Feykir


Feykir - 26.09.1990, Side 1

Feykir - 26.09.1990, Side 1
rafsjá Sérverslun með raftæki Sæmundargötu 1 Sauðárkróki Það var ekkert grín að vera busi í Fjölbrautaskólanum á Sauðákróki sl. föstudag, en þá fór fram þessi árlega skírnarveisla í skólanum. Busarnir fengu að ganga í gegnum hinar ýmsu þrautir sem fylgja deginum og var hráslagalegt veður ekki til að bæta það. Talsverður áhorfendaskari fylgdist með, mestmegnis nemar úr grunnskólanum, upprennandi busar. „Svo hátt hlutfall salmonellu- mengunar ekki fundist hér” segir heilbrigðisfulltrúi vegna blaðafregnar „Frétt í Mbl. sl. sunnudag uni salmonellumengun í Skaga- firði vekur furðu mína, ogeins er ég hissa á að ekki hafi verið haft samband við mig áðuren fréttin var skrifuð. Eins liátt hlutfall salmonellumengunar og fram kemur í fréttinni hefur ekki fundist á Skaga- fjarðarsvæðinu þann tíma sem ég hef gengt starfi hér”, segir Sveinn Guðmundsson heil- hrigðisfulltrúi Norðulands vestra. Hann segir að í fréttinni sé ekki tilgreint um hvaða sýni sé að ræða og fólk geti því leitt hugann að matvælum. Þá gefi niðurstöður neysluvatnssýna ekki ástæðu til að óttast salmonellumengun þar. Frétt sunnudagsblaðsins sé því tilhæfulaus. í frétt Morgunblaðsins fullyrðir Birgir Þórðarson hjá Hollustuvernd að rann- sóknir sem heilbrigðiseftir- litið á Sauðárkróki liafi gert staðfesti mjög mikla hættu á salmonellumengun, þar sem smit hafi reynst í tveim þriðju sýna. Sú hætta sé því yfirvofandi í Skagafirði að folöld drepist umvörpum vegna smits í vargfugli eins og gerðist í Landeyjum í fyrra, en við ransókn þess máls reyndist 70-80% varg- fugls á svæðinu vera sýktur af salmonellu. „Keldur hafa fengið nokkuð af máfi og hrafni héðan af svæðinu vegna könnunar á útbreiðslu salmonellu í kjöl- far Landeyjartilfcllanna sl. ár. Samkvæmt upplýsingum frá Keldum greindist salmon- ella í færri en 10% fuglanna. Það er lítið eitt undir landsmeðaltali úr sömu könnun, en tekin voru sýni af mörgum svæðum á landinu. Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri var óhress vegna þessa máls og sagði fréttina koma einmitt á þeim tíma, þegar nýbúið væri að ganga tryggilega frá frárennslum matvælafýrirtækjanna á Eyrinni. Þá færi frágangur úrgangs úr matvælavinnslum stöðugt batn- andi. og nefndi Snorri kaupfélagsmenn sem dæmi um góða umhirðu. Líklega væri réttast að aðilar hittust til að fara í saumana á þessu máli. Dögun, Særún og FISK bjóða í Hafþór Talsverðar líkur voru taldar á því að um það leyti sem Feykir kæmi út, væri röðin komin að tiboði Rækjtn innslunnar Dögun- ar á Sauðárkróki í Hafþór skip Hafrannsóknarstofnunar. Annað hæsta tilboðið í skipið frá Ljósavíkinni í Þorlákshöfn yrði þá úr sögunni og komið að tilboði Dögunar sem var talsvert lægra en boð Þorláks- hafnarmanna. Fulltrúar sjávarútvegsráðu- neytisins sem sjá um söluna höfðu hafnað tilboði Ljósa- víkur upp á 233 milljónir og gert gagntilboð, sem for- ráðamenn fyrirtækisins voru enn að velta fyrir sér á mánudag, en búist var við að ákvörðun lægi fyrirum miðja viku. Omar Þór Gunnarsson framkvæmdastjóri Dögunar sagðist svo sem lítið um þetta mál vita. Aðspurður hvort að Dögun kæmi til með að standa við tilboð sitt í skipið ef til kæmi, færi sjálfsgt eitthvað eftir kröfum ríkisins með veðsetningar og annað, en samkvæmt sínum upp- lýsingum leyfði það ekki veðsetningu á skipinu nema fyrir 100 milljónir. Hafþór er fremur stórt togskip, svipaður að stærð og Akureyrin, og var síðast gerður út á rækju. Tólf tilboð bárust í skipið. Auk Dögunar buðu meðal annarra Særún á Blönduósi og Fiskiðjan/Skag- firðingur. Dögun bauð 212 milljónir, tilboð Særúnar var áttunda hæsta, 196 milljónir. og FISK 10. í röðinni, 180 milljónir. Telja má því nánast útilokað að þessi tvö fyrirtæki eigi möguleika á skipinu. Hráefnisöflun til Hofsóss: Þrír bátar á línu Sjö manna flokkur byrjaði um fyrri helgi línubeitingu á Hofsósi. Meiningin er, að minnsta kosti þrír bátar verði gerðir út á línu frá Skagafirði i haust og leggi upp afla sinn á Hofsósi. Það eru bátar Fiskiðjunnar Eiríkur og Auð- humla og Víkurbergið frá Haganesvík. Allir eru þessir bátar svokallaðir Gáskabátar, rétt tæplega tíu tonn að stærð og tveggja rnanna áhöfn. Gæftir hafa verið slæmar eins og nærri má geta og komust bátarnir ekkert á sjó í síðustu viku. Vonast menn til að tíðarfarið skáni og það verði eitthvað í líkingu við það sem það var í fyrra haust, en þá var t.d. beitt nær alla daga í nóvember. Þess má geta að bátana Eirík og Auðhumlu hefur Fiskiðjan eignast í gegnurn kvótakaup, en nægur kvóti er eftir handa togurunum, hvað þá bátunum í haust. Ef á annað borð verður ein- hvern fisk að fá, en veiðar togara hafa gengið illa upp á síðkastið. Bílaviðgerðir - Hjólbarðaverkstæði Réttingar - Sprautun G 3QKlbilQverl($yi ^SAUDmíDll^-^^iöj SÆMUNDARGÖTU - SÍMI 35141 Almenn rafverkatakaþjónusta Frysti- og kæliþjónusta Bíla- og skiparafmagn l^TnuniH __________ Sími: 95-35519 Bílasími: 985-31419 Aðalgötu 26 Sauðárkróki_Fax: 95-36019_

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.