Morgunblaðið - 18.07.2015, Side 23

Morgunblaðið - 18.07.2015, Side 23
MESSUR 23á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2015 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín - góð næring fyrir dýrin þín - Ekkert hveiti, soja eða maís Engin erfðabreytt matvæliEngin aukaefni Enginn sykur eða mjólkurafurðir 2.054. - kr. Verð fr á REGAL hunda- og kattafóður AMH | Akranesi | Sími 431-2019 Þá liggur það fyrir að heims-meistarinn Magnús Carl-sen mun tefla fyrir Noregá Evrópumóti landsliða sem fram fer í Reykjavík í nóv- ember nk. Aðrir í norska liðinu eru Ludwig Hammer, Simen Agdestein, Aryan Tari og Frode Urkedahl. Þetta verður í fyrsta sinn síðan 1988, er Garrí Kasparov tók þátt í heimsbikarmóti Stöðvar 2, sem ótvíræður heimsmeistari teflir hér á landi. Búast má við að 30-40 lið tefli í opna flokki mótsins og 25-30 lið í kvennaflokknum. Ljóst er að Ís- lendingar munu tefla fram tveimur liðum í opna flokknum en aðallið Ís- lands hefur enn ekki verið tilkynnt, en fyrstu menn inn þar verða Hannes Hlífar Stefánsson, Héðinn Steingrímsson og Hjörvar Stef- ánsson. Hið svonefna gullaldarlið Íslands verður skipað Friðriki Ólafssyni, Jóhanni Hjartarsyni, Jóni L. Árnasyni, Margeiri Péturs- syni og undirrituðum. Ekkert ligg- ur fyrir um það hvernig íslenska kvennaliðið verður skipað en Lenka Ptacnikova mun án efa tefla á 1. borði. Mótið fer fram í Laugardals- höll. Eitt sigurstranglegasta lið þess- arar keppni hlýtur að vera lið Ar- mena sem teflir fram Levon Aronj- an á fyrsta borði. Aserbaídsjan hefur unnið keppnina tvisvar og þá koma Rússar alltaf sterklega til greina sem sigurvegarar þó frammistaða þeirra eftir að Kasp- arov hætti hafi verið allt annað en viðunandi frá sögulegum sjónarhóli séð. Vladimir Kramnik mun sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum leiða sveit þeirra að þessu sinni. Þá má nefna Úkraínumenn með Vasilí Ivantsjúk fremstan í flokki. Af þekktum keppendum má nefna An- ish Giri sem teflir á 1. borði fyrir Hollendinga og Michael Adams sem teflir á 1. borði fyrir Englendinga. Þó að Evrópumótin séu aðeins styttri en Ólympíumótin, níu um- ferðir á móti ellefu, eru þau að sumu leyti erfiðari þar sem flestar sveitirnar eru þéttar fyrir. Stig eru látin ráða en ekki vinningar, 2 ½ vinningur gefur jafn mörg stig og fjórir vinningar og ákveðin taktík ræður stundum ferðinni í innbyrðis viðureignum. Íslendingar hafa oft náð góðum árangri á Evrópu- mótinu, 13. sæti í Debrecen 1992 er besta lokaniðurstaðan og þar fékk Jóhann Hjartarson silfurverðlaun fyrir bestan árangur á 1. borði. Þá náðist góður árangur í Heraklion í Grikklandi 2007. Evrópumót landsliða fór fyrst fram í Vín í Austurríki árið 1957 og þá var teflt á tíu borðum. Meðal liðsmanna sigursveitar Sovétmanna var Mikhael Tal sem þá var að hefja einhverja mögnuðustu sig- urgöngu sem skáksagan kann frá að greina. Leiftrandi leikfléttustíll hans skein skært á þessu móti. Evrópumót landsliða í Vín 1957: Mikhael Tal – Rudolph Teschner (V-Þýskaland ) Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O d6 6. c3 Be7 7. d4 b5 8. Bb3 Bg4 9. h3 Bxf3 10. Dxf3!? Fyrsta fórnin, hvítur fær gott spil fyrir peðið. 10. … exd4 11. Dg3 g6 12. Bd5 Dd7 13. Bh6! Almenn óþægindi fylgja þessum langa biskupsleik, svartur getur ekki komið kónginum í skjól. 13. … Hb8 14. f4 Rd8 15. Rd2 c6 16. Bb3 dxc3 17. Dxc3 Da7 18. Kh1 Dc5 19. Dd3 Rd7 20. e5! Gegnumbrot sem hefur það að markmiði að rýma e4-reitinn fyrir riddarann. 20. … d5 21. f5 gxf5 22. Dxf5 Rf8 Reynir að verja veikleikana. 23. Re4! dxe4 24. Hac1 Db6 25. Hcd1! - Við hótuninni 26. Bxf7+ er eng- in haldgóð vörn og svartur gafst upp. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Magnús Carlsen teflir á EM í Reykjavík Árbæjarkirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Petrína Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Kristina K. Szklenár er organisti. Sverrir Sveinsson leikur á kornett. Félagar úr kirkjukórnum leiða safnaðarsöng. Kirkjukaffi á eftir. Áskirkja | Áskirkja er lokuð vegna sum- arleyfa sóknarprests og starfsfólks til 18. ágúst. Næsta almenna messa verður í kirkj- unni sunnudaginn 23. ágúst. Sjá nánar á as- kirkja.is. Bessastaðakirkja | Sameiginleg sum- armessa safnaðanna kl. 11 í Garðakirkju. Sr. Friðrik J. Hjartar og Bjartur Logi Guðnason annast tal og tóna. Bústaðakirkja | Sumarmessa kl. 11. Kór Bústaðakirkju syngur. Messuþjónar aðstoða. Prestur er sr. Pálmi Matthíasson. Heitt verð- ur á könnunni eftir messu. Munið að nú er sumartími á messum. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18 og mán., mið. og fös. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnudagsmessa. Dómkirkjan | Messa kl. 11. Karl Sig- urbjörnsson biskup prédikar og þjónar fyrir altari. Mæðgurnar Ilmur Kristjánsdóttir og Henný Hinz lesa ritningarlestrana. Organisti er Kári Þormar og Dómkórinn syngur. Garðakirkja | Messa kl. 11. Sr. Friðrik J. Hjartar annast prestsþjónustuna en Bjartur Logi Guðnason organisti leiðir safnaðarsöng- inn. Stúlka frá Hollandi fermist. Grensáskirkja | Vegna sumarleyfa er kirkj- an lokuð til 13. ágúst. Sé þörf fyrir prests- þjónustu má leita til nágrannapresta. Bent er á guðsþjónustur í öðrum kirkjum. Grund dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta í umsjón Dómkirkjunnar í Reykjavík kl. 14 í hátíðasal Grundar. Sr. Sveinn Valgeirsson þjónar. Tónlist er í um- sjón organista og Kammerkórs Dómkirkj- unnar. Hallgrímskirkja | Messa kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Eyþór Franzson Wechner. Sögustund fyrir börnin í umsjá Ingu Harðardóttur. Alþjóðlegt orgelsumar: Orgeltónleikar laugardag kl. 12 og sunnudag kl. 17. Dexter Kennedy frá Bandaríkjunum leikur. Fyrirbænaguðsþjón- usta þriðjudag kl. 10.30. Árdegismessa mið- vikudag kl. 8. Háteigskirkja | Messa kl. 11. Organisti er Steinar Logi. Prestur er sr. Helga Soffía Kon- ráðsdóttir. Klyppsstaðarkirkja í Loðmundarfirði | Ár- leg messa fer fram kl. 14. Prestur er Þorgeir Arason og félagar úr Kór Seyðisfjarðarkirkju leiða almennan söng. Kirkjukaffi. Til kirkj- unnar má áætla um 1,5 klst. akstur frá Borg- arfirði eystra. Vegurinn er aðeins fær fjór- hjóladrifnum bílum. Kópavogskirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Magnús Björn Björnsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Lenka Mátéová. Laugarneskirkja | Messuhald fellur niður 28. júní - 2. ágúst. Bent á þjónustu í Há- teigsprestakalli á meðan. Maríukirkja við Raufarsel | Messutímar: Alla virka daga kl. 18.30. Laugardaga (sunnudagsmessa) kl. 18.30 á ensku. Sunnudaga kl. 11. Safnkirkjan í Árbæjarsafni | Guðsþjón- usta kl. 14. Sigrún Steingrímsdóttir org- anisti stjórnar almennum safnaðarsöng. Í forföllum sr. Kristins Ágústs Friðfinnssonar þjónar sr. Pétur Þorsteinsson fyrir altari og prédikar. Selfosskirkja | Messa kl. 11. Kirkjukórinn syngur. Organisti er Jörg Sondermann. Prestur er Þorvaldur Karl Helgason. Kaffi og súpa í safnaðarheimilinu eftir messu. Seljakirkja | Kvöldmessa kl. 20. Sr. Ólaf- ur Jóhann Borgþórsson prédikar. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða safnaðarsöng. Org- anisti er Tómas Guðni Eggertsson. Alt- arisganga. Seltjarnarneskirkja | Helgistund kl. 11 í umsjá Þorgils Hlyns Þorbergssonar guð- fræðings. Kaffisopi eftir athöfn. Skálholtsdómkirkja | Hátíðarmessa á Skálholtshátíð kl. 14. Dr. Einar Sigurbjörns- son prédikar. Sr. Egill Hallgrímsson, sr. Kristján Valur Ingólfsson, sr. Halldór Reyn- isson, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir og biskup Íslands, sr. Agnes Sigurðardóttir, þjóna fyrir altari. Lesarar eru Magnús E. Kristjánsson og Ólöf Kristjánsdóttir. Kross- beri er Helga Lára Guðmundsdóttir. Með- hjálpari er Elinborg Sigurðardóttir. Skál- holtskórinn syngur. Einsöngvari er Margrét Bóasdóttir. Baldvin Oddsson leikur á trompet. Organisti er Jón Bjarnason. Vídalínskirkja | Sameiginleg sumarmessa safnaðanna kl. 11 í Garðakirkju. Sr. Friðrik J. Hjartar og Bjartur Logi Guðnason annast tal og tóna. Orð dagsins: Sjá, ég er með yður. (Matt. 28) Morgunblaðið/Brynjar GautiSkálholtskirkja. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru send- ar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.