Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2015, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2015, Blaðsíða 26
Þ að jafnast fátt á við það að gæða sér á eðal- kókósbolluís sem er gerð- ur úr mjólk úr kúnni sem stendur nánast við hliðina á manni. Þetta er hægt á bónda- bænum Efstadal II í Blá- skógabyggð. Bændurnir þar reka gistiheimili, veitingastað og ísbúð- ina Íshlöðuna meðfram venjuleg- um sveitastörfum. Fjölskyldan á bænum er með kýr og hesta auk þess að vera á fullu í ferða- bransanum. Það var margt um manninn þegar blaðamann bar að garði og notaleg stemning í Íshlöðunni, en þar má horfa á kýrnar í fjósinu í gegnum gler. Sölvi Arnarson, bóndasonur og bóndi í Efstadal, hefur í nógu að snúast en gefur sér tíma með blaðamanni. Beint úr kúnni í ísvél Blaðamaður hefur sérstakan áhuga á ísnum, enda forfallinn ísáhugamaður frá blautu barns- beini. „Þetta er heimalagaður ís. Við skiljum rjómann sjálf og not- um mjólkina okkar og þetta er uppskrift sem var búin til fyrir okkur,“ segir hann. Sölvi nær í jarðarberin á næsta bæ og öll afurðin er algerlega náttúruleg. Þau selja einnig rabbabarasultu, skyr, fetaost og kjöt auk silungs frá Útey. „Konseptið er beint frá býli. Ég fer einu sinni í viku og næ í ferskt grænmeti hér í upp- sveitunum, þetta er orðið ein stór matarkista. Ég fer í Reyk- holt, á Flúðir og í Laugarás og fæ allt sem ég vil þar, meðal annars jarðarber í Silfurtúni sem eru bara þau bestu sem finnast, rosalega sæt og góð. Jarð- arberjaísinn er því það beinasta frá býli,“ segir hann, en í ísnum er einungis sykur, rjómi, bindi- efni og svo það sem gefur bragð, eins og jarðarber. Kókósbolluísinn vinsælastur Íshlaðan býður upp á spennandi bragðtegundir sem finnast ekki víða. Kókósbolluísinn hefur slegið í gegn. Oreoís og jarðarberja fylgja fast á hæla hans í vin- sældum, segja þær systur Ingi- björg og Elínborg Anna Jóhanns- dætur sem vinna í afgreiðslunni. Sölvi hefur ekki tölu á ísum sem renna ofan í gesti á degi hverj- um. „Nei, við erum svo miklir sveitanördar að ég bara veit það ekki. Þetta gengur bara vel,“ segir hann og brosir. Þegar hann er inntur eftir hversu margir gestir koma þar á degi hverjum svarar hann: „Hellingur! Það er bara miklu fleira fólk en við reiknuðum með og við erum ekk- ert að markaðssetja okkur.“ Kiknaði í hnjánum yfir ísnum Sölvi segir að bæði Íslendingum og erlendum ferðamönnum finnist það vera mikil upplifun að koma á bæinn og fá sér ís eða snæða á veitingastaðnum og vera í nánd við náttúruna og dýrin. „Það kom hérna kona um daginn sem fékk sér ís. Hún smakkaði ísinn og leit svo á beljurnar og hún varð frá sér numin,“ segir Sölvi. „Já, hún kiknaði í hnjánum, henni fannst ísinn svo góður, hún átti ekki von á að finnast hann svona góður og svo leit hún á beljurnar og fékk taugaveikl- unarhláturskast,“ segir Kristín Ingunn Haraldsdóttir, kona Sölva, sem hefur sest hjá okkur. „Svo varð hún svo vandræðaleg Morgunblaðið/Eggert BÆNDURNIR Í EFSTADAL II STUNDA EKKI EINGÖNGU HEFÐBUNDIN SVEITASTÖRF ÞVÍ ÞAR ER REKIN FJÖL- BREYTT FERÐAÞJÓNUSTA. GAMALLI HLÖÐU VAR BREYTT Í ÍSBÚÐ SEM BER NAFNIÐ ÍSHLAÐAN. ÞAR GETA GESTIR GÆTT SÉR Á ÍS SEM GERÐUR ER ÚR KÚA- MJÓLK ÚR FJÓSINU. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Systurnar frá Laugardalshólum, Ingibjörg og Elínborg Anna Jóhannsdætur, vinna í Íshlöðunni. Þær eru sammála um að kókósbolluísinn sé vinsælastur. Kýrnar gefa mjólkina og mjólkin gefur okkar ísinn sem framleiddur er á bæn- um Efstadal II. Frá vinstri eru Árni Benónýsson, Ingvar Jökull Sölvason, Selma Lísa Björgvinsdóttir og Sölvi Arnarson. yfir því hvað hún hefði orðið uppveðruð yfir þessu,“ segir hún og bætir við: „Mig langaði bara að faðma hana.“ Snjólaug er mjólkur- drottningin Hægt er að fá tvenns konar ís í Íshlöðunni, ítalskan „gelato“ ís og svo venjulegan úr vél. „Við höfum verið að reyna að bæta í meiri rjóma til að fá fram þetta góða rjómabragð, en minni rjómi er í ísnum úr vélinni,“ segir Sölvi. Sölvi segir að kúabúið sé rekið af „mennskum róbótum“ þannig að vel sé haldið utan um hvaðan mjólkin kemur. „Gamli maðurinn og Árni Már sjá um fjósið þannig að það er hægt að fá sýni úr kúnum og við getum þá bara valið úr hvaða kú við búum til ísinn. Þannig getum við sagt fólki til dæmis að ísinn sem það sé að borða í dag sé úr hvítu beljunni. Snjólaug er mjólk- urdrottningin okkar, hún er her- foringinn,“ segir Sölvi og út- skýrir að kýrnar gefi mismikla mjólk og fitustigið sé ekki alltaf eins. Starfsfólkið líka beint frá býli Sölvi er sonur Bjargar og fóst- ursonur Sveinbjörns sem eru bændurnir á bænum, ásamt börnum sínum. Hann hefur búið í Efstadal II síðan hann var sjö ára og því ekta sveitadrengur. Þau byrjuðu í ferðaþjónustunni 1994 með hestaleigu en færðu svo út kvíarnar fyrir tveimur ár- um og eru nú með tíu herbergja hótel. Útlendingar eru þeir sem bóka herbergin en Íslendingar eru duglegir að koma að fá sér ís og mat. „Það sem hefur komið okkur mest á óvart er traffíkin af Íslendingum. Það hefur svoldið vantað hér, áður fyrr fór fólk í Eden og fékk sér ís og kíkti á apann en nú erum við komin með fullt af fólki sem er fasta- kúnnar,“ segir hann. Í ísbúðinni starfa heimasæturnar af næsta bæ, Laugardalshólum, þær Ingi- björg og Elínborg Anna. „Það er ekki bara maturinn sem er beint frá býli, heldur starfsfólkið líka,“ segir Sölvi og hlær. HEIMALAGAÐUR SVEITAÍS „Ísinn er úr Snjólaugu“ Morgunblaðið/Ásdís Matur og drykkir Rauðrófur fyrir hjartað *Rauðrófur hafa undanfarið komist á vin-sældalista margra kokka og eru notaðar bæðií mat og heilsudrykki. Þær eru meinhollar entalið er að þær geti aukið blóðflæði líkamansog lækkað blóðþrýsting og þannig jafnvelunnið gegn hjartasjúkdómum. Þær innihaldameðal annars fjölmörg vítamín, járn, magn- esíum og prótín. Svo eru þær ljúffengar í sal- öt, sem meðlæti eða í grænmetisrétti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.