Vestfirska fréttablaðið - 07.02.1996, Side 1
I SJALLANUM ISAFIRÐI
Miðvikudagur 7. febrúar 1996 • 6. tbl. 22. árg.
S 456 4011 • Fax 456 5225
Verð kr. 170 m/vsk
Kofri IS kominn til hafnar
illa brunninn stafna á milli
- Uósavél var f gangl begar lagst var að bryggju
ilV» I K ll
Fimm skipverjar af Kofra ÍS við komuna til ísafjarðar. Talið frá vinstri: Þröstur Óiafsson 1. vélstjóri, Páimi Halldórsson, Jónas
Jónbjörnsson, Eyþór Scott og Jón Egilsson skipstjóri. Á myndina vantar Gylfa Þórðarson yfirvélstjóra.
Skuttogarinn Bessi ÍS kom tii
Isafjarðar á tíunda tímanum í
gærmorgun með rækjuskipið
Kofra ÍS 41 í togi. Sem kunnugt
er af fréttum blossaði eldur upp
í vélarrúmi Kofra þar sem hann
var að rækjuveiðum um 100
sjómílur norður af Skaga um kl.
hálf sex að morgni sunnudags-
ins í þokkalegu veðri. Tveir
menn voru á vakt í brú skipsins
og var verið að toga þegar
eldsins varð vart og vöktu þeir
fjóra félaga sína sem voru sof-
andi niðri í skipinu.
Að sögn skipverja við kom-
una til Isafjarðar magnaðist
eldurinn fljótt og gat Þröstur
Ólafsson fyrsti vélstjóri þess að
hann hafi ætlað að taka til ein-
hver föt, en kolsvartur reykjar-
niökkur haft strax fyllt ganginn
svo enginn tími gafst til að at-
hafna sig neitt.
Klæddu skipverjar sig í flot-
galla og fóru í gúmmíbát við
skipshliðina og blésu annan upp
til vara. Síðan biðu þeir komu
togarans Bessa frá Súðavík sem
staddur var í næsta nágrenni.
Komust mennirnir síðan fljót-
lega um borð í togarann heilir
á húfi.
Bessi tók Kofra í tog á
sunnudag og hélt af stað áleiðis
til ísafjarðar. Sóttist ferðin seint
sökum versnandi veðurs og fór
svo að taug á milli skipanna
slitnaði út af Isafjarðardjúpi.
Um siðir tókst að koma taug
aftur á milli skipanna á mánu-
dag og kom Bessi með Kofra í
togi til ísafjarðar eins og áður
sagði á tíunda tínianum í gær,
þriðjudag.
Það tók lóðsbátinn á Isafirði
nokkurn tíma að ýta Kofranum
inn að Asgeirskanti í gömlu
bátahöfninni og rakst skipið
Lóösbáturinn ýtti Kofranum síðasta spölinn aö bryggju á ísafirði.
m.a. utan í Fagranesið.
Má segja að viljað hafi til að
blankalogn var á meðan sú að-
gerð fór fram, en strax og búið
var að binda skipið fór að
hvessa af norðaustri og komið
hávaðarok þegar Iíða tók á
daginn.
Athygli vakti er Kofri var
bundinn við bryggju á Isafirði
að ein Ijósavél skipsins var í
gangi. Taldi vélstjóri að raf-
leiðslur hefðu brunnið saman
og vélin þannig farið í gang af
sjálfsdáðum.
Reykkafarar frá Slökkviliði
Isafjarðar fóru um borð í skipið
um leið og það kom að bryggju
og var þá drepið á ljósavélinni.
Við skoðun á skipinu kom í ljós
að það var allt meira og minna
brunnið neðan þilja stafna á
milli sem og brúin.
Menn frá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins komu til Isa-
fjarðar á mánudag og áttu þeir
að reyna að grafast fyrir um
eldsupptök ásamt rannsóknar-
lögreglunni á Isafirði. Hóf lög-
regla yfirheyrslur yfir skip-
verjum síðdegis í gær.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins er talið líklegt að
eidsupptök hafi verið við olíu-
skilju fremst í vélarrúmi skips-
ins.
Ekki var búið að meta tjónið
á Kofranum þegar blaðið fór í
prentun en ljóst er að skipið er
mjög illa farið og að margra
mati ónýtt.
- HK.
Reykkafarar frá Slökkviliöi ísafjarðar fóru um borö í Kofra um
leið og búið var aö binda hann viö bryggju.
Reykhólar:
Helmingur
húsa til sölu
Helmingur húsa í þorpinu á
Reykhólum er til sölu, eða
fimmtán af alls um þrjátíu hús-
um, og eru auglýsingar um þau
festar upp í versluninni Arnhól
á Reykhólum.
Mikill urgur er í fólki út af
málefnum hreppsins og fátt
annað sem kemst að. Eða eins
og einn bóndi og skákmaður í
hreppnum sagði mæðulega fyr-
ir nokkrum dögum: Hausinn á
mönnum er svo fullur af þessu
að þeir geta ekki einu sinni
teflt.
POLLINN 1HF. S 456 3092 • Sala & þjónusta
Rafþjónusta • Raftækjasaia • Rafhönnun • Rafeindaþjónusta • Siglingatæki • Kælitæki
NÚ ER HÆGT AÐ HRINGJA BEINT. NÝ SÍMANÚMER í DEILDUM.
Verslun 456 4594 • Rafmagnsverkstæði 456 4529 • Kælitæki 456 4599 • Lager 456 4595
Rafvélaverkstæði 456 4596 • Tæknideild 456 4583 • Rafeindaverkstæði 456 4590
Sími 456 3092 er okkar aðalnúmer. Þaðan er gefið samband við deildir og miðlað upplýsingum.
Geymið auglýsinguna!
SPRAUTUM
NOTAÐ OG NYTT
í ÓTAL LITUM
TRÉSMIÐJAN ehf.
sími 456 3622