Vestfirska fréttablaðið - 10.12.1992, Blaðsíða 4
VESTFIRSKA
4
Fimmtudagur 10. desember 1992
Hættir póstflritningum
eftir 20 ár
- spjallað við Halldór Jónsson, sjópóst á Bíldudal
Halldór Jónsson, sjópóstur
á Bíldudal, hefur hætt póst-
flutningum um Arnarfjörð eftir
20 ára starf. Sonur hans, Jón
Halldórsson rækjusjómaður,
hefur tekið við af föður sínum
og siglir framvegis með póst og
nauðsynjavörur til bænda við
Arnarfjörð og starfsmanna
Mjólkárvirkjunar. Jón tók við
póstflutningunum 1. nóvember.
Halldór, eða Dóri á Hóli eins
og hann er kallaður, er fæddur
á Litlu-Eyri 13. september
1920. Rúmlega tvítugur hóf
hann kúabúskap frammi á Hóli,
skammt frá Bíldudalsþorpi. Það
var svo árið 1974 að Dóri keypti
trillu frá Súgandafirði og hóf á
henni póstferðir um Amarfjörð,
en áður hafði hann verið í tvö ár
á minni bát sem illa dugði í
póstferðimar. Famar voru tvær
ferðir í viku frá Bíldudal um
Arnarfjörð og vom viðkomu-
staðirnir Laugaból, Os, Mjólká,
Hjallkárseyri, Hrafnseyri og
Auðkúla. Yfir sumartímann
keyrði Dóri með póstinn á við-
komustaðina. Hann tók við
póstferðunum af Þórði heitnum
Olafssyni, sem hafði þá starfað
Texti og myndir:
Róbert Schmidt
um 20 ár við póstflutninga, en
leiðin sem hann fór var mun
styttri en sú sem farin er í dag.
Tómleikatilfínning að
vera hættur
„Jú, ég neita því ekki að það
fer um mann tómleikatilfinning
að vera hættur“, segir Dóri. „Þó
svo ég sé hálfpartinn feginn í
aðra röndina eins og veðrið er
í dag“, bætir hann við og
skellihlær, því úti er vitlaust
veður, ofankoma og hvassviðri.
„En ég hef nú trú á því að
maður eigi eftir að sakna
starfsins, því tengslin við fólkið
í firðinum rofna með tímanum.
En ég hætti líka vegna þess að
kransæðin þolir þetta ekki á
veturna, svo í lagi sé. Manni
líður betur með því að gera ekki
neitt, en ef að bílfært væri árið
um kring, þá hefði ég haldið
þessu áfram, blessaður vertu.“
Dóri sjópóstur rær í land meö pósttöskuna.
verið boðnir og búnir til þess að
liðsinna mér.“
Hrafn BA 110
Póstleiðin sem Dóri fór er sú
næstlengsta á Vestfjörðum. Sú
lengsta er í ísafjarðardjúpi.
Póstbáturinn hans heitir Hrafn
og er nefndur eftir Hrafni
Sveinbjarnarsyni sem hélt úti
fyrstu ferjunni í firðinum, eins
og greint er frá í Sturlungu.
Hrafn BA er nú mældur 3,5
tonn eftir nýju reglunum. Hann
var smíðaður 1961 í Reykjavík
og er því orðinn rúmlega þrí-
tugur. En hvað hyggst Dóri
gera í framtíðinni, skyldi hann
setjast við skriftir?
„Onei, maður er nú óttalegur
apaköttur þannig og ég hef lítið
vit á því. En með vorinu dytta
ég að bátnum, klíni á hann og
svoleiðis nokkuð. Eg set hann
kannski á flot næsta sumar til
að komast út á fjörð í góðu
veðri, og hver veit nema ég
heilsi upp á fólkið í firðinum.
Nú, ég vil nota tækifærið og
þakka öllu því fólki sem ég hef
kynnst frá því ég byrjaði, og
sérstaklega öllum sem hafa
Dóri hugar aö jullunni sinni, en Hrafn BA110 liggur viö stjóra fyrir utan. verið á Mjólká. Þeir hafa alltaf
Það kom ein og ein
skvetta
En er eitthvað sem stendur
upp úr eftir þessi tuttugu ár í
starfinu? „Onei, það held ég
ekki. Það kom stundum kaldi
og maður fékk eina og eina
skvettu, annað var það nú
ekki.“
Undirritaður þykist nú vita
að Dóri hafi lent í honum
kröppum í gegnum tíðina, en
hann vill ekki blása upp neinar
sögur og berja sér á brjóst.
Hann skilur sáttur við starfs-
lokin og framundan er hvíld.
Hann ætlar að safna kröftum
fyrir vorið, því þá ætlar hann að
dytta að trillunni sinni og jafn-
vel sigla um fjörðinn sér til
gamans. Dóri hefur lengst af
unnið einn og kann vel við það.
En ný kynslóð tekur við.
Halldór er orðinn 72ja ára og
Jón sonur hans tekur við af
föður sínum á stærri og öflugri
bát, sem á eftir að rista öldur
Arnarfjarðar á komandi árum.
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Lausafjáruppboð
Laugardaginn 12. desember 1992 kl.
14.00 verður boðin upp við bifreiða-
geymslu embættisins, Aðalstræti 12,
Bolungarvík, bifreiðin KU 199, Toyota
Hiace, árgerð 1989. Gera má ráð fyrir
að greiðsla verði áskilin við hamars-
högg.
4. desember 1992.
Sýslumaðurinn í Bolungarvík.
Styrkur
til
Kvenfélagið Ósk, ísafirði, auglýsir eftir
umsóknum um styrk úr æskulýðssjóði
félagsins, en sjóðnum er ætlað að
styrkja æskulýðsstarf á ísafirði. Um-
sóknir sendist fyrir 29. desember 1992
til félagsins að Austurvegi 11, ísafirði.
Kvenfélagið Ósk, ísafirði.
j FRÉTTABLAPIÐ
ísafjarðarkaupstaður
Staða hafnarstjóra
Staða hafnarstjóra við ísafjarðarhöfn
er laus til umsóknar.
Viðkomandi hefji störf 1. janúar 1993,
eða eftir nánara samkomulagi. Æski-
legt er að umsækjendur hafi skip-
stjórnarréttindi, vélstjórnarréttindi
eða tæknimenntun.
Nánari upplýsingar veittar hjá undir-
rituðum í síma 94-3722.
Umsóknum ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf skal
skilað til undirritaðs fyrir 20. desem-
ber nk.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
Jólaljós á Austurvelli
Laugardaginn 12. desember nk. kl.
14.00 verða tendruð ljós á jólatrénu á
Austurvelli.
Dagskrá:
Sunnukórinn syngur.
Ávarp bæjarstjóra,
Smára Haraldssonar.
Ávarp danska konsúlsins,
Fylkis Ágústssonar.
Ljósin tendruð.
Sunnukórinn leiðir almennan söng.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
Dufl
á reki
Varðskipið Ægir kom inn til
ísafjarðar eftir hádegi sl. föstu-
dag með stórt legufæradufl sem
eitt skipa Eimskipa hf. hafði
tilkynnt um á reki út af Kögri.
Að sögn skipverja á Ægi hirtu
þeir eins dufl upp í fyrra út af
Austtjörðum og fluttu til Seyð-
isfjarðar. Enn eitt duflið af
þessari gerð hefur legið uppi í
Kjaransvíkurá á Homströndum
í a.m.k. tvo áratugi.
Dufl þessi eru tunnulaga, um
þrír metrar á hæð og þrír metrar
í þvermál. Reköld af þessu tagi
geta verið afar hættuleg skip-
um ef þau lenda á þeim. Sér-
staklega er hætta á að slíkt
gerist í vondum veðrum þegar
ratsjá sýnir ekki hluti af þessari
stærð.
-GHj.