Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Page 101
Snorri Páll Snorrason
Guðmundur Snorrason
- fyrsti Snæfellsfarinn
Guðmundur Snorrason var fæddur
20. september 1850 í Fossgerði á
Jökuldal. Snorri Guðmundsson fað-
ir hans var fæddur 1816 í Hnefilsdal (að
öllum líkindum). Um 1840 býr hann í
Klausturseli en um 1861 byggir hann bæ í
Fossgerði og flyst þangað. Hann deyr frá
konu (Ragnhildi Sveinsdóttur af Melaætt)
og ungum börnum 1869. Guðmundur sonur
hans er þá 19 ára og tekur við búskapnum
og býr þar allan sinn búskap eða um 55 ár.
Kona Guðmundar var Álfheiður Þorsteins-
dóttir, fædd 1.3.1853. Þau voru barnlaus.
Um 1920 lætur hann breyta bæjarnafninu í
Stuðlafoss.
Árið 1929 flyst Guðmundur að Breiða-
bólsstað á Síðu til systursonar síns Snorra
Halldórssonar læknis. Þar dvaldi hann til
æviloka 1936. Eins og áður er getið var
móðir Guðmundar Ragnhildur Sveinsdóttir,
fædd 1823 á Bessastöðum í Fljótsdal. Lang-
afi hennar var Þorsteinn Jónsson, fæddur
um 1734. Frá honum er komin Melaætt sem
er fjölmenn ætt, enda eignaðist hann mörg
böm. Þorsteinn var bóndi á Hákonarstöðum
á Jökuldal og síðan frá 1772 á Melum í
Fljótsdal. Seinni kona Þorsteins, Sólveig
Pálsdóttir bónda á Melum í Fljótsdal, Jóns-
sonar, var móðir Páls Þorsteinssonar á Víði-
völlum, föður Sveins á Bessastöðum.
Frá því er að segja að árið 1877, er Guð-
mundur var 27 ára gamall, tók hann sig til
og gekk á fjallið Snæfell. Þessum atburði
lýsti Guðmundur í stuttri grein er birtist í
austfirska blaðinu Skuld um haustið sama ár.
Það er athyglisvert og umhugsunarefni
að ungur maður, lítt menntaður, skuli taka
sér tíma frá önnum sveitalífsins og einsetja
sér að ganga á Snæfell, hæsta fjall á íslandi
sem þá var talið og takast það með þeim
glæsibrag sem raun varð á, setja upp fána á
hæsta tindinn og staðfesta síðan för sína
með gagnorðri lýsingu í fyrrnefndu blaði.
Ætla má að þama hafi búið undir hin sterka
þrá mannsins að kanna hið óþekkta, þekk-
ingarleitin sem hefur skilað mannkyninu
nokkuð áleiðis á þroskabrautinni. Síðar var
Guðmundur oft kallaður „Snæfellsfari“.
Dvölin á Breiðabólsstað
Árið 1929 fluttu Guðmundur og Álf-
heiður að Breiðabólsstað á Síðu eins og
áður er getið, til systursonar Guðmundar,
Snorra Halldórssonar héraðslæknis og
fjölskyldu hans. Þar bjó fyrir hjá syni sínum
Sigurbjörg Snorradóttir, fædd 1863 í Foss-
gerði á Jökuldal. Þau Guðmundur og Álf-
heiður munu hafa komið frá Hnefilsdal en
ekki liggur fyrir hve lengi þau áttu þar
heimili. Guðmundur lét flytja suður nokkrar
99