Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1992, Side 1
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER1992
40. TÖLUBLAÐ • 18. ÁRGANGUR
SÍMI94-4011 *FAX 94-4423
VERÐ KR. 150
Safnhaugur af ónýtum rafgeymum á bak viö hús við Fjarðarstrætiö á ísafirði. Myndin var tekin í fyrradag, en núna er þetta
allt komið á bólakaf í snjó, enda brostinn á harður vetur.
Vandræðaástand vegna spilliefna sem hrúgast upp á ísafirði:
Þrjú tonn
af rafgeymum
bak við hús
- bíða þess að springa í frostum og þá fer innihaldið sína leið út í jarðveginn
ísafjarðarkaupstaður hefur
tekið á móti spilliefnum nú um
nokkurn tíma og hefur auglýst
að þeim beri að skila á
Slökkvistöðina. Á bak við
stöðina er afgirtur reitur og hafa
safnast þar upp á undanfömum
vikum um þrjú tonn af raf-
geymum. Nú er farið að frysta
og hætt við að rafgeymamir
springi og eitrað innihald
þeirra, þungmálmar og fleiri
skemmtilegheit, leki út og fari
niður í jarðveginn.
„Málið er í athugun og verið
er að athuga með kostnað við
flutning geymanna suður til
eyðslu", sagði Þorbjörn
Sveinsson, slökkviliðsstjóri í
samtali við blaðið. „Við höfum
engan veginn nógu góða
geymsluaðstöðu fyrir svona
mikið af geymum og ég er orð-
inn leiðuryfirþessu ástandi. Eg
er búinn að minnast svo oft á
þetta. Bæjarsjóður á að sjá um
framkvæmdina. Eg tek bara á
móti þessu. Það em aðallega
stóru fyrirtækin sem skila þessu
inn, Orkubúið, Póstur og sími
og Póllinn.“
Blaðið hafði samband við
Eyjólf Bjarnason, forstöðu-
mann Tæknideildar Isafjarðar-
kaupstaðar:
„Við settum upp tvo gáma
fyrir spilliefnin og var ætlunin
að efnin færu suður í þeim til
eyðingar. Auðvitað þarf þetta
að fara suður, það er engin
spurning. Eg get ekki svarað
þér s vona einn tveir þrír hvenær
efnin fara. Þessi mál hafa ekki
Frá og með föstudeginum
27. nóv. 1992 og til 1. febr.
1993 er brottför ms. Fagraness
frá Isafirði kl. 9.00 á morgn-
ana.
Ferðir skipsins eru eins og
áður í Isafjarðardjúp á þriðju-
dögum og föstudögum. Skipið
komið hér inn á borð til mín. Ég
er að frétta af þessu núna þegar
þú talar við mig. Ég get ekki
svarað fyrir þetta“, sagði
Eyjólfur.
-GHj.
getur tekið 20 bíla, og er þeim
ekið í og úr skipinu. Þeir sem
vilja nýta sér far fyrir bíl með
skipinu þurfa að panta með
dags fyrirvara.
Verðið er kr. 2.000 fyrir bíl-
inn.
Breytingar á brottför
Fagranessins
PÓLLINN HF. ® 3092 Sala & þjónusta ©
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki PÓLLINN HF
Ekkert rugl, ekkert þras
VaraaOgjaiar fyrir tölvur í úrvali
Hurð skall
nærri hælum
- fimm manns í bíl í snjóflóði í
Kinninni
Á þriðja tímanum á sunnudaginn var hringt til lög-
reglunnará ísafirði og tilkynnt um bifreið sem væri föst
í snjóflóði í Kinninni á Breiðadalsheiði. Að sögn lög-
reglu var kolvitlaust veður á heiðinni, rok og skaf-
renningur. Um hálffjögur var svo hringt úr farsíma bif-
reiðarinnar og tilkynnt að snjóflóð hafi hrifið hana út af
veginum en enginn hafi slasast.
Hjón frá Þingeyri með þrjú böm voru í bílnum og
komust þau niður úr Kinninni og ofan í Heiðarhvilftina,
niður á Kerlingarhól, þar sem þau komust í bíl til Flat-
eyrar. Þarna hefur skollið hurð nærri hælum og heppni
að ekki varð slys af. Svo mikið var rokið á heiðinni
þegar lögregla fór upp, að lakkið á lögreglubílnum
skemmdist er skari sem flagnaði af í rokinu skall á
bílnum eins og vélbyssuskothríð. Á þessum stað fórst
ungur maður á veghefli sem varð fyrir snjóflóði er hann
var við snjómokstur á Breiðadalsheiði í fyrra.
Bifreiðin sem er af Pajero-gerð er nánast óskemmd
og hékk utan í hlíðinni 15-20 metra neðan vegarins í
Kinninni með framendann upp. Ekki hefur reynst unnt
að sækja bílinn upp vegna veðurs, svo búast má við
að hann geti skemmst þar sem snjóflóð eru tíð í
Kinninni.
-GHj.
Glannaskapur
og glópalán á
Breiðadalsheiði
Seint á sunnudagskvöldið ók lögreglan á ísafirði
fram á smábíl (Lada Samara) sem var fastur í snjó á
Breiðadalsheiði skammt neðan við vegamótin til Súg-
andafjarðar. Við bílinn var maður og hafði hann ekið
öðrum manni upp á heiði, ekki komist lengra á bílnum
og fylgt manninum fótgangandi yfir skarðið, um Kinn-
ina og niður á Kerlingarhól, og síðan gengið til baka
að bílnum aftur. Hafði skafið að bílnum á meðan og
varð hann ekki hreyfður. Þurfti lögreglan að aðstoða
manninn við að koma bílnum og honum sjálfum niður
á ísafjörð aftur. Enginn sími var í bílnum og alger til-
viljun að lögreglan var á ferð um heiðina. Kolvitlaust
veður var og ófærð.
Lögreglan á ísafirði vill koma þeim skilaboðum til
þeirra, sem þurfa að fara yfir fjallvegi á veturna í
vondum veðrum og illri færð, að tefla ekki sjálfum sér
og öðrum í tvísýnu. Hringi fólk í lögreglu og spyrji um
færð á Breiðadalsheiði og fái það svar að ófært sé, eigi
það að taka mark á því og fara hvergi.
-GHj.
FLUGFÉLAGIO
ERNIR P
Daglegt áætlunar-
flug um Vestfirði.
Leiguflug innan-
lands og utan,
fimm til nítján far-
þega vélar.
ÍSAFIROI Sjúkra- og
Sími 94-4200 ™vðarfluasvakt
allan solarhringinn