeim frjálst að vera. Ef
þeir fara út fyrir það svæði eru
þeir á eigin ábyrgð. Nú eru ís-
lenskir Aðalverktakar að
teikna og hanna pallinn. Eg á
von á því að hafist verði handa
við að byggja hann næsta
sumar“, sagði Ólafur.
Vestfirska vill bæta við
þeirri frómu ósk að á pallinum
verði stór og vönduð útsýnis-
skífa svo fávísir ferðamenn
fari af Bolafjalli með örnefnin
í Jökulfjörðum og ísafjarðar-
djúpi á hreinu:
-GHj.
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ |--
Bridge:
Arnar Geir og Guð-
mundur M. Vest-
fjarðameistarar
- eftir að Hlynur Tryggvi og
Halldór Sigurðarson höfðu
leitt mótið allt til síðustu umferðar
Vestfjarðamót í tvímenningi var haldið um síðustu helgi
á Flólmavík og mættu 22 pör til leiks. Hinir ungu og efnilegu
piltarfrá ísafirði, þeir Hlynur Tryggvi Magnússon og Hall-
dór Sigurðarson, leiddu mótið allt til síðustu umferðar, en
þá fóru þeir Arnar Geir Hinriksson og Guðmundur M. Jóns-
son upp fyrir þá. Guðmundur varð 75 ára fyrir skömmu
svo sigurinn var hin skemmtilegasta afmælisgjöf til hans.
Glæsileg frammistaða það!
Röð efstu para varð þessi: Arnar Geir Hinriksson og
Guðmundur M. Jónsson 139 stig, Halldór Sigurðarson
og Hlynur Tryggvi Magnússon 129 stig, Guðmundur
Þorkelsson og Júlíus Sigurjonsson 113 stig, í fjórða
sæti voru þeir Björn Brynjólfsson og Þorsteinn Geirs-
son með 107 stig, og í fimmta sæti þær Guðlaug Frið-
riksdóttir og Kristín Magnúsdóttir.
Næsta mót er úrtökumótfyrir íslandsmót í sveitakeppni
og verður það haldið á Isafirði 10. og 11. október. Skrán-
ing er hjá Eiríki í símum 4289 og 985-31689.
Frá Eiríki Kristóferssyni,
forseta Bridgesambands Vestfjarða.
Nýr skólastjóri á
Þingeyri (og eiginlega
allt nýtt í skólanum)
Nýr skólastjóri Grunnskólans á Þingeyri hefur tekið
til starfa. Hann tók við af Hallgrími Sveinssyni, sem
nú er framkvæmdastjóri Sláturfélagsins Barða hf.
Nýi skólastjórinn, sem er þrítugur, heitir Garðar Páll
Vignisson og er Reykvíkingur. Hann bjó á Þingeyri
fyrir nokkrum árum, í þrjú, fjögur ár. Garðar hefur
kennt sl. fimm ár við Grunnskólann í Grindavík. Sam-
býliskona hans er íris Ólafsdóttir og eiga þau tvö börn,
Ölmu Rut og Egil.
„Skólinn var settur á föstudaginn og eru nemendur
85 auk 8 nemenda í Mjólká, sem er útibú frá Þingeyr-
arskóla. Ég er mjög ánægður með ástand skólans.
Það er allt nýtt sem hægt er að gera nýtt. Það eru ný
áklæði á stólum, nýir stólar og borð og skolinn nýmál-
aður. Við skólann starfar einvalalið, bæði kennarar og
annað starfsfólk. Öll viðhorf til skólans eru mjög já-
kvæð og ég er mjög bjartsýnn á starfið í vetur“, sagði
Garðar í samtali við blaðið.
-GHj.
Garðar Páll Vignisson, skólastjóri á Þingeyri.