Vestfirska fréttablaðið - 10.12.1992, Blaðsíða 1
VES1 rFii ISKA
FRÉTTABLAÐIÐ
Verksamningar um síðasta áfanga Fjórðungssjúkrahússins:
Ráðherra
þvælist fyrir og
ekkert gerist
- reglur brotnar og reynt að fá Innkaupastofnun til að breyta álitsgerð sinni
Enn er ekki farið að ganga til
samninga við verktaka vegna
útboðs síðasta áfanga Fjórð-
ungssjúkrahússins á Isafirði.
Sex vikur eru nú liðnar sfðan
tilboð voru opnuð og Inn-
kaupastofnun hefur mælt með
að gengið verði til samninga við
lægstbjóðanda, sem er Auðunn
Guðmundsson á ísafirði. Næstir
komu Eiríkur og Einar Valur á
Isafirði. Fimm verktakar buðu
í verkið og voru öll tilboðin
fyrir ofan kostnaðaráætlun.
Samkvæmt útboðsstöðlum
ber að ganga til samninga við
verktaka þremur vikum eftir að
tilboð hafa verið opnuð. Nú eru
því liðnar aðrar þrjár vikur fram
yfir þann tíma.
Innkaupastofnun sendi heil-
brigðisráðuneyti álit þess efnis,
að eftir athugun á öllum gögn-
um tilboðsgjafa bæri að ganga
til samninga við Auðun. Ráðu-
neytið vísaði málinu aftur til
Innkaupastofnunar og bað um
endurskoðun á tilboðsgjöfum
en Innkaupastofnun stóð við
fyrra álit.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
tókst Vestfirska fréttablaðinu
ekki á fá samband við neinn í
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði.
heilbrigðisráðuneytinu sem gat
svarað fyrir þetta mál, en blað-
inu var tjáð að þetta væri til
meðferðar á allra hæstu stöðum,
hjá ráðherra sjálfum og ráðu-
neytisstjóra. Hvorugur þeirra
ansaði ítrekuðum skilaboðum
blaðsins um að fá að ræða við
þá. Ljóst virðist að ekki sé vilji
í ráðuneytinu til þess að ganga
til samninga við Auðun Guð-
mundsson.
Vestfirska fréttablaðinu
finnst nokkuð undarlegt ef rétt
er að ráðherra blandi sér sjálfur
í slíkar einfaldar afgreiðslur,
enda hefur þessi sami ráðherra
sagt við annað tækifæri að hann
geti að sjálfsögðu ekki haft af-
skipti af afgreiðslu einstakra
mála.
ísafjöröur:
Gæsir ganga í hús
Hún Álfhildur í Seljalandi 15
á ísafirði fékk heldur óvenju-
lega heimsókn á þriðjudags-
kvöldið. Hún sat í makindum í
stofunni þegar hún heyrði
bankað og fór til dyra. Sá hún
þá sér til stórrar undrunar tutt-
ugu gæsa hóp á dyrapallinum
sem goggaði án afláts í dyr og
hús. Henni varð að vonum
hverft við og stuggaði þessum
gestum af hlaðinu og fór við svo
búið inn aftur.
Ekki hafði hún lengi setið er
hún heyrði þetta líka skaðræði-
svein frá dóttur sinni á öðru ári
sem hafði verið sofandi úti í
vagni í garðinum fyrir neðan
húsið. Hún hljóp út í ofboði og
sá hvar barnið sat uppi í vagn-
inum háorgandi og skjálfandi
af skelfíngu en við hlið vagns-
ins var gæsahópurinn kominn
aftur og reif í sig gras úr bletti
sem stóðauður upp úrsnjónum.
Aftur mátti hún reka þessa ó-
boðnu fugla af landareign sinni
og tókst loks eftir langan tíma
að róa skelfingu lostið barnið.
Þar sem að nú eru að koma
jól hefði sjálfsagt einhver
„gripið gæsina“ í þeirra orða
fyllstu merkingu en Alfhildur
stóðst freistinguna í þetta skipti.
Ef um frekari heimsóknir fugl-
anna verður veit maður þó ekki
nema „allt fari í steik“.
PÓLUNN
HF. S 3092
Sala & þjónusta
Rafþjónusta Raftækjasala
Rafhönnun Rafeindaþjónusta
Siglingatæki
Kælitæki
©
PÓLLINN HF
Ljósakrassar á leiði
6.800 kr.
IFIMMTUDAGUR10. DESEMBER1992
42. TÖLUBLAÐ • 18. ÁRGANGUR
SÍMI94-4011 • FAX 94-4423
VERÐ KR. 150
;
J
Bolungarvík:
Fimm
innbrot
upplýst
- innbrotsþjófarnir allir frá ísafirði
Nú í vikunni tókst lögreglunni á ísafirði í samvinnu
við Bolungarvíkurlögregluna að upplýsa fimm innbrot
sem framin voru í Bolungarvík. í októbermánuði var
brotist inn í áhaldahús Bolungarvíkurkaupstaðar og í
lok nóvember var brotist inn í sundlaugina á staðnum.
Aðfararnótt 3. desember sl. var svo brotist inn á
þremur stöðum, í sundlaugina, áhaldahúsið og tré-
smíðaverkstæði Jóns Friðgeirs.
Alls voru þarna sjö manns að verki og allir frá ísa-
firði. Auk þjófnaða á þessum stöðum voru unnin
nokkur spjöll á húsnæði.
Vestfirska fréttablaðið hefur ekki skýringar á ítrek-
uðum innbrotum í Sundlaug Bolungarvíkur. Nema á-
stæðan sé sú, þar sem hér var um Isfirðinga að ræða
og neysluvatnið á ísafirði landsþekkt fyrir það að vera
óhæft til neyslu, að þjófarnir hafi verið að fá sér að
drekka.
Hálfdán
Kristjánsson
ráðinn
bæjarstjóri á
Ólafsfirði
Gengið hefur verið frá ráðningu Hálfdáns Krist-
jánssonar, oddvita í Súðavík, sem næsta bæjarstjóra
á Ólafsfirði. Hálfdán var einn af fimmtán umsækj-
endum um stöðuna og hlaut samhljóða atkvæði bæði
meirihluta og minnihluta í bæjarstjórn. Hálfdán mun
hefja störf 1. janúar næstkomandi.
„Þetta leggst mjög vel í mig, þetta er spennandi
verkefni. Bæjarfélagið stendur mjög vel og ýmis
verkefni eru framundan. Ég fór þarna norður og ræddi
við bæði meirihluta og minnihluta og sannfærðist um
að það er mjög orðum aukið að pólitíkin þar sé sú
Ijónagryfja sem látið hefur verið liggja að“, sagði
Hálfdán Kristjánsson í samtali við Vestfirska frétta-
blaðið.
Fráfarandi bæjarstjóri á Ólafsfirði er Bjarni Gríms-
son, sem í eina tíð var kaupfélagsstjóri á Þingeyri.
FLUGFÉLAGIO
ERNIR P
Daglegt áætlunar-
flug um Vestfirði.
Leiguflug innan-
lands og utan,
fimm til nítján far-
þega vélar.
ÍSAFIROI Sjúkra- og
Sími 94-4200 n®yöarf!U9®'Cakt
allan solarhringinn