Feykir


Feykir - 11.10.1989, Qupperneq 2

Feykir - 11.10.1989, Qupperneq 2
2 FEYKIR 36/1989 ■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGOARMAÐUR: Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2, Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95- 36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F. Hjartarson. Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og Hilmir Jóhannesson ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús Ólafsson ■ AUGLÝSINGASTJÓRI: Sólmundur Friðriksson ■ ÁSKRIFTAR- VERÐ: 80 krónur hvert tölublað; í lausasölu 80 krónur ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvikudagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST sf., Sauðárkróki. Sauðárkrókur: Erfitt að finna lóð fyrir Esso Nýlega urðu eigendaskipti á Matvörubúðinni þegar fjölskyIdur bræðranna Bigga og Stebba Valda tóku viðaf Balda Kristjáns og Jónu Heiðdals. Frá vinstri: Birgir, Brvnja Gunnarsdóttir, Helga Hannesar sú eina af fyrri starfsmönnum sem heldur áfram og Stefán._______ Bridge á Hvammstanga Framtíðarstaðsetning bensín- stöðva á Sauðárkróki virðist ætla að verða ansi snúin og t.d. gengur erfiðlega fyrir bæjar- vfirvöld að ná samkomulagi við Olíufélagið hf (ESSO). Samningaumleitanir hafa staðið yfir til Ijölda ára og er enn ekki séð fyrir endann á þeim. Segja má að þessi vandræði með olíuafgreiðslu ESSO hafi byrjað þegar Búnaðar- bankinn var byggður á sínum tíma og Olíufélaginu var gert að færa sig þangað sem Ábær hefur verið staðsettur siðustu áratugina. Þegar síðan nýi miðbæjarkjarninn við Artorg var skipulagður kom í ljós að enn var ESSO (Ábær) orðinn fyrir. Bæjaryfirvöld sáu fram á skaðabótakröfur frá Olíu- félaginu og gerðu því tilboð sem fólst í því að lelagið fengi ókeypis lóðina sunnan við Tjarnarbraut, þ.e. næstu lóð sunnan við Sauðá, milli Skagfirðingabrautar og Sauðár- mýrar. Um þetta var gert samkomulag 1983. En málið var ekki búið. Eftir allt saman sættu Olíufélagsmenn sig ekki við að flytja sig svona langt og gerðu tillögu um staðsetningu nýrrar bensínstöðvar ca 40 metrum sunnan við Ábæ. Að fenginni umsögn skipulags- arkitekts neitaði byggingar- nefnd því en kom til mótsvið ESSO-menn á dögunum með því að bjóða næstu lóð norðan við þá sem fyrr var boðin. Það hafði reyndar komið í ljós að sú lóð hafði minni kostnað í för með sér fyrir bæinn. Hún er samt ekki meðal þeirra 22 staða sem Árni Ragnarsson skipu- lagsarkitekt benti á sem hugsanlega staðsetningu fyrir bensínstöð í umfangsmikilli skýrslu sem hann vann að beiðni byggingarnefndar. Hörður Ingimarsson lagði fram bókun gegn þessu boði. Benti þar á umsögn skipulags- arkiteks og einnig að þeir aðilar sem sjái um bensín- og olíusölu í bænum fái aðsækja með jöfnum hætti um þær lóðir sem bærinn hefur úthlutað undir þá starfsemi. Magnús Sigurjónsson kvað brýnt að Ábær færi af þeim stað sem hann er nú, sökum slysahættu sem af þvi stafar og berlega hafi komið í Ijós á þessu ári. Bridgefélag Vestur-I lúnvetninga Hvammstanga er að hefja vetrarstarfið um þessar mundir. Aðalfundur félagsins var haldinn 26. septemhersl.þarvarkjörin ný stjórn. Hana skipa: formaður Flemming Jessen, ritari, Unnar A. Guðmundsson og gjaldkeri Guðmundur Haukur Sigurðsson. Tvö stór verkefni eru frani- undan hjá lelaginu nú á næstunni. Norðurlandsmótið i tvímenningi 14. október nk. og hið árlega Guðmundar mót 4. nóvember. Núverandi meistarar þessara móta eru: Norðurlands- mót, Anton Haraldsson og Pétur Guðjónsson Akureyri og Guðmundarmót Reynir Helga- son og Tryggvi Gunnarsson Akureyri. Félagið mun einnig á næsta ári taka þátt í Laudsmóti UMFÍ fyrir hönd USVH. Bridgefélagar vona að sem flestir komi til liðs við þá í vetur og taki þátt í skemmtilegri íþrótt. Spilað verður á Vertshús- inu á hverju þriðjudagskvöldi kl. 20.00. Skrá yfir opin mót á Norðurlandi til áramóta: 14. okt. Norðurlandsmót (tví- menningur) Hvammstanga. 21. okt. Kristjánsmót (tvímenn- ingur) Sauðárkróki. 4. nóv. Guðmundarmót (tví- menningur) Hvammstanga. I8.-I9. nóv. Sveitakeppni Norður- lands vestra Sauðárkróki. H Leiðrétting Þau leiðu mistök urðu í síðasta tölublaði að í grein þeirri er skýrði frá 10 ára afmæli Fjölbrautaskólans, láðist blaðamanni að geta þess að Aðalheiður Arnórs- dóttir forseti bæjarstjórnar aflienti skólanum fyrir hönd bæjarstjórnar, málverk að gjöf eftir Skagfirðinginn Sigurð Sigurðsson. Auk þess féll niður að Valgeir Kárason kennari við skólann talaði fyrir hönd kennara. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. Ókeypis smáauglýsingar Til sölu Til sölu mjög góður snjósleði af gerðinni Polaris Appoló 340. Árgerð '80. Upplýsingar á kvöldin í síma 35013. Heyhleðsluvagn Óska eftir að kaupa vel með farinn Kemper heyhleðslu- vagn, 24 rúmmetra. Upplýs- ingar í síma 95-12581. Bílar til sölu Ford Bronco Eddi Bauer árgerð 1985, sjálfskiptur, ekinn 45 þús. km. Nissan Sunny árgerð 1987, fjórhjóladrifinn, ekinn 23 þús. km. Bein sala eða skipti á ódýrari. Upplýs- ingar í síma 36648. Til sölu Passap Duomatic prjónavél með rafmagnsmótor. Upplýsingar í síma 73252. Bíll til sölu Subaru árgerð 1982. Upplýsingar í síma 95-37428. Herbergi Ung stúlka með atvinnu á Sauðárkróki óskar eftir her- bergi til leigu, helst strax. Upplýsingar í sima 91-689014. Haugsuga Óska eftirhaugsugu. Upplýs- ingar í síma 95-27151. Til sölu Nissan dieselvél DS 22, 74 hestöfl, árgerð 1978. Keyrð 8 þús. km frá upptöku. Upplýs- ingar í síma 95-27151. Til sölu Til sölu Roland Juno 2 hljóð- gerfill. Óommondore 64 tölva m/diskadrifi, segulbandi og 30 orginal leikjum. Upplýs- ingar í síma 35873 á kvöldin. Til sölu Daihatsu óharede, árgerð 79. Er í góðu lagi. Selst ódýrt. Á sama stað er til sölu hvítt rúm með skúffum undir. Verð kr. 12.000. Upplýsingarísima 35057. Bændur Til sölu 1200 watta rafstöð, sem ný. Upplýsingar í síma 35830 á kvöldin. + Kærar þakkir til allra sunnan heiða og norðan sem veittu hjálp og sýndu vinarhug við fráfall og jarðarför Þorvaldar Jónssonar Miklubraut 64 Reykjavík Oddný Þorvaldsdóttir, Hólmar Magnússon Jón Þorvaldsson, Guðný Einarsdóttir Ingibjörg Þorvaldsdóttir og aðrir aðstandendur í EINA VIKU! Sófasett - leður, leður„look” Engin útborgun 8-10 jafnar greiðslur H ÁTÚ N Sæmundargötu 7 - Sími 95-5420. Bílasala Baldurs Hressingarhúsinu við höfnina/^^r sími 35980 Sauðárkróki BÍLASÝNING laugardaginn 14. október kl. 13-18 Kaffi á könnunni Veríð velkomin

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.