Jökull - 01.12.1958, Blaðsíða 26
Fjallamenn
I þessum bálki mxin JÖKULL framvegis birta
stuttar greinar með myndum þeirra karla og
kvenna, sem hafa veitt félagi voru drýgstan
stuðning og gengið fastast fram i þvi að kanna
ókunna stigu um fjöll og firnindi íslands.
1. GUÐMUNDUR JÓNASSON
Hann er Húnvetningur að ætt og uppruna,
fæddur ] 1. júní 1909 að Sauðadalsá á Vatnsnesi,
en ólst upp í Múla í Línakradal, þar sem for-
eldrar hans bjuggu langa ævi.
Til 25 ára aldurs átti Guðmundur heima í
Múla, en fluttist þá til Reykjavíkur, árið 1934.
Síðustu árin nyrðra stundaði hann aðallega bif-
reiðaakstur, og á þessu ári eru liðin 30 ár,
síðan hann tók bifreiðarstjórapróf.
Eftir að Guðmundur kom til Reykjavíkur
starfaði hann hjá vegamálastjóra um sinn, m. a.
hélt hann uppi ferðum yfir Holtavörðuheiði að
vetrarlagi með fyrsta snjóbílnum, sem vega-
málastjórnin fékk til umráða. A þessum árum
fór Guðmundur marga vegleysu fyrstur manna
á bíl, bæði í byggðum og óbyggðum. Og þar
sem einn bíli hefur farið, sigla jafnan fleiri í
slóðina.
Árið 1938 staðfesti Guðmundur ráð sitt og
gekk að eiga ágæta konu, Stefaníu Eðvarðsdótt-
ur frá Helgavatni í Vatnsdal. Eiga þau þrjú
mannvænleg börn og notalegt heimili að Miklu-
braut 5 í Reykjavík.
Fyrir 20 árum eignaðist G. J. fyrsta lang-
ferðabíl sinn, og litlu síðar kom hann upp verk-
stæðinu í Þverholti 15. Þaðan gerir hann i'it
allmikinn bílakost til hópferða. Er það al-
manna rómur, að bílar Guðmundar séu jafnan
vel hirtir og öruggir. Það hefur aflað honum
trausts viðskiptavina.
☆
Árið 1951 keypti hann fyrsta Bombardier-
snjóbíl, sem til landsins fluttist. Kom hann
þegar í góðar þarfir. Þá var snjóavetur mikill
austan lands, heyleysi og samgönguvandræði.
Ók Guðmundur þá norður um land til Aust-
fjarða og gekk ötullega fram í hey- og matar-
flutningum milli byggðarlaga, meðan brýnust
var þörfin.
Um þessar mundir stóð yfir björgun banda-
Guðmundur Jónasson
fimmtugur.
rísku flugvélarinnar á Bárðarbungu og björgun
verðmæta úr flakinu af Geysi. Ók Guðmundur
þá við annan mann af Fljótsdalshéraði upp
Brúarjökul og síðan vestur á Bárðarbungu til
þess að annast flutninga á vörum og mönnum
þaðan til byggða.
Síðan hafa þeir Guðmundur og snjóbíll hans
R-345, sem oft gengur undir nafninu Gusi,
marga hildi háð og víða farið. Verður það ekki
rakið hér, en aðeins greint nokkuð frá sam-
vinnu Jöklarannsóknafélags Islands við Guð-
mund.
Fyrstu vorferðir á Vatnajökul í snjóbíl voru
farnar 1953 og 1954. Til þess þurfti að koma
snjóbílnum alla leið frá Reykjavik að vestur-
brún Vatnajökuls, en á þeirri leið er stórfljótið
Tungná og reginöræfi innan hennar. Guð-
mundur fann bílfært vað á Tungná (Hófsvað)
haustið 1950 og árið eftir valdi hann bílfæra
slóð þaðan inn að Tungnárjökli og raunar
þvert norðaustur yfir land til Öskju og Mý-
vatnssveitar.
24