Feykir


Feykir - 11.10.1989, Síða 1

Feykir - 11.10.1989, Síða 1
£Ri rafsjá hf Jktt&K. Sérverslanir með raftæki Sæmundargötu 1 Sauðárkróki Ferlimál fatlaðra í Skagafirði: Hjólastólafólk kemst ekki inn í nýbyggingar í Skagafirði og e.t.v. víðar í kjördæminu, hefur á undan- förnum árum risið liver nýbyggingin á fætur annarri án þess að gert sé ráð fyrir að fatlaðir geti komist þar hjálparlaust inn á hjólastólum sínum. Með því hafa lög um aðgengi fatlaðra verið brotin, og ferlinefndir, byggingar- nefndir og byggingaeftirlit hrugðist skyldum sínum. Tvö dæmi þessa eru um nýbyggingar, aðra er nýbúið að taka í notkun og hin er í smiðum. Að sögn kennara á skólaheimilinu á Egilsá er ekki hægt að komast á hjólastól inn í nýbyggingu sundlaugarinnar í Varmahlíð og ekki heldur gert ráð fyrir því við nýbyggingu barna- skólans í Héðinsmynni, sem er í smíðum. Þá mun nýja aðgengið við Bændaskólann á Hólum einnig vera þessu sama marki brennt, en í sumar var unnið að lagfæringu aðgengis á sundlauginni á Steinsstöðum Við gerð heitra potta á Sauðárkróki var byggingu aðgengis fyrir fatlaða slegið á frest. „Menn virðast algjörlega hugsunarlausir í þessum málum og fremja í raun hvert lögbrotið á fætur öðru, því lögin kveða skýrt á um þessa hluti. Þetta er svo gremjulegt að það tekur engu tali. Astandið í þessum málum hér í héraðinu er slæmt, t.d. eru aðalstöðvar kaupfélags- ins líklega eina byggingin sem stenst kröfurum aðgengi fatlaðra á Sauðárkróki, ekki einu sinni nýlega byggð heilsugæslustöð gerir það”, sagði Eymundur Þórarins- son forniaður félags Þroska- hjálpar í Skagafirði. Starfsmenn júgóslavneska fyrirtækisins Metalna vinna að lagningu aðrennslispípunnar í hlíð Eiðsstaðabungu.Þverniál pípunnar er 4 metrar. Framkvæmdum við Blöndu er gefið gott rúm i blaðinu í dag. Vaxandi samstarf í Húnaþingi Framkvæmdir við Blöndu: 500 manns á svæðinu næsta ár Víðtæk samstaða virðist vera að nást á Blönduósi og í nágrannasveitarfélögum við að reyna að styrkja atvinnulíf í héraðinu. Þetta kemur Sauðárkrókur: Mun minni steypusala en í fyrra Gífurlegur samdráttur hefur átt sér stað á sölu steinsteypu hjá Steypustöð Skagafjarðar. Búið er að steypa úr 1400 rúmmetrum, en á sama tíma í fyrra höfðu verið seldir þúsund teningsmetrum meira. Samdrátturinn mun aðal- lega felast í því að nánast ekkert hefur verið um uppsteypur stórbygginga í héraðinu á þessu ári, og sömuleiðis er mun minna en áður byggt úr steinsteypu í sveitunum. Þrátt fyrir þetta hafa iðnaðarmenn á svæðinu enn sem komið er næg verkefni. glöggt fram við stofnun hlutafélagsins Þórdís hf. sem keypt hefur bát til skelfisk- veiða. A stofnfundi félagsins lágu fyrir hlutafjárloforð frá 5 af 10 sveitarfélögum í héraðinu, einnig lágu fyrir hlutafjárloforð frá fyrirtækjum og um 70 einstaklingum á Blönduósi og í nágranna- sveitarfélögum. Sveitarfélögin, sem þegar hafa ákveðið að leggja fram hlutafé eru Blönduósbær með 8 millj. kr. Svínavatns- hreppur með eina millj. kr, Torfalækjarhreppur með eina millj. kr, Engihlíðarhreppur með hálfa millj. kr. og Vindhælishreppur með 100 þúsund kr. Vitað er um önnur sveitarfélög í héraðinu, sem eru að athuga með þátttöku. Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem svo rnargir sveitahreppar í héraðinu gerast virkir þátttakendur í uppbyggingu atvinnulífs. Þá eru sterkar líkur á að útgerðarfélagið Skagstrendingur hf. á Skagaströnd verði hluthafi. Það og margt fleira bendir til þess að á næstunni verði meiri samvinna og samstaða milli Blöndu- óss og Skagastrandar um uppbyggingu atvinnulífsins og eflingu byggðar í héraðinu. A Blönduósi vinna fjöl- margir, sem búsettir eru í öðrum sveitarfélögum í hér- aðinu. T.d. mun fólk frá flest öllum bæjum í Engihlíðar- hreppi sækja vinnu meira og niinna allt árið til Blönduóss. MÓ. Framkvæmdum á virkjunar- svæðinu við Blöndu hefur miðað vel í sumar. Unnið verður fram í desember, svo framarlega að veður leyfi og síðan hafist handa eins snemma á næsta ári og mögulegt er við grjótvinnslu og skurðgröft. I sumar er unnið að fernum framkvæmdum á Blöndu- svæðinu. Langstærst þeirra er gerð Blöndustíflu, en hún ásarnt Kolkustíflu rnynda miðlunarlón virkjunarinnar. Blöndustífla er nú orðin 14 metra há, en sýnist samt enn á jafnsléttu sökum víðáttu sinnar, en stíflan er uni 150 metra breið neðst. Þrernur metruni verður bætt við Blöndustíflu í haust ognæsta sumar verður framkvæmdum við hana að mestu lokið. Hag- virki annast gerð stíflunnar. Fossvirki vinnur að gerð inntaksmannvirkisins. Júgó- slavneska fyrirtækið Metalna sér uni lagningu aðrennslis- pípu frá inntakinu og Stígandi á Blönduósi byggir stjómhúsið. Allar framkvæmd- imar ganga samkvæmt áætlun. Að sögn Sveins Þorgríms- sonar staðarverkfræðings munu framkvæmdir við Blöndu ná hámarki næsta sumar. Þær verða að meginuppistöðu til jarðvinnsla, seni er rnjög mannfrek, og er búist við þá verði 500 manns á Blöndu- svæðinu í stað 200 nú i surnar. Næsta sumar verður unnið að gerðallrastiflnanna þriggja og aðveitskurðir grafnir, en þeir verða alls 12 kílómetrar að lengd. Hegranes með toppsölu í Bremen Hegranes gerði mjög góða sölu í Bremenhafen í Þýska- landi nú fvrir helgina. Meðalverðið sem fékkst fyrir 125 tonn, mestmegnis karfa, var 95 krónur á kílóið. Næsta sala skagfirsks toeara átti að vera í desemberbyrjun. þá eiga-tvö skip söludag með viku millibili. Húgsanlega verður breyting þar á, því eitthvað er um að skip hafi hætt við að sigla sökum kvótaleysis og fiskskortur er á mörkuðum ytra. Veiðar togaranna hafa gengið vel síðustu daga. Skafti landaði á mánudag 150 tonnum og von var á Drangey í morgun. Drang- eyjarmenn voru komnir nieð 70 tonn fyrir helgina.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.