Feykir


Feykir - 26.09.1990, Síða 2

Feykir - 26.09.1990, Síða 2
2 FEYKIR 33/1990 Jöfnun kyndingarkostnaðar ■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2, Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4. 550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95- 36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F. Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og Stefán Árnason ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús Ólafsson A-Hún., ■ AUGLÝSINGASTJÓRI: Hólmfríður Guðmundsdóttir ■ ÁSKRIFTAR- VERÐ: 90 krónur hvert tölublað; í lausasölu 100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvikudagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST sf., Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. Verslið í heimabyggð Nú er nærfullvíst orðið að væntanlegt álver muni rísa á Keilisnesi á Suðurnesjum, ef af því verður á annað borð. Landsfeðurnir eru farnir að tala um að bæta landsbyggðinni á einhvern hátt upp þann tekjumissi og byggða- röskun sem þessi ráðstöfun hefur fyrirsjáanlega í för með sér. Hættan er bara sú að hér verði látið sitja við orðin tóm, eða því sem næst. Það hefur til að mynda verið orðað, að hagnaðinum af raforkusölunni til álversins verði varið til að greiða niður raforkuverð til þeirra í landinu sem kynda upp hús sín með raforku. Oft áður hefur svo sem verið rætt um að koma á nokkurskonar jöfnunargjaldi,, en menn rekið sig þar á ýmsa annmarka. T.d. sé það ákaflega ósanngjarnt gagnvart þeim sveitar- félögum sem fyrr á öldinni sýndu frumkvæði og komu sér upp sínum eigin hitaveitum, sem í dag eru í góðum rekstri og íbúarnir njóta góðs af með lágum kyndingakostnaði. Jú víst mundi meiri jöfnuður í upphitunarkostnaði yfir landið hafa mikið að segja, það er að segja ef það yrði eitthvað að gagni. Oft vegur kyndingarkostnaður þungt þegar menn eru að velta fyrir sér staðsetningu atvinnurekstrar. Hann hefur mikiláhrif á markaðsverð fasteigna, og að maður tali ekki um, að þá yrði þelta styrkur fyrir sveitarfélög í nábýli við hitaveitu- svæði með lágu orkuverði. Er nærtækasta dæmi þar Sauðárkrókur og sveitarfélögin í kring, kannski sérstak- lega Hofsós. En Krókurinn hefursogað til sín fólk frá Hofsósi á undanförnum árum og á kyndingarkostnaður þar eflaust stóran þátt. En þrátt fyrir þessar vangaveltur hér að framan, er full þörf á því að sveitarstjórnarmenn og almenningur velti því alvarlega fyrir sér, hvort ekki sé nóg komið af því að stjórnvöldum sé ætlað að sjá fyrir velferð fólks í þessu landi. Er ekki hreinlega kominn tími til að fólkið sjálft taki sig saman og stuðli í sameiningu að uppbyggingu atvinnu- rekstrar út um landið. Samtaka- mátturinn getur verið sterkur og fengið miklu áorkað, það hefur oft sýnt sig. Frá öldungadeild og kvöldskóla FÁS á haustönn 1990 Innritun er hafin i öldungadeild og kvöldskóla Gjöld í kvöldskóla fara eftir lengd námskeiðanna. Gjald í öldungadeild er kr. 7.000fyrirfyrsta námskeið, kr. 1.200 fyrirannað námskeið, en ekkertergreittfyrir námskeiö umfram tvö. Allar ábendingar um námskeiðahald eru vel þegnar. Nánari upplýsingar og skráning í síma 35488 og á skrifstofu FAS. Eftirtaldir áfangar og námskeið verða í boði á haustönn 1990. Sauðárkrókur: Öldungadeild: Kvöldskóli: Enska 100, 102, 202, 212, 303. Franska 103, 203. Bókfærsla 103, 203. Vélritun 102. Skattskil 102. Tölvufræði 103, sérstakir æfingatímar. Islenska 102, 202, 212. Myndmennt 103, 203. Varmahlíð: (slenska fyrir útlendinga. Saumar. Málmsuða. Enska I fyrir byrjendur. Enska II. Námskeið til undirbúnings skriflega hluta ökuprófsins. Hofsós: Enska 102. Enska 202. Enska I. Enska II. Enska 102. Enska I. Enska II. Hólar: Auglýst síðar. Hættum að grýta glerjum Margir hafa liaft orð á miklu niagni glerbrota á götuni og bílastæðum bæjarins nú i liaust, ekki að ósekju. Auk óþrifnaðar sem sá ósiður veldur, að grýta ölglerjum í malbikið, hafa glerbrotin reynst miður holl fyrir hjólbarða bifreiða. Þetta meðglerbrotin ersvo sem ekki ný bóla. í sumar höfðu krakkarnir í unglinga- vinnunni þann starfa að hreinsa bæinn eftir næturlífið um helgar. Þegar því varsvo hætt í haust, var það sama uppi á teningnum og jafnan áður. Glerbrot á víð og dreif um bæinn. Margoft hefur verið rætt um að efna til herferðar gegn glerbrotum, og vitaskuid á ekki að þurfa að kalla út sérstakt lið til að afglerja bæinn eftir hverja helgi. Oskandi væri að þeir sem stunda þessa óskenimtilegu yðju legðu hana niður hið fyrsta. Úr Flókadal. Góð veiði í Fljótum Lax- og silungsveiði var einstaklcga góð í ám i Fljótuni í sumar, en það sama verður ekki sagt um aðrar ár í Skagafirði og Húnavatnssýskim. Til að mynda veiddust nú sex laxar á fremra vatnasvæði Flókadalsár, en lengi vel voru menn úrkula vonar um að nokkurn tímann mundi veiðast þar lax. Þá er vafasamt að nokkurn tímann hafi veiðst jafnmikið í Fljótaá, en á land komu í sumar tæplega 380 laxar. Til samanburðar má geta þess að í fyrra veiddust 319 laxar í Fljótaá, sem þótti mjög gott, þar sem meðal- veiði í ánni hefur verið um 150 láxar. Þyngsti laxinn úr ánni í sumar vóg 23 pund. sem er mjög fágætt, þó svo að áin sé þekkkt fyrir vænan fisk. í Laxósi og á neðra vatnasvæði Flókadalsár veidd- ust um 130 laxar sem er meira en oftast áður, og einnig var laxinn í vænsta lagi. En þarna er eins og í Fljótaá, yfirleitt vænn fiskur. Á fremra vatnasvæði Flóka- dalsár veiddust rúmlega 1800 silungar, en þetta er í fyrsta skipti sem veiðin er skráð. Líklega hefur silungsveiði í ánni ekki verið eins góð og í fyrra, né fiskurinn jafn vænn og þá. í fyrra veiddust fjórir laxar í ánni, en sex nú. Áður var aðeins vitað um einstök tilfelli sem lax veiddist í ánni.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.