Feykir


Feykir - 11.10.1989, Qupperneq 7

Feykir - 11.10.1989, Qupperneq 7
36/1989 FEYKIR 7 Sigur á Þór en tap í Ijónagryfjunni Þá er íslandsniófið í körfubolta hafið. Tindastóll hefur lokið tveim leikjum í Urvalsdeild- inni og úrslit þeirra orðið eins og þeir getspökustu spáðu. Þórsar voru lagðir að velli nokkuð örugglega í fyrsta leik, en Stólarnir máttu síðan sætta sig við naumt tap í „Mekka” körfuboltans í Njarð- vík. Tindastólsmenn áttu lengi vel í hinu mesta basli með Þórsara þegar þeir komu í heimsókn fyrir viku. Greini- legt vanmat á getu Akureyr- inganna var þar á ferðinni og talsverða þolinmæði skorti í heimaliðið. Þeir misstu t.d. niður níu stiga forskot í fyrri hálfleiknum og höfðu naumt forskot í leikhléi. Það var ekki fyrr en á síðustu mínútum leiksins að þeim tókst að hristaafsérsleniðog sigra með 92 stigum gegn 80. Valur Ingimundarson og Bo Haiden voru bestu menn liðsins og Sturla Örlygsson, sem hélt liðinu á floti fyrstu mínúturnar, stóð fyrir sínu. Valur skoraði 33 stig, Bo 25, Sturla 17, Sverrir 7, Kári 7og Björn 3. Leikurinn í Ijónagryfjunni í Njarðvík þótti góður. Njarðvíkingar höfðu frum- kvæðið í fyrri hálfieiknum, en einungis eitt stig yfir í hálfleik 50:49. Gestirnir komu tvíefidir til seinni hálfieiks og eftir 5 mínútna leik höfðu þeir náð 1 I stiga forskoti. Því héldu þeirallttil Valur hefur skorað drjúgt fyrir Tindastól undanfarið. 9 mínútur voru til leiksloka, að heimamenn breyttu yfir í svæðisvörn og við það riðlaðist sóknarleikur Tinda- stóls nokkuð. Valur og Bo, sem báðir áttu stórleik voru þrotnir kröftum, og hinum leikreyndu Njarðvíkingum urðu ekki á nein mistök. Þeir stóðu með pálmann í hönd- um í leikslok, 94:89. Valur skoraði mest Tinda- stólsmanna að vanda, 37 stig, Bo 33, Sturla 13, Sverrir 2 og Halli 1. Næstu leikir Tinda- stóls eru gegn KR syðra annað kvöld og Haukar koma síðan í heimsókn á sunnudaginn. Fylgst með Eyjólfi Þegar Eyjólfur Sverrisson hljóp inn á lcikvanginn i Hollandi í gærkvcldi, ásamt félögum sínum i U21 árs landsliðinu, hafa væntanlcga verið mættir þar meðal áhorfenda útsendarar frá þýska stórliðinu Stuttgart og bclgíska liðinu Beveren. Að sögn Bjarna Jóhanns- sonar þjálfara stóð Eyjólfur sig vel á æfingum með Stuttgart í síðustu viku, það var einungis á einni æfing- unni sem nokkurrar þreytu gætti hjá kappanum, og á síðustu æfingunum var hann farinn að „sóla” stórstirnin. Frammistaða Eyjólfs í gær- kveldi hefur væntanlega skorið úr um það hvort hann heldur áfram æfingum með Stuttgart, eða heldur yfir til Belgíu til að æfa með Beveren, en það lið er að leita sér að marksæknum mið- herja. Bjarni þjálfari lét vel af dvölinni í Stuttgart og sagðist aldrei á ævinni Irafa séð viðlíka aðstöðu til knattiðkunar og þar er. Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Bjarna um þjálfun liðsins næsta sumar. Bjarni hefur þjálfað Tindastólsliðið í þrjú sumur. við góðan orðstí. Skagfirðingar Sauðárkróksbúar ÞIÐ MUNIÐ OKKAR FRÁBÆRA SNYRTIVÖRUÚRVAL NÝKOMIÐ MIKIÐ ÚRVAL AF: SKARTI - BARNAVÖRUM OG ILMVÖTNIN SEM DÖMURNAR EKKI STANDAST EF ÞÚ ERT AÐ LEITA AÐ EINHVERJU SÉRSTÖKU í SNYRTIVÖRU FÆRÐU ÞAÐ HJÁ OKKUR - AÐ SJÁLFSÖGÐU FYRIR VETURINN TREFLAR - FINGRAVETTLINGAR í TÍSKULITUNUM OG FLEIRA OG FLEIRA NÚ OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ KL. 11-13 GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA SAUÐÁRKRÓKS APÓTEK AÐALGÖTU 19 - SlMI 35336 " Grípið tækifæríð! 20% afeláAftur af öllum vörum M.a. kuldaskór á alla fjölskylduna, gallabuxur - svartar, bláar, Ijósar úlpur, jakkar, peysur, YSe°S stígvél öryggisskór ttaira od fteirs töskur og «eira oy Allt nýjar haustvörur Tökum upp nýjar vörur m.a. vattfóðraðir leðurjakkar á stráka og stelpur timabThatiö Verslið í heimabyggð SPARTA fataverslun - skóbúð Aðalgötu 20 Sauðárkróki - Símar 35802,35635

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.