Feykir - 11.10.1989, Side 3
36/1989 FEYKIR 3
ba'r héldu tombólu nýlega og létu ágóðann krónur 5.667,55
renna til Hjúkrunar- og dvalarheimilisins: Olöf Sólveig
Júliusdóttir, Erla Huld Bjarnadóttir og Birna Eiríksdóttir.
Sauðárkrókur:
Bensínstöð á
tjaldstæðið?
Getur nokkur Sauðkrækingur
hugsað sér bensínstöð rétt
norðan sundlaugar allt að þvi
á núverandi tjaldstæðum
bæjarins? Hætt er við að þá
þyrfti að færa Faxa um set.
„Maður getur allt eins búist
við því að þessir háu herrar
sækist eftir lóð á íþróttasvæð-
inu", sagði einn bæjarfulltrúa
þegar rætt var um staðsetningu
bensínstöðva á bæjarstjórnar-
fundi i síðustu viku.
Skeljungur var að sækja
urn áframhaldandi leyfi fyrir
Þriðji Skag-
firðingurínn
100 ára í ár
Margrét Rögnvaldsdóttir hús-
móðir og saumakona frá
Hrólfsstöðum í Skagafirði,
sem nú dvelur á d> alarheimil-
inu Hrafnistu í Hafnafirði.
varð 100 ára sl. sunnudag, 8.
október.
Margir minnast eflaust
Margrétar og látins manns
hennar Þorsteins Björnsson-
ar, er þau störfuðu að
brúargæslu við Austurkvísl
Héraðsvatna frá 1950-1969.
Margrét er þriðji Skagfirð-
ingurinn sem nær 100 ára
aldri á þessu ári. Ótvírætl
virðist að Skagfirðingar verði
allra kerlinga og karla elstir,
en á Sjúkrahúsinu á Sauðár-
króki eru nú fjórar manneskjur
sem náð hafa 100 ára aldri.
starfsemi sína við Skagfirð-
ingabraut til 5 ára, en fengu
til næstu tveggja. Þaðersama
sagan þar að helst vilja
Skeljungsmenn ekki færa sig
um set. Þeir sóttu um lóð
nr. 20 á skipulagsuppdrætti,
en það svæði er sunnan
Verknámshúss og ætlað fyrir
tjörn til að taka við
framburði Sauðár í framtíð-
inni. Til vara nefndu Skeljungs-
menn svæðið við sundlaugina,
beint á móti Bláfelli (Shell).
Hvorugur þessara staða er
meðal þeirra 22 sem Arni
Ragnarsson bendir á í
skýrslu sinni. Tilurð þessarar
skýrslu Arna var sú að ÓIi í
Olís kom á Krókinn í
fyrravor, og eftir að hafa
skoðað bæinn fann hann
einungis einn stað sem
álitlegan fyrir nýja bensín-
stöð, bílaþvottastöð o.fl. Það
var í krikanum sunnan við
gatnamót, Skagfirðingabraut-
ar og Túngötu, þar sem keyrt
er upp í Hlíðahverfi. Gallinn
var að þarna var um grænt
svæði að ræða samkvæmt
skipulagi.
,.Það virðist vera þannig
að menn sækist einungis eftir
þeim stöðum sem ekki eru
nefndir í skýrslunni, eða
þeim sem þar eru taldir lakir
kostir. Þá er það þannig og
hefur staðið í stappi í langan
tíma. að bensínstöðvaeigendur
sækjast eftir að komast upp
að torgunum. Þess vegna eru
þeir svo tregir að færa sig”,
sagði Arni Ragnarsson skipu-
lagsatkitekt.
Seinkun framkvæmda við Blöndu:
„Komið heimamönnum til góða”
segir Sveinn staðarverkfræðingur
í júní á næsta ári verður farið
að koma vélbúnaði Blöndu-
virkjunar fyrir. Búnaðurinn
keniur frá nokkrum löndum,
að mestu leyti frá Japan, en
einnig frá alþýðulýðveldinu
Kína. Fyrsta af þreniur
ailvéíum virkjunarinnar verður
ræst haustið 1991.
Sveinn Þorgrímsson staðar-
verkfræðingur segist sann-
færður um að sú frestun sem
orðið hefur á framkvæmdum
við Blöndu. hafi kontið
heimamönnum vel. Óæskileg
ofþensla sem gjarnan fylgir
virkjunaiframkvæmdum hafi
ekki orðið, og verkefni heima-
manna dreifst á lengri tíma.
Þá hvetji það verktaka að
taka heimamenn í vinnu, þær
skyldur að greiða heimferðir
starfsmanna sinna og halda
þeim á launum meðan á þeim
stendur.
Skógrækt í 350 metra hæð
„Skógræktin er stolt okkar
Landsvirkjunarmanna og erum
við búnir að setja niður alls um
40 þúsund plöntur. Bjartsýnin
hjá okkur er meira að segja
svo óskapleg, að við erum
búnir að koma fyrir tilrauna-
reit hér í 350 metra hæð.
Okkur langar til að gróður-
setja tré í kring um stjómhúsið”,
sagði Sveinn Þorgrímsson
staðarverkfræðingur á Blöndu-
svæðinu.
,,Við leggjum mikla áherslu
á að ganga vel um landið og
kappkostum að hafa sem
besta samvinnu við starfs-
menn Náttúruverndarráðs.
Þú sérð hvernig þetta lítur út
núna, en áður en við förum
verður þetta lagað sem
kostur er”, sagði Sveinn
þegar hann ók með blaða-
mann um grjótnámuna. Þar
hefur bergið verið mulið
niður inn í landið og
hreinlega búin til heilu
hamrabeltin.
Ekki verður annað séð á
köntum vegarins upp á
virkjunarsvæðið og við munna
jarðgangnanna inn I stöðvar-
húsið, en umgengi þeirra
Landsvirkjunarmanna sé til
fyrirmyndar. Öllu því gífur-
lega efnismagni sem úr
fjallinu kom var jafnað út á
planinu fyrir framan göngin.
á mjög snyrtilegan máta.
SAMVINNUBÓKIN
Nafnvextir Samvinnubókar
eru nú 18%
Ársávöxtun
er því 18.81%
Samvinnubókin
Hagstæð ávöxtun í heimabyggð
Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga