Vestfirska fréttablaðið - 24.01.1996, Qupperneq 1
FRÉTTABLAÐIÐ
PIZZA 67 S 456 3367
í SJALLANUM ÍSAFIRÐI
Miðvikudagur 24. janúar 1996 • 4. tbl. 22. árg.
S 456 4011 • Fax 456 5225
Verð kr. 170 m/vsk
Bolungarvik:
Ágúst Oddsson afhendir Jóni Guðna Guömundssyni veglegan bikar í tilefni af kjöri hans sem
íþróttamanns ársins 1995 í Bolungarvík. „Hér er um að ræöa einstakling sem hefur um langt
árabil sinnt íþrótt sinni af kostgæfni og alúð. Þeir sem vel til þekkja hafa boriö á hann lof,
ekki aöeins fyrir árangur í keppni, heldur og ekki síður þaö uppalanda- og leiöbeinandastarf,
sem hann hefur sinnt gagnvart sér yngri aðilum innan íþróttarinnar", sagði Ágúst Oddsson
m.a. viö þetta tækifæri.
Jón Guðni
Guðmundsson
kjörinn Ijiróttamaður
ársins 1995
- ekkl aðeins fyrir árangur í keppni, heldur og ekki
síður fyrir starf uppalandans og leiðbeinandans
Jón Guðni Guðmundsson
hlaut sæmdarheitið íþrótta-
maður ársins 1995 í Bolungar-
vík og var kjörinu lýst í sam-
kvæmi í Finnabæ sl. laugardag,
þar sem ýmsir fleiri íþróttar
menn fengu einnig viðurkenn-
ingar. Við það tækifæri sagði
Agúst Oddsson, forseti bæjar-
stjórnar Bolungarvíkur m.a.:
„Jón Guðni hefur alla tíð
stundað hestamennskuna af
brennandi áhuga. Hann er
þekktur fyrir prúðmennsku
sína, hvort sem menn eða mál-
leysingjar eiga í hlut. Natni
hans við hesta er annáluð og
mörg eru þau böm og ungling-
ar sem bera hlýhug til hans
vegna þess áhuga og hvatning-
ar, sem þau hafa fengið frá
honum er þau hafa verið að feta
sig eftir vegi hestamennskunn-
ar.
Hestamannafélagið Gnýr
var stofnað árið 1973 og hefur
Jón Guðni verið formaður þess
árin 1974-77,1979-87 og si'ðan
frá 1990. Jón hefur verið ritari
Storms frá 1993 og tvisvar set-
ið landsþing hestamanna.
Það sem liggur til grund-
vallar kjöri Jóns Guðna Guð-
mundssonar fyrir árið 1995 er
árangur hans á hestaþingi
Hestamannafélagsins Storms
sl. sumar. Jón Guðni hlaut þar
flest verðlaun einstaklings eða
7 talsins. í A-flokki gæðinga
hlaut hann gullverðlaun. f B-
flokki gæðinga gull- og silfur-
verðlaun. Asamt Jóni var Sig-
mundur Þorkelsson knapi í úr-
slitum. I töltkeppni gæðinga
hlaut Jón Guðni gull- og silfur-
verðlaun og til aðstpðar var.
Linda Jónsdóttir knapi. Jón
Guðni hlaut knapaverðlaun
mótsins í flokki fullorðinna og
að lokum var hestur hans,
Skuggi, valinn glæsilegasti
hestur mótsins.
Að lokum er ánægjulegt að
geta þess, að á þessu móti vann
Jón og fjölskylda hans saman-
lagt til 11 verðlauna. I þessari
tölu verðlauna endurspeglast sú
vinna og sá áhugi, sem Jón
hefur alla tíð sýnt bömum sín-
um í hestamennskunni."
Róttækar
breytingar á sigl-
ingakerfi Eimskips
- strandsiglingar hérlendis og millilandasiglingar tengdar saman
- flutningstími millí hafna úfl á landi og erlendra hafna styttist mjög
- Reykjafoss hom fll isafjarðar i gær i fyrsta sinn
samhuæmt hinní nýju aætlun
Reykjafoss, áætlunarskip
Eimskips, kom síðdegis í gær
til ísafjarðar í fyrsta sinn sam-
kvæmt nýrri áætlun þar sem
strandsiglingar og millilanda-
siglingar eru tengdar saman.
Samkvæmt henni er siglt frá
Reykjavík á mánudögum vest-
ur og norður fyrir land með
viðkomu á ísafirði, Akureyri og
Eskifirði og þaðan til Færeyja,
Immingham í Englandi og
Rotterdam. Með tilkomu hinn-
ar nýju áætlunar stórbatnar
þjónustan við landsbyggðina
og flutningstími frá höfnum úti
á landi til erlendra hafna styttist
verulega, eða úr 7-10 dögum
niður í 4-6 daga. Auk þess er
hægt að flytja vörur frá Bret-
landi og meginlandi Evrópu
beint til viðkomustaða á lands-
byggðinni. Auk Reykjafoss
mun Skógafoss verða í þessum
siglingum.
Á sunnudag var unniö viö aö flytja vinnubúðir Vesturís í Dagverðardal til Flateyrar. Þar er um
einingahús aö ræða sem á sínum tíma voru flutt til ísafjarðar frá Blönduvirkjun. Ætlunin mun
vera aö setja niður níu slíkar húseiningar á Flateyri. Ljósmynd HK.
Þyrla ásamt flugmanni í við-
bragðsstöðu á Paireksfirði
- næstu hrja manuðina að frumkvæði Gísla Ólafssonar bæiarstjöra
- öryggistæhi fyrir alla Vestfirðinga
Þyrla ásamt flugmanni verð-
ur til staðar á Patreksfirði næstu
þrjá mánuði. Frumkvæði að
þessu á Gísli Olafsson, bæjar-
stjóri í Vesturbyggð, en það er
mikið öryggisatriði að hafa
þyrlu í fjórðungnum. Gísli hef-
ur leitað eftir stuðningi ýmissa
aðila við þetta framtak og beðið
um mánaðarlegt framlag upp á
50 til 150 þúsund krónur á
mánuði. Meðal þeirra sem
synjað hafa þeirri málaleitan er
Isafjarðarkaupstaður.
Þyrlan er sjö manna, amerísk
af gerðinni Bell 206 Long
Ranger. Hún er í eigu Þyrlu-
þjónustunnar hf. í Reykjavík og
hefur verið í notkun á Græn-
landi undanfarin ár. Flugmaður
er Jón Kjartan Björnsson og
verður hann búsettur á Patreks-
firði næstu þrjá mánuði, tilbú-
inn í útkall á nóttu sem degi.
PÓLLINN
HF. S 456 3092 Sala & þjónusta
Rafþjónusta Raftækjasala
Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki
Kælitæki
©
PÓLLINN HF
NÚ ER HÆGT AÐ HRINGJA BEINT. NÝ SÍMANÚMER í DEILDUM.
Verslun 456 4594 • Rafmagnsverkstæði 456 4529 • Kælitæki 456 4599 • Lager 456 4595
Rafvélaverkstæði 456 4596 • Tæknideild 456 4583 • Rafeindaverkstæði 456 4590
Sími 456 3092 er okkar aðalnúmer.
Þaðan er gefið samband við deildir og miðlað upplýsingum.
Geymið auglýsinguna!
SPRAUTUM
NOTAÐ OG NYTT
í ÓTAL LITUM
TRÉSMIÐJAN eht.
sími 456 3622