Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 06.12.1995, Blaðsíða 7

Vestfirska fréttablaðið - 06.12.1995, Blaðsíða 7
VESTFIRSKA 7 FRÉTTABLAÐIÐ J------------------- ---------- --------------- ---------- ------------- Einar Kristinn fertugur Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður varð fertugur sl. laugardag, 2. desember. Opið hús var í Félagsheimilinu í Bolungarvík þá um kvöldið og kom þar mikill fjöldi vina og velunnara afýmum landshornum til að samfagna afmœlisbarninu og fjölskyldu þess og þiggja góðgerðir. Meðfylgjandi myndir eru teknar ífagnaðinum. Einar K. Guðfinnsson ásamt eiginkonu sinni, Sigrúnu J. Þórisdóttur. Björn Helgason, íþróttafulltrúi á ísafirði, Einar Kristinn Guðfinnsson, sr. Agnes Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvík, og Jón Sigurpálsson, safnavörður á ísafirði. Niðurskurðarlistinn Ijótur Meirihluti fjárlaganefndar („niðurskurðarnefndar") Al- þingis sendi nefndarmanninum og afmælisbarninu Einari K. Guðfinnssyni svohljóðandi skeyti á afmælis- daginn: Berjumst við um með beittar sveðjur, brjálaðir skerum þetta og hitt, en fjáriaganefndin frómar kveðjur færir þér heim í ríki þitt. Niðurskurðar er listinn Ijótur, loforðin standa harla fá: Sjúkrahús, Ósvör og safnið Hnjótur - sýnist þó lafa Einar Ká. Undir þessar „frómu kveðjur“ rituðu Jón (Kristjáns- son), Sturla Böðvarsson), Árni Matt, Árni Johnsen, (séra) Hjálmar, Arnbjörg (Sveinsdóttir) og ísólfur Gylfi (Pálmason). ...aka þveran Gilsfjörðinn Halldór Blöndal samgönguráðherra sendi afmælis- barninu EKG eftirfarandi vísu vestur: Heillakveðjur héðan færðu, vinur, að við mættum eitthvert sinn aka þveran Gilsfjörðinn. Það reyndist vera voldugur kór samankominn í Félagsheimilinu í Bolungarvík á laugardagskvöldið þegar tvö hundruð veislugestir tóku lagið, afmælisbarninu til heiðurs og sjálfum sér til ánægju. Andaktin og hið óvenjulega samræmi í svipnum á fólkinu á þessari mynd stafar af því, að hér er verið að syngja sérlega fingerðan og vandasaman tón. Frá vinstri: Kristín Magnúsdóttir, Sigurjón Sveinbjörnsson, Guðrún Jónsdóttir, Sólberg Jónsson og Björg Guðmundsdóttir. Enn er sungið: Árni Magnússon, skólastjóri Hlíðaskóla í Reykjavík (svili Einars Kristins), Magdalena Sirrý Þórisdóttir, eiginkona Jóns Björns tannlæknis (mágkona Einars), Þórir Sigtryggsson, tengdafaðir afmælisbarnsins, og Magnús Guðnason. Hlýtt á skálaræðu í afmælisfveislunni. Hér má m.a. sjá Kristján Haraldsson orkubússtjóra, Einar Odd Kristjánsson, Jón Friðgeir Einarsson og Margréti Kristjánsdóttur, Hinrik Kristj- ánsson, Víði Benediktsson og Ásgeir Þór Jónsson. Jón Björn Sigtryggsson tannlæknir í Keflavík og Geirþrúður Charlesdóttir á ísafirði ásamt afmælisbarninu.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.