Morgunblaðið - 18.07.2015, Page 39

Morgunblaðið - 18.07.2015, Page 39
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég ræddi um það í pistli fyrir stuttu að Nashville væri að ganga í gegn- um ákveðna yfirhalningu hvað tón- listarlegar áherslur varðar. Slíkt er eðlilegt, reglubundið víkja hinir eldri (stundum æmtandi) fyrir hin- um ungu, síðan verða þeir gamlir og hringrásin heldur áfram. Í nefndum pistli talaði ég um stúlkurnar og ríkari áherslu hjá þeim á innihalds- ríka texta, en strákarnir, nokkrir óknyttapiltar a.m.k., eru líka að brjótast úr spennitreyju Nashville- iðnaðarins. Ólíkt Þetta gera þeir með ólíkum hætti og ég nefni hér sérstaklega þrjá sem eru skínandi dæmi um þessa þróun. Og merkilegt nokk, þessi ný- sköpun hefur mikið með fortíðina að gera, menn horfa til einfaldari, „hreinni“ tíma, líkt og pönkararnir gerðu t.a.m. Sturgill Simpson keyr- ir þannig á hrátt honkí-tonk að hætti Dwights Yokam og minnir oft og tíðum á Waylon Jennings. Simp- son þarf þá engan kúrekahatt; hann treður upp í skógarhöggsmanna- skyrtu og Converse-skóm og gæti þess vegna verið meðlimur í ein- hverri nýbylgjurokksveitinni. Ja- mey Johnson horfir til sígildra sveitasöngvara eins og George Jon- es og Merle Haggard og útlaga- viðhorfið stýrir allri hans aðkomu. Og svo er það umfjöllunarefni þess- arar greinar, Chris Stapleton. Líkt og Johnson hefur hann starfað um árabil á bakvið tjöldin sem laga- smiður en steig svo loksins fram sem sólólistamaður í ár, 37 ára gamall, með plötuna Traveller. Ég er búinn að hlusta þessa plötu á gat undanfarnar vikur og hún er hæglega það besta sem ég hef heyrt úr kántríkreðsunni í árafjöld. Trúið mér, það er ekki snöggur blettur á plötunni, fyrst og síðast vegna þess að Stapleton er ótrúlegur lagasmið- ur. Maður finnur að hann hefur ver- ið að geyma bestu molanna fyrir sjálfan sig, og sá hefur slípað stein- Fram fyrir tjöldin inn í lagasmíðadeildinni en hann er höfundur yfir 150 laga sem hafa m.a. birst á plötum Adele, Tim McGraw, LeAnn Rimes, Alison Krauss, Sheryl Crow, George Strait og Joss Stone svo eitthvað sé nefnt. Er það reyndar svo að allir helstu meginstraumslistamennirnir í Nashville hafa nýtt sér hæfileika Stapleton að einhverju marki á síð- ustu árum. Hreint Allt hjálpast reyndar að á þessum grip, upptökustjórnandinn Dave Cobb hefur einnig unnið með áð- urnefndum Simpson og Johnson og gefur plötunni hlýjan, jarðlitaðan hljóm. Það sem er þá einkar aðlað- andi við plötuna er margbreytileik- inn; hér eru rokkarar, ballöður, hreint kántrí, sálartónlist, blágresi og surgandi tilraunagítarar meira að segja. Kántrí er alltaf útgangs- punkturinn en sálartónlistarhula og suðurríkjarokkskeimur eru og á sveimi. Allt er þó bundið kirfilega saman með innblásinni túlkun Stapleton sem gat greinilega ekki beðið lengur eftir því að fá að spreyta sig. Merkilegt líka, að þrátt fyrir þessa miklu vinnu fyrir vinsælda- kántríið standsetur hann sig ekki þannig ímyndarlega; alveg eins og félagarnir tveir sem ég hef verið að tala um. Stapleton er síðskeggur og með útlagaáruna á fullu stími. Þannig klárar hann eiginlega dæm- ið, við rokkarar eigum erfitt með að standast svona gotneska töffara. Heill þér, ferðalangur! »Maður finnur aðhann hefur verið að geyma bestu molanna fyrir sjálfa sig, og sá hefur slípað steininn í lagasmíðadeildinni  Nashville-söngvasmiðurinn Chris Stapleton gefur út plötu  Framúrskarandi skífa og lengi var von á einum Ferðalangur Chris Stapleton gerir hlutina eftir sínu höfði. MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2015 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Fyrir tuttugu árum efndu mynd- listarmennirnir Alda Sigurð- ardóttir og Kristveig Halldórs- dóttir, til listahátíðar á Laugarvatni þar sem þær voru þá búsettar. Yfir 130 listamenn tóku þátt í þeirri hátíð og þegar þær efndu aftur til hátíðar tíu árum síð- ar voru listamennirnir að minnsta kosti 145. „Út frá þessum hátíðum kviknaði hugmyndin að því að setja upp dvalarstað fyrir skapandi fólk og úr varð Gullkistan, sem er miðstöð sköpunar á Laugarvatni,“ segir Inga Jónsdóttir, safnstjóri Lista- safns Árnesinga. Litið um öxl Í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá fyrstu listahátíð Öldu og Krist- veigar hefur nú verið sett upp sýn- ing í Listasafni Árnesinga á nýleg- um verkum 24 listamanna sem tengst hafa Gullkistunni, ýmist sem þátttakendur í listahátíðunum eða dvalið í miðstöðinni. Verkin valdi Ben Valentine sem ráðinn var sýn- ingarstjóri sýningarinnar og nálg- unin er auga gestsins. Ben Valent- ine er sjálfstætt starfandi rithöfundur og sýningarstjóri sem kom hingað frá NY, en er nú að flytjast búferlum til Kambódíu þar sem hann mun stýra spennandi listamiðstöð. „Mér finnst það mikill heiður að hafa verið beðinn um að setja upp sýninguna en ég kom fyrst í Gull- kistuna árið 2013 til að vinna að skrifum og annarri list minni. Á þeim tíma bjó ég í New York og það var kjörið tækifæri fyrir mig að komast í Gullkistuna og fá næði og innblástur til að vinna að verkum mínum,“ segir Ben Valentine. Erfitt val Valentine býr við þann lúxus- vanda að hafa úr gífurlegum fjölda verka að velja fyrir sýningu Lista- safns Árnesinga á 20 ára sögu Gull- kistunnar. „Eftir að hafa legið yfir langri og fjölbreyttri sögu Gullkistunnar, með yfir 500 listamönnum, tveimur stórum hátíðum og nýlegum við- burðum hef ég öðlast nýja sýn á starfið og kann betur að meta Gull- istuna, sem stað fyrir frjálsa og skapandi tjáningu til að dafna.“ Valentine segir ekki hægt að sýna öll verkin sem orðið hafa til vegna Gullkistunnar en þau sem hann hafi valið séu eftir listamenn sem sannarlega urðu fyrir áhrifum af dvöl sinni á Laugarvatni og verk þeirra endurspegli orku og einstök gæði Gullkistunnar. Frjáls og skapandi tjáning Gullkistunnar  Listasafn Árnesinga heldur sérstaka sýningu í tilefni 20 ára afmæli Gullkistunnar á Laugarvatni List Ben Valentine er sýningarstjóri á sýningu Listasafns Árnesinga úr 20 ára starfi Gullkistunnar, sem er miðstöðu sköpunar á Laugarvatni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.