Feykir - 26.09.1990, Síða 3
33/1990 FEYKIR 3
Gangnamenn í erfiðleikum
Gangnamenn á Auðkúluheiði
hrepptu hið versta veður í
síðustu viku þegar reynt var
að fara í aðra leit á heiðina.
Jóhann Guðmundsson gangna-
foringi í Holti sagði að hann
hefði aldrei lent íjafnslæmum
göngum og komu hæði menn
og hestar uppgefnir til hyggða
seint á laugardagskvöld. Allir
eru |)ó heilir og ná sér eftir
góða hvíld.
Um hundrað kindur fundust
á heiðinni. Nokkrar varð að
skilja eftir í Kúlukvíslarskála
og á að reyna að sækja þær á
framd ri fsdráttarvéI. Fu11víst
er talið að enn sé margt fé
eftir á heiðinni, enda var
skyggni afleitt og oft svo
mikil snjókoma eða þoka að
menn sáu aðeins eitt til tvö
hundruð metra frá sér.
Gangnamenn voru fjóra
daga á heiðinni og komust
allt til Hveravalla eins og
fyrirhugað var.
A Grímstunguheiði fóru
gangnamenn á fimmtudag
og fleiri á föstudag. Mikill
snjór er á heiðinni og þar
erfitt yfirferðar. Á laugardag
og sunnudag var þar niða-
þoka og lágu menn að mestu
kyrrir í skála. Á mánudag
birti upp og var snjór þá
verulega farinn að sjatna á
heiðinni. Leit tókst vel þann
dag og komu menn til
byggða á mánudagskvöld
með á annað þúsund fjár.
Elstu menn muna ekki að
gangnamenn hafi þurft að
liggja tvo daga í röð vegna
þoku og menn minnast
heldur ekki að svo margt fé
hafi koniið úr seinni göngum,
enda var veður afleitt síðasta
dag fyrri gangna.
MÓ.
Utgerð Þrastar
flytur á Blönduós
í síðustu viku flutti útgerð
Þrastarins til Blönduóss og
fékk skipið einkennisstafina
HU 48. Skipið hefur lagt upp
á Blönduósi síðan í fvrravetur
og hefur það aflað ágætlega.
Það hefur 1200 tonna þorskkvóta
kvóta auk heimildar til þess að
veiða rækju.
Að sögn Ófeigs Gests-
sonar bæjarstjóra á Blöndu-
ósi hefur flutningur skipsins
mikla þýðingu fyrir bæinn
þar sem frá næstu áramótum
verður lögum samkvæmt
óheimilt að selja skip eða
kvóta burt frá útgerðarstað
án þess að bjóða sveitar-
félaginu forkaupsréttinn. Eig-
andi Þrastar er Rækjuver
sem áður hafði aðsetur í
Bíldudal. Frétt Feykis í
síðustu viku greindi frá því
að flutningur fyrirtækisins á
Blönduós stæði til.
MÓ.
Þessa dagana er að Ijúka gegngerum endurhótum á
Hofsóskirkju, en í ár eru liðin 30 ár frá byggingu hennar. Á
síðasta ári var unniðað endurbótum kirkjunnar að innan, og í ár
hefur verið unnið að ýmsum lagfæringum að utanverðu.
Afmælis kirkjunnar verður minnst í tengslum við héraðsfund
sem haldinn verður á Hofsósi bráðlega.
Knattspyrnukonan góðkunna
frá Sauðárkróki, Vanda Sigur-
geirsdóttir var um helgina
valin leikmaður ársins í
kvennafótboltanum. Vanda
lék mjög vel með Islands-
meisturum Breiðabliks í sumar,
og ekki nóg með það, heldur
þjálfaði hún annan og þriðja
flokk félagsins og gerði báða
þessa stúlknaflokka að íslands-
meisturum.
Segja má að þessi nafnbót
sé afar sanngjörn umbun til
Vöndu sem stundað hefur
íþrótt sína af áhuga og
eljusemi í fjölmörg ár. Hún
byrjað ferilinn í yngstu
flokkum Tindastóls og lék
með strákunum alveg upp í
þriðja flokk. Fórsíðan til K A
og þaðan lá leiðin til
Akraness. Nú 25 ára gömul á
Vanda að baki þrjá Íslands-
meistaratitla og einn bikar-
meistaratitil með Akranesi
auk titilsins með UBK nú í
sumar.
í samtali við Feyki sagðist
Vanda geta brosað breitt
þessa dagana. Hún væri
ákveðin í að halda áfram að
leika knattspyrnu næstu
fimrn árin a.m.k. Einnig
hygðist hún þjálfa áfram, það
væri mjög gaman af því.
Hvammstangabúar
fá nýjan prest
f ‘rf
....iWnÍMli
Hvammstangakirkja.
Hvammstangabúar fengu nýjan
prest á sunnudaginn, þegarsú
breyting sem gert var ráð fyrir
í nýjum lögum um skipan
prestakalla átti sér formlega
stað. Við það fluttist Hvamms-
| tangi úr Melstaðarprestkalli
í Breiðabólsstaðarprestakall.
- .. Athöfnin átti sér stað við
messu á Hvammstanga á
sunnudag. Fyrrurn sóknar-
prestur séra Guðni Þór
Ólafsson á Melstað þjónaði
fyrir altari fyrir prédikun, en
síðan tók við nýi sóknar-
presturinn á Hvammstanga,
séra Kristján Björnsson á
Breiðabólsstað. Fjölmenni
var við messu, rúmlega
eitt hundrað manns. Eitt barn
var skírt og í messulok fór
fram altarisganga, þar sem
báðir prestarnir þjónuðu.
Að guðsþjónustu lokinni
var öllum kirkjugestum
boðið upp á kafFiveitingar í
félagsheimilinu á Hvamms-
tanga. Þar voru séra Guðna
og frú færðar þakkir og
mynd af Hvammstanga frá
safnaðarstjórninni í þakkar-
skyni, en nýju presthjónin
boðin velkoniin. Þrátt fyrir
prestaskiptin hafa Hvamms-
tangabúar samt ekki sagt
skilið við presthjónin á
Melstað, því Guðni er
prófastur þeirra ennþá.
Vanda Sigurgeirsdóttir getur brosað breitt þessa dagana.
Knattspyrnukona ársins
HUNVETNINGAR ATHUGIÐ!
ERUM AÐ BÆTA ÞJONUSTUN OG AUKA VORUURVALIÐ.
TÖKUMINN PESSA DAGANA
LEIKFÖNG, GJAFAVÖRU,
BÚSÁHÖLD OG RAFMAGNSTÆKI.
NÝTT TILBOÐ Á NAUÐSYNJAVÖRUM
í HVERRI VIKU.
LÍTTU VIÐ
VÖRUHÚS HVAMMSTANGA SÍMI12744
VERSLUN í SÓKN