Jökull


Jökull - 01.12.1972, Side 62

Jökull - 01.12.1972, Side 62
Tvennt hlífir jöklinum frá allri þessari geisl- un. I fyrsta lagi hallar Bægisárjökull mót norðri (sjá Mynd 4), og um mitt sumar fær hann að- eins 84% af þeirri sólargeislun, sem fellur á láréttan flöt. I öðru lagi endurkastast mikill hluti sólargeislunar frá yfirborði jökulsins. Að- eins 30—45% af geislun á láréttan flöt nær niður í jökulinn. Langbylgjugeislun út frá bráðnandi jökli er fasti, og geislun, sem jökull fær frá skýjum, var fundin með hjálp reynslu- bundins samhengis við skvjamagn (3. líkingu að framan). Varmastreymi i lofti Lofthiti yfir bráðnandi jökli er meiri en fast við jökulyfirborð og varmaorka berst niður að jökli, en hraði þessa orkustreymis er háður hita- stigli og vindhraða. An vinds, sem þyrlar lofti eftir yfirborði jökuls, verður engin bráðnun, eins og ekkert rof er í lygnu vatni. A sama hátt er þrýstingur vatnseims í lofti yfir jökli oftast meiri en við jökulyfirborð, vatnseimur berst niður að jökli, þéttist, þéttivarminn leysist úr læðingi og bræðir jökulísinn. Uppgufun er sjaldgæf frá bráðnandi jökli, því að loft er sjaldan svo þurrt, að eimþrýstingur minnki upp frá jökulísnum. Til þess að geta reiknað þessa orkuþætti þarf að mæla lofthita, loftraka og vindhraða í nokkrum hæðum yfir jökli. Siðan má finna heildarleysinguna, sem orkuþættirnir valda, og bera niðurstöður saman við mælda leysingu á jöklinum. Ekki er unnt að mæla leysingu nákvæmlega yfir skamman tíma og því verður að gera slíkan samanburð yfir nokkra daga. Hinn fræðilegi hluti greinarinnar að framan skýrir frá kenningum um fyrrgreinda orkuþætti og ræðir, hvernig beri að haga mælingum, svo að fræðilíkön komi að notum við útreikn- inga á orkustraumunum. Hér er notað líkan Monins og Obukhovs (1954), sem liefur ekki verið almennt notað við orkustraumsmælingar á jöklum. Líkanið liefur þann kost að taka tillit til þess, hvernig eðli vindróts breytist með stöðugleika lofts og áhrif þess á varmastreymi. Á miklum ísbreiðum má finna aðstæður, sem fullnægja kröfum, sem slík líkön eru reist á, en aðstæður eru ekki svo einfaldar á Bægis- árjökli. Þrátt fyrir þessa annmarka má draga þá ályktun, að niðurstöður af líkani Monins og 60 JÖKULL 22. ÁR Obukhovs hafi verið nær réttu lagi en fengj- ust frá öðrum einfaldari líkönum. Niðurstöður Meginniðurstöður eru birtar í Mynd 5, 6, 7 og Töflu 1. Ekki er unnt að leggja strangt mat á niðurstöður einstakra daga, heldur ber að líta á hina stóru drætti. Á Mynd 5 og 6 sést, að dregur úr sólargeislun, þegar líður á sumar, en á móti því vegur, að endurkast minnkar. Auk þess vex skýjamagn fram eftir sumri og afkoma langbylgjugeislunar batnar. Heildarafkoma geisl- unar er því nokkuð jöfn allt sumarið. Sveiflur í sumarleysingu frá degi til dags stafa því að mestu leyti af sveiflum í varmastreymi frá lofti. Varmastreymið vex, er líður á sumarið, sam- tímis því að vindhraði, liitastig og loftraki vaxa; einkum er greinileg fylgnin við vindhraða. Á Mynd 7 og Töflu 1 má sjá, að hlutur varma- streymis í leysingu vex, er líður á sumar, og í lok athugunartíma sést, að reiknuð leysing breytist næstum í öfugu hlutfalli við afkomu geislunar. Sérstök athygli skal vakin á því, að dagana 2.-5. júlí 1968 var hæð yfir íslandi og sólgeislun mikil, en hlutur varmastreymis óvenju hár eftir árstíma. Átt var suðvestlæg og hlý. Sumarið 1968 var afkoma geislunar nokkuð betri en árið áður (Mynd 5), vegna þess að meðalendurkast jökuls var minna (0.54) en sumarið 1967 (0.63). Orsakir þess má rekja til ólíkrar lofthringrásar þessi tvö sumur. Fyrra sumarið var norðanátt algeng og fylgdi henni oft snjókoma, sem jók endurkast jökulsins. Hins vegar dró norðanáttin einnig úr varmastreymi, svo að allt sumarið olli geislun mestri leysingu Jjrátt fyrir verri afkomu geislunar en sumarið 1968. 1 sunnanátt vex hlutur varmastreymis og nær yfirhönd yfir geislun, er líður á sumar. Almennt má segja, að geislun er mikilvægari þáttur í sumarleysingu norðan lands en sunn- an. Stefna jöklanna og allar breytingar á endur- kasti vegna sumarsnjókomu eða sandfoks eru því mikilvægari Jiar en sunnan lands. Jöklar nyrðra hafa hreiðrað um sig í dalbotnum, vita flestir norður og skýla sér fyrir sól. Norðanátt ber þeim ákomu að vetri, snjó sem eykur end- urkast að sumri og hafáttin dregur tir varma- streymi frá lofti. Sandfok og öskufall gætu orð- ið norðurlandsjöklum skeinuhættari en suður- jöklum. Sunnanátt ber töluverða ákomu, en

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.