Feykir


Feykir - 26.09.1990, Qupperneq 4

Feykir - 26.09.1990, Qupperneq 4
4 FEYKIR 33/1990 Annasöm helgi hjá fjárbændum: Líffé valið á Ströndum Fjárbændur úr Skagafirði og Húnavatnssýslum voru um og eftir helgina staddir vestur á Ströndum að velja líffé, ásamt ráðunautum sínum Agli Bjama- syni og Guðbjarti Gunnars- syni. Flest verður féð flutt á bílum, nema úr afskekktasta hrcppnum, Ameshreppi. Þaðan verður á fjórða hundrað fjár flutt með strandfcrðaskipi einhvern næstu daga. Það voru fjórir bændur úr Fljótum sem fengu fé á Norðurfirði, Steinstúni og fleiri bæjum í Arneshreppnum. Ef til vill hafa þeir ekki mátt vera seinna á ferðini til að komast landleiðina norður Strandir. Erfið færð var á Veiðileysuhálsi á laugardag, og t.d. fór flutningabíll þar út af veginum í snjó og hálku. Örn Þórarinsson bóndi Ökrum var nýkominn heim af Ströndunum þegar Feykir hafði samband við hann á sunnudag. Kvað Örn slíka fjárleiðangra á Strandir vera hið mesta æfintýr, þótt þeir væru erfiðir og erilsamir. í þeim gæfist vart nema svona þriggja tíma svefn á sólar- hring. Fyrir áhugasama fjárbændur væri ákaflega skemmtilegt að kynnast Strandamönnum sem lifðu og hrærðust í sauðfjárræktinni. Örn tók um 60 kindur í Kirkjubólshreppi og á síðan eftir að fá svipað úr Þistilfirðinum. Hafði heyrt um hreint og milt loft hér segir dr. Milan Rosanik körfuboltaþjálfari Tindastóls þau eru vísast bara til í bíómyndum. „Ég kom hingað til íslunds vegna þess að ég hafði heyrt að hér væri milt og hreint loft. Ekki var svo verra að Sauðárkrókur er svona mikill íþróttabær. Mér líst vel á mig hérna og hlakka til deildarkeppninnar. Mér er sagt að mikil stemnining sé i íþróttahúsinu á heimaleikjum”, sagði Dr. Mílan Rosanik þjálfari Tindastólsliðsins i körfuholtanum þegar Feykir heimsótti hann og tékkneska leiktnanninn Ivnn .lonas á dögunum. Nú er ekki nema rúm vika þangað til Islandsmótið i körfubolta hefst. Þeir fjölmörgu sem leggja leið sína á leiki Tindastóls í „Krókódílasíkinu” þurfa því ekki að bíða rnikið lengur eftir að fjörið byrji. Margir eru sjálfsagt spenntir að sjá hvernig liðið kemur til keppni i þetta sinn, ekki síst vegna þess að nú leikur þjálfarinn ekki með liðinu, en yfirleitt er það talið vænlegra til árangurs. En hvernig líst Milan á lið Tindastóls í keppni vetrarins? „Ég veit svo sem ekki mikið um hin liðin, en gæti þó trúað að riðillinn sem við erum í sé heldur sterkari. Kcflavík og Grindavík eru líklega með sterkustu liðin, en síðan erum við Þórsarar og Valur sjálfsagt svipaðir. Það kemur trúlega til með að há okkur hvað breiddin í hópnum er lítil. Það má í raun engin missast af lykilmönnunum, þá erum við komnir í vandræði, t.d. er Ivan meiddur núna, en hann verður vonandi kominn í lag strax í næstu viku og örugglega fyrir fyrsta leik. Strákarnir áhugasamir Byrjunarliðið er mjög gott; Ivan, Valur, Halli, Einar og Sverrir. Síðan kom ungir og reynsluminni menn; Pétur og Kalli, og þar á eftir ungir og snaggaralegir strákar sem nær ekkert hafa spilað og vantar því Dr. Mílan Rosanik þjálfari og reynsluna. En strákarnir eru áhugasamir og duglegir að æfa, og þannig náurn við vonandi langt í vetur”. íþróttahúsið barst i tal og sagðist Mílan ekki vera ánægður nteð gólfið í þvi, það væri hart og stamt og því hættara við meiðslum. Parketgólf væru betri, ,,en Pálmi er fínn”, bætti leikmaðurinn Ivan Jonas. hann við og átti þar við húsvörðinn. Borgin sem þeir Mílan og Ivan eru frá, heitir Zilina og er þriðja fjölmennasta borgin í Slóvakíu, með 140 þúsund íbúa. Sauðárkrókur er því ný stærð fyrir þá. Milan á konu og tvítugan son, aðspurður sagði hann að það væri í lagi að vera án þeirra einn vetur. en verra ef fleiri bættust við hér á Krók. Sonur lians stundar nám í háskólanum í borginni og leikur nteð körfuboltaliði skólans, alveg eins og ívan Jonas gerði. en hann er nýbrautskráður frá skólanum. í ensku í fjölbrautinni „Fólkið hérna er ákaflega vingjarnlegt við okkur. Og það er gaman að því livað ungu strákarnir hafa mikinnáhuga og eru síspyrjandi okkur”, sagði Ivan. Líf þeirra félaga á Króknum snýst nær eingöngu kringum körfubolta. Til að ná betur valdi á enskunni sem þeir tjá sig með, sækja þeir enskutíma i Fjölbrautaskólanum. hjá mister Magnússyni. Mílan þjálfarsíðan auk meistaraflokks tvo unglingaflokka, öldunga- flokk og kvennaflokk í blaki. Ivan þjálfar einnig svolítið, og t.d. hafa Neistamenn á Hofsósi fengið hann til að þjálfa sig fyrir annarrar deildar keppnina í vetur. Það trúa því kannski ekki allir að Dr. Milan erfyrrum methafi í hástökki í Slóvakíu. Það var fyrir 25 árum sem hann stökk 2.01 metra. í dag er liann á 49. aldurári og á að baki gífurlega reynslu sem körfuboltaþjálfari. T.d. var hann i fyrra landsliðs- þjálfari Tékka. 1 --------—...... Undir Nöfum Það er grámyglulegur morgunn á Króknum, eins og þeir hafa verið svo margir í haust. Krapið hrannast upp út við gangstéttarkantinn og Stóllinn hvítur alveg niðurá Reykjaströnd. Þær eru líka krapaðar rúðurnar á Land- rover jeppanum, sem rennir inn á planið hjá Búnaðar- bankanum. Og hún er líka kuldaleg gamla konan sem kappbúin kemur gangandi eftir Vinabæjarstéttinni sunnan- að. Þegar hún á nokkur skref ófarin upp á stéttina við bankann, stígur bóndinn út úr jeppanum. Þetta er þá gamall kunningi hennar af Skaganum. Komdu blessaður og sæll Jón minn. Hvernig hafiði það þarna úti á Skaganum núna? Hann kólnaði óvenju snemma núna. Já, satt segirðu Bogga mín hann gerði það, og þetta er bölvað vesen að standa í fjárragi eins og tíðin hefur verið. En hvað er að frétta úr Króknum? Það er svo sem ósköp lítið. Lífið gengur sinn vanagang frá degi til dags. Það er helst að fólki hafi orðið tíðrætt um framboðshugleiðingar sóknar- prestins okkar undanfarið. Já, auðvitað hlýtur fólk að tala um það. Og hvað finnst því? Ja, ég hélt nú reyndar að séra Hjálmar hefði nóg að gera, og sama ætti nú líka við skólastjórana okkar báða. Og mér er ómögulegt að skilja hvernig þessir menn ætla að geta sinnt öllu því sem þeir hafa á sinni könnu. Eg hef heyrt talað um ofurmenni, en Já, satt segirðu Bogga mín það er eins og þaðsæki í sama farið hjá þessum æðstu mönnum uppeldismála á Króknum. En mér líst nú bara vel á það að Hjálmar fari í framboð. Gunnar í Glaumbæ skilaði þessu öllu ágætlega á sínum tíma. Og kannski kernur Hjálmar því í verk sem enginn þingmanna kjördæmisins hefur haft sinnu á til þessa, að útvega okkur almennilegan vegfyrir Skagann. Ja, Jón minn ég get nú bara ekki hugsað mér hann séra Hjálmar í því að berjast fyrir einhverjum vegarspotta, hvort sem væri út á Skaga eða fram í Lýtó. Það er líka ansi hætt við að hann hafi þá ekki tíma til að líta við á þorrablótinu hjá okkur í kvenfélaginu. Hann er svo ljómandi skemmtilegur þegar hann reitir af sér brandarana og er með vísurnar á hraðbergi hver annarri betri. Það er leitun að jafnskemmti- legum manni við slík tækifæri. En það þýðir víst ekkert fyrir mig að fárast, Jón. Oll höfum við óbundnar hendur, sagði Bogga. Og þau Jón gengu inn í bankann úr haustkulinu.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.