Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1996, Page 167

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1996, Page 167
Ársskýrslur Árið 1995 er því tímamótaár í sögu Minjasafns Austurlands. Safnið flutti í fyrsta sinn í eigið húsnæði og breytingar urðu á rekstrinum. Snemma árs tóku 11 sveitarfélög' á Héraði og Borgarfirði eystra við rekstri safnsins úr höndum félagsasamtaka þeirra er stofnuðu safnið ásamt Héraðsnefnd Múlasýslna. I mars var hafist handa við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 1995, ný stjórn var kosin og forstöðumaður ráð- inn í framhaldi af því. I stjóm eru Þórey Hannesdóttir, formaður, Magnús Þorsteinsson, ritari, og Erlend- ur Steinþórsson, gjaldkeri. Varamenn eru Sævar Sigbjamarson og Hákon Aðalsteinsson. Forstöðumaður safnsins er Steinunn Kristjánsdóttir. Forstöðumaður Minjasafns Austurlands tók til starfa við safnið þann I. september 1995. Fram að þeim tíma frá, 1. júlí, vann hann að einstökum verkefnum fyrir safnið í samráði við stjóm þess. Þau verkefni voru val og kaup á hillukerfi í geymsluhúsnæði safnsins, tölvuvæðing og hönnun merkis fyrir safnið. Guð- rún Kristinsdóttir, minjavörður Austurlands, sinnti þeim verkefnum sem sinna þurfti á Egilsstöðum í fjar- veru forstöðumanns. Starfsemin hefst Þann 1. ágúst hófust flutningar á munum safnsins í safnahúsið við Laufskóga. Safnið á hátt á þriðja þúsund muna, sem flestir voru geymdir í bráðabirgðageymslum á háalofti bæjarskrifstofunnar á Egilsstöð- um og prjónastofunnar Dyngju. Flutningum lauk að mestu í nóvember en mununum var komið fyrir í sýn- ingarsal safnahússins, þar sem geymslurými safnsins í kjallara safnahússins var ekki fullfrágengið. Enn á eftir að flytja nokkra muni í eigu safnsins í safnahúsið en um er að ræða óskráða rnuni hjá ein- staklingum og mjög fyrirferðarmikla muni sem ekki er hægt að koma fyrir enn sem komið er. Þegar flutningar hófust var búist við að munir minjasafnsins, sem safnað hefur verið í gegnum tíðina, væru í slæmu ásigkomulagi eftir margra áratuga geymslu. Geymslurnar eru að miklu leyti óeinangraðar þannig að raka- og hitastig þar innandyra er háð veðri. Kristín Huld Sigurðardóttir, forvörður á Þjóðminjá- safninu, gerði könnun á aðbúnaði safngripanna árið 1993. Hún lýsir aðkomunni í geymslumar á eftirfar- andi hátt: „Til að komast upp á loftið þarf að fara upp brattan tréstiga, opnum milli þrepa. Forstöðumaður Safnastofnunar hefur komið fyrir líflínu til að halda í þegar farið er um stigann. Aðkoman í geymsluna er þess háttar að þar er ekki hægt að bjóða nokkrum manni upp á annað eins. ... Geymslan er óhemju óhrein, og gripir liggja alltof margir óhreinir í hrúgum á hillum eða gólfi.“1 2 Ástand munanna kom því engan veginn á óvart en margir þeirra eru mjög illa famir og þarfnast við- gerða. Að santa skapi hafði mikið fallið á munina í áranna rás og þurfti því að hreinsa nánast hvern grip fyrir sig. Munir úr járni voru orðnir mjög ryðgaðir og stendur en hreinsun á öðrum safngripum er svo að segja lokið. Starfsfólk Þegar sttu-fsemi stóð fyrir dyrunt að nýju á minjasafninu, síðla suntars 1995, þótti ljóst að gífurleg vinna væri framundan ef opnun safnsins ætti að vera möguleg á árinu. Nokkrir starfsmenn, auk forstöðu- 1 Sveitafélögin eru Egilsstaðabœr, Fellahreppur, Vallahreppur, Fljótsdalshreppur, Skriðdalshreppur, Jökuldalshrepp- ur, Eiðaþinghá, Hjaltastaðaþinghá, HUðarhreppur, Tunguhreppur og Borgarfjarðarhreppur. 2 Skýrsla Kristínar Huldar Sigurðardóttur. Þjóðminjasafn íslands 1993. 165
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.