Vestfirska fréttablaðið - 12.11.1992, Síða 1
Símsvari lögreglunnar er 4764:
Dópsíminn lítið notaður
enn sem komið er
Hluti tækja og tóla til fíkniefnaneyslu, sem lögreglan á ísafirði hefur lagt hald á gegnum
tíðina. Á borðinu er einnig hassmoli og góður skammtur af amfetamíni.
Meðal efnis í
blaðinu í dag:
Hlíðarskjóls-
málið
-bls. 8
Skálmöldin á
Flateyri
- bls. 5
Leyndarmálið
um
seiðardrápið
- bls. 6
Heimsókn í
Grunnskólann í
Reykjanesi
- bls. 3
Veiðifálkarækt
auk
æðarræktar í
Þernuvík?
- bls. 4
Vestfirðingar
sviknir um
Gilsfjarðarbrú?
- sjá baksíðu
Að sögn Jónmundar Kjart-
anssonar, yfirlögregluþjóns á
Isafirði, hafa komið gagnlegar
upplýsingar inn á símsvara
lögreglunnar á Isafirði, sem
ætlaður er til að taka á móti til-
kynningum frá almenningi um
fíkniefnamál, en engar sem
hafa leitt til að nein fíkniefna-
mál hafi verið upplýst. Aðal-
lega hafa komið upplýsingar
um fíkniefnaneyslu inn á sím-
svarann. "Við viljum hvetja
fólk til að hafa samband við
okkur", sagði Jónmundur, "eða
við símsvarann ef einhverjum
finnst þægilegra að tala við inn
á hann. Ef hins vegar fólk vill
tala við Iögregluna og halda því
leyndu, er nóg að tala við einn
lögreglumann. Reglurnar eru
þær að ef einhver gefur "tips"
eða ábendingu er viðkomandi
aldrei nafngreindur og við-
komandi lögreglumaður segir
ekki félaga sfnum hver gaf
upplýsingarnar. Ef það sem
okkur er sagt á við rök að
styðjast, þá er lögreglan hinn
raunverulegi kærandi í málinu
ef ábendingin leiðir til þess að
mál komi upp. Ef einhver segir
okkur að einhver sé með efni
eða að fá efni að sunnan, þá er
það aðalatriðið fyrir okkur að fá
að vita þetta þegar það er að
gerast. Það er of seint að fá
upplýsingamar eftir á, um að
einhver hafi verið að reykja
hass fyrir þremur vikum, ef
málið á að upplýsast. Sá sem
hringdi hefur e.t.v. óskað nafn-
leyndar og þá er ekki hægt að
nota hann sem vitni í því. Samt
er vissulega gagnlegt að fá allar
upplýsingar, sagði Jónmund-
ur."
"Fólk getur ekki alltaf stað-
fest sínar upplýsingar, en hefur
grun og lætur okkur vita. Þá
reynum við að kanna málið eins
varlega og við getum, ef við
teljum upplýsingamar ekki
tryggar. Ef einhver lýgur að
okkur vísvitandi og við vitum
hver hann er, þá verður hann
fyrir barðinu á okkur. Ef við
vitum hver hann er og upplýs-
ingamar eru ósannar, reiknum
við auðvitað með því að hann
hafi ekki vitað betur og gert
þetta í góðri trú og aðhöfumst
ekkert. Við gætum fullrar
nafnleyndar og fulls trúnaðar",
sagði Jónmundur.
VESTFIRSKA vill hvetja
fólk til að gefa upplýsingar til
lögreglunnar ef það veit um
fíkniefni í umferð. Símsvarinn
sem fólk getur talað inn á og
sagt til nafns eða látið það vera
hefur númerið 4764 og að
sjálfsögðu verður að velja 94 á
undan ef viðkomandi er ekki á
svæðinu. Símsvarinn er á vakt
allan sólarhringinn.
-GHj
Tíræðisafmæli
Þessa mynd tók Inga Dan á fimmtudaginn í síðustu viku,
þann 5. nóv., á tíræðisafmæli Kristínar G. Magnúsdóttur í
Efri-Engidal. Kristín er hér ásamt þremur afkomendum sínum
í afmælisveislunni, sem var mjög fjölsótt.
PÓLLINN HF. ® 3092 Sala & þjónusta ©
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki PÓLLINN HF
Nóvembertilboð JfiPIS
í FULLU GILDI í PÓLNUM, NEMA HVAÐ?
ÓTRÚLEQT VERÐ - VERTU HfiQSÝNN
IFIMMTUDAGUR12. NÓVEMBER1992
38. TÖLUBLAÐ • 18. ÁRGANGUR
SÍMI94-4011 • FAX 94-4423
VERÐ KR. 150
Broddaneshreppur:
Að sögn Þórhildar Líndal, lögfræðings í félags-
málaráðuneytinu, er úrskurður ráðuneytísins um lög-
mæti hreppsnefndarfundar, semfjallað hefurverið um
hér í blaðinu, væntanlegur nú öðru hvoru megin við
helgina. Sigurkarl Ásmundsson, skólabílstjóri við
Broddanesskóla, kærði hreppsnefndina til ráðuneyt-
isins í haust vegna fundar þar sem ákvörðun var tekin
ur hans hlaut starfið með atkvæði tengdaföður síns.
Líklegt má telja að ráðuneytið úrskurði fundinn ólög-
mætan og verði að taka ráðningarmálíð upp aftur á
fundi hreppsnefndar.
þar sem leitað verður svara við spurníngunni "Hvers
vegna er verðlag svo hátt á Vestfjörðum?
Frummælendur verða úr hópi kaupmanna, neyt-
enda og annarra sem málið varðar, og síðan verða
pallborðsumræður undir stjórn Finnboga Hermanns-
sonar. Fundurinn hefst kl. hálfníu og eru allir vel-
komnir.
("hraunhvörf")
Halldór Asgeírssgn opnar myndlistarsýningu í
Gallerí Slunkaríki á Ísafirðí á laugardaginn, þann 14.
nóvember kl. 16. Á sýningunni eru myndverk gerð úr
bræddu hraungrýti. Þetta eru litlar furðumyndír sem
festar eru beint á veggina og eru bræddar úr hraun-
steini sem hangir úr loftinu í miðjum salnum.
"Hraunhvörf" kallar Halldór þessa aðferð er hann
hitar hraunið upp að bræðslumarki og það umbreytist
í svartan glerung, ekki ósvipaðan hrafntinnu.
"Hraunhvörf" eru í raun og veru lítil persónuleg eld-
gos. Einnig eru til sýnis tvær bækur eftir listamanninn,
gerðar með bleki og vatnslitum. Sýningin stendur til
6. desember og er opin kl. 16-18 fimmtudaga til
sunnudags.
FLUGFELAGIO
ERNIR P
ÍSAFIROI
Sími 94-4200
Daglegt áætlunar-
flug um Vestfirði.
Leiguflug innan-
lands og utan,
fimm til nítján far-
þega vélar.
Sjúkra- og
neyðarflugsvakt
allan sólarhringinn