Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 7
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐH) L
Miðvikudagur 30. nóvember 1994
ISAFJARÐAR-
KIRKJA
Aðventukvöld
Aðventukvöld verður í kapellunni í Fram-
haldsskólanum á Isafirði kl. 20.30 sunnudag-
inn 4. desember 1994.
Sunnukórinn og kirkjukórinn syngja.
Fram fer samleikur á hljóðfæri og upplestur.
Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnuvegur
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Sóknarnefnd.
- Siguröur Kristjánsson skrifar
Alþjóðadagur fatlaðra
á laugardaginn
Á laugardaginn, 3. desember, er alþjóðadagur
fatlaðra. Sameinuðu þjóðirnar hafa hvatt aðildarþjóðir
sínar til þess að vekja athygli á málefnum fatlaðra
þann dag. íslensk stjórnvöld gera sorglega lítið til
þess að bregðast við þeirri hvatningu, eftir því sem
fram kemur í tilkynningu frá Þroskahjálp, landssam-
tökum fatlaðra.
í tilefni af degi fatlaðra efnir Þroskahjálp til kynn-
ingar á málefnum fatlaðra dagana 29. nóv. til 3. des.
Það sem heitast brennur á skjólstæðingum Þroska-
hjálpar nú er neyðarástand í húsnæðismálum mikið
fatlaðra einstaklinga. Einnig verður reynt að vekja at-
hygli á réttindamálum þroskaheftra á vernduðum
vinnustöðum, aðstöðu fyrir fatlaða í skólum o.fl.
Vestfirðingar hafa átt góðu
gengi að fagna í fiskveiðum og
vinnslu sjávarafurða. Ekki er
vafi á því að mjög hefur skipt til
hins verra í þessum grundvall-
aratvinnugreinum á síðustu 10
árum. Veiðitakmarkanir, sér-
staklega hömlur á þorskveið-
um, hafa valdið mjög miklum
samdrætti og versnandi afkomu
fólks og fyrirtækja.
Það eru líklega hinar miklu
tekjur, sem þessi sókn hér áður
fyrr gaf af sér, sem hefur valdið
því að ótryggari eða seinteknari
tekjuöflun, svo sem af ferða-
þjónustu, hefur þróast mun
hægar en æskilegt hefði verið.
Auðvitað hefur ýmislegt á-
gætt verið gert í ferðaþjónustu
á Vestfjörðum, en markaðs-
setningu Vestfjarða á erlendri
grund sem ferðamannasvæðis
hefur tæplega verið sá sómi
sýndur sem vert hefði verið. Ef
vel ætti að vera, þá væru risin
af grunni sumarhótel á ýmsum
stöðum þar sem náttúra lands-
ins er einstæð og ógleymanleg,
á stöðum eins og Árneshreppi,
við Breiðafjörð, á Hornströnd-
um og jafnvel á Látrabjargi.
íslenskar ferðaskrifstofur
hafa mikla reynslu af því að
skipuleggja ferðir útlendinga
unr landið og vita talsvert um
hverju þetta fólk sækist helst
eftir. Við vitum að ekki þarf að
koma til Islands til þess að
nálgast sól og hita eða til þess
að skoða borgir og fornar
byggingar. Fólk kemur til þess
að kynnast því sem það hefur
ekki mikinn aðgang að í eigin
landi og þykir fagurt eða for-
Sigurður Kristjánsson.
„...ferðaþjónusta hefur alla
möguleika til þess að verða
vaxtarbroddur og taka við
fólksaukningu á vinnumark-
aði. A nœstu árum eru líkleg-
ar ýmsar framkvœmdir á vœn-
legum ferðamannastöðum.
Þetta er umhugsunarefni fyrir
þá sem skortir framtíðarverk-
efni en hafa frumleika
og árœði...“
vitnilegt.
Möguleikar Vestfjarða til
þess að vekja áhuga erlendra
ferðamanna eru mjög miklir að
mínu mati og það er mjög mik-
ið af ónýttum möguleikum.
Gróið land Strandasýslu er sér-
lega vel fallið til hestaferða sem
þegar eru mjög vinsælar í
ferðamannaiðnaðinum. Jökla-
ferðir má væntanlega skipu-
leggja á Vestfjarðahálendinu
en þá eru yfirleitt hafðir
vélsleðar til þeirra ferðalaga.
Það má hugsa sér sjóferðir,
bæði sem hreinar veiðiferðir og
einnig sem útsýnisferðir, og
síðan auðvitað útsýnisflug.
Hinar gömlu minjar síldar-
söltunar á Djúpvík og í Ing-
ólfsfirði eru forvitnilegar fyrir
ferðamenn. Það er að sjálf-
sögðu mjög aðkallandi að bæta
verulega ve§i um Strandir
norður í Ámeshrepp, því
slæmur og seinfarinn vegur
skapar litla ferðagleði fyrir þá
sem við viljum að komi aftur og
aftur í þá paradís sem samspil
fjarða og fjalla myndar á þessu
svæði. Þá munu íbúarnir þurfa
vegabætur sín vegna og vissu-
lega er sú einangrun sem fylgir
lokun vegarins svo til allan
veturinn alveg óviðunandi.
Ár á Vestfjörðum eru yfir-
leitt stuttar og kaldar og ekki
mikið um veiðiár. Eg minnist
þess hins vegar fyrir allmörg-
um árum þegar ég fyrst kom til
Vestfjarða til dvalar, að víða
var hægt að veiða silung á stöng
í fjarðabotnum. Kynni mín af
þessu voru í Arnarfirðinum. Frá
fomu fari hefur ísafjörður boð-
ið upp á aðstöðu til skíðaiðk-
unar og vonandi breyta áföll af
snjóflóðum þar engu um. Að-
stæður fyrir skíðaíþróttina eru
víða heppilegar á Vestfjörðum
og slíkt er mikilvægt fyrir hót-
elrekstur þegar ferðamanna-
straumur er að öðru leyti yfir-
leitt í lágmarki.
Nú er meiri þörf en oft áður
til þess að styrkja innviði at-
vinnulífsins þar sem atvinnu-
leysi hefur gert alvarlega vart
við sig. Samdráttur í hefð-
bundnum búgreinum er búinn
að vera vaxandi vandamál sem
ekki er sjáanlega á enda. Ein-
hæft atvinnulíf skapar stundum
vissa þreytu hjá fólki og vekur
umhugsun um tilbreytni sem
verður síðan jafnvel orsök bú-
ferlaflutnings til þéttbýlisins. I
dag hefur þéttbýlið á suðvest-
urhorni landsins lítið upp á að
bjóða fyrir nýja landnema. Þar
hefur rfkt hvað mest atvinnu-
leysi.
Það er yfirleitt viðurkennt,
að ferðaþjónusta hefur alla
möguleika til þess að verða
vaxtarbroddur og taka við
fólksaukningu á vinnumarkaði.
Á næstu árum eru líklegar
ýmsar framkvæmdir á vænleg-
um ferðamannastöðum. Þetta
er umhugsunarefni fyrir þá sem
skortir framtíðarverkefni en
hafa frumleika og áræði til þess
að takast á við slfka hluti.
Þess er að vænta, að Vest-
firðingar verði ekki eftirbátar
annarra í því að nýta mögu-
leikana til ferðamannaiðnaðar
í framtíðinni. Megi farsæld
fylgja athöfnum.
Höfundur tekur þátt í próf-
kjöri Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum.
og til jólagjafa
Mikið úrval af heimilisvörum og heimilistœkjum
sfc
16^”76
x snjóÞot5Í0
ód^ppÁ
U 6* °
rtip
G°- úða
ði,U
St9Í'
Opið á laugardögum til jóia
Laugardaginn 3. des. 13-16
Laugardaginn 10. des 13-18
Laugardaginn 17. des. 13-18
Þorláksmessu 9-23
Aðfangadag 9-12
i 1
ö|a Q □ jrn, Q Q|Q|Q JFE nnnnnnnn
Jh Q|E3 Q m Q Q|QQ| DDDDDDDD
omiíipm 1 JJJ N J J IJdlll H LI
BYGGINGAVÖRUVERSLUN JFE BOLUNGARVÍK S. 7353
- NVTSAMAR JÓLAGJAFIR -