Feykir


Feykir - 26.09.1990, Page 5

Feykir - 26.09.1990, Page 5
33/1990 FEYKIR 5 Aldursforseti bæjarstjómar Blönduóss: „Megnið af þeim eru krakkar” ,,Jú það er alveg rétt að ég er töluvert eldri en aðrir í bæjarstjórninni. Það má segja að megnið af bæjarfulltrúum séu krakkar, vegna þess að þau ólust upp á sama tíma og mín börn”, sagði Guðmundur Theódórsson mjólkurfræðing- ur á Blönduósi, en hann er aldursforsetinn í bæjarstjórn- inni þar, verður sextugur á næsta ári. ,,Þetta er annað kjörtíma- bilið mitt, en ég er búinn að stússast mikið í félagsmálum, hef ákaflega gaman af því. Annars er ómögulegt að segja hvað maður heldur lengi áfram í þessu. Maður fer að þreytast á þessum aldri”, sagði Guðmundur. Hann og samflokksmaður hans mega nú sætta sig viðað vera í minnihluta í bæjar- stjórninni eftir að hafa veriðí meirhluta í fjölda ár. Svarti reykurinn var fyrirboði í blaðinu „Feyki” frá 5. september sl. er dálkur sem nefndur er „Þá var hann svartur”. Greinarstúfur þessi getur um að fulltrúar á síðasta Fjórðungsþingi Norðlendinga hefðu ekki haft mikinn áhuga á að ræða um umhverfismálin, sem voru annað aðalmálið á þinginu. I dálknum er þess getið að bæjarbúunt á Sauðárkróki hafi fundist það táknrænt að á sama tíma, sem umhverfismálin voru rædd í íþróttahúsinu voru öskuhaugar Sauðárkróksbæjar í essinu sinu og spúðu sótsvörtum reyk yfir Nafirnar. Ályktun höfundar er sú, að ekki hafi sést svo svartur reykur síðan páfa- kjör hafi misheppnast um árið. Þetta er ágæt samlíking. Ætíð er komist að niðurstöðu um páfakjör, svo var og raunin um Fjórðungsþing Norðlendinga varð- andi umhverfismálin. Sérstök þingnefnd fjallaði um þennan málaflokk og innan hennar fóru fram miklar umræður um málið og niður- stöður voru tillögur þingsins. Fjórðungsmála- og allsherjar- nefnd gerði tillögur um megin- verkefni Fjórðungssambands Norð- lendinga á næsta starfsári, að umhverfismálin verði megin- verkefni þess. Tillaga þessi var samþykkt sem ályktun þingsins. Þar er bent á: a) Samráðsfundi í samvinnu við sérfræðinga og umhverfis- ráðuneytið um fyrirkomulag sorphirðingar, sorpeyðingar, söfn- unarstaði, brotmálma og um hollustuhætti og mengunar- varnir. b) Stuðlað verði að samstarfi sveitarfélaga um sorpeyðingu og að staðarvali fyrirsöfnunarstaði fyrir brotmálma. c) Haldnir verði samráðs- fundir eða ráðstefnur umhverfis- og gróðurvemdamefnda á Norður- landi. d) Haldnir verði kynningar- fundir meðal almennings í samvinnu við umhverfisráðu- neytið. „Það var skipt um forustu, Hilmar Kristjánsson hætti, og þess vegna held ég að breytinganna vegna hafi þeim fundist að þeir yrðu að losna við okkur. Það var búinn til ágreiningur um áherslur í hafnarmálum. Við sögðum hreint út fyrir kosningar að það þýddi ekkert að koma með höfnina sem kosningaloforð, þarsem það væri búið að bíða eftir fjárveitingum í hana til fjölda ára. Þetta notuðu þeir síðan gegn okkur, og sögðu að við vildum ekki höfnina, sem er auðvitað fjarstæða”. En hvernig er samkomu- lagið í bæjarstjórninni hérna? Er það eitthvða í líkingu við „habítinn” sem var hjá nágrönnum ykkar á Skaga- strönd í fyrra? „Nei blessaður góði. Okkur gengur vel að koma okkur saman um hlutina, þó stundum komi auðvitað upp Guðniundur Theódórsson. smá málefnaágreiningur”. Hver eru svo helstu verkefni bæjarsjóðs í dag? „Við tökum í notkun á næstu dögum þrjár skóla- stofur í iþróttahúsinu. Þá er verið að byggja fjórar kaupleiguíbúðir og síðan stendur til að malbika nokkrar götur. Okkur er þröngur stakkur sniðinn í framkvæmdum, og spurning hvort okkur tekst að halda okkur innan fjárhagsáætlun- ar. Við viljum gera ýmislegt en verðum víst að taka mið af henni”, sagði Guðmundur að endingu. e) í lok umhverfisárs í júni 1991 verði haldin ráðstefna um umhverfismál í Norðurlandi. I ályktun þingsins frá um- hverfisnefnd er því beint til umhverfisráðherra, að jöfnuð verði kostnaðarleg aðstaða sveitar- félaganna til að vinna að mengunarverkefhum. Einnig var samþykkt tillaga frá umhverfis- nefnd um breytingar á laga- ákvæðum um friðun fugla varðandi eyðingu vargfugls. I síðasta lagi varsamþykkt tillaga um að stórauka framlög tii Iandgræðslu. Hér tala niðurstöður þingsins skýru máli og þarf engann að undra að upp komi svartur reykur á meðan að menn deila um málin. Svo er á fjórðungs- þingum eins og við páfakjörin að menn ganga ekki frá borði fyrr en að fengnum niðurstöðum. Þetta er mikilvægara en skemmti- legar umræður einar sér. Svarti reykurinn á Nöfunum boðar í besta skilningi upphaf þess að bæjaryfirvöld á Sauðárkróki og önnur sveitarfélög í Skagafirði leysi svarta reykinn af hólmi, með nýtískulegri sorpeyðingu Feykismönnum til gleði. Árangur af gagnlegum umræðum og fyrirheitum á síðasta Fjórðungs- þingi Norðlendinga. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna og vekja athygli á góðu máli. PIPOLAKI • KULDAHÚFUR OG BÖND • NÝJAR • BARNAÚLPUR ARENA SUNDFATNAÐUR NÝKOMNAR ARENA HJÓLABUXUR ADIDAS REGNGALLAR • VINDGALLAR • GLANSGALLAR • ADIDAS HANDBALL SPECIAL INNANHÚSSKÓR ADIDAS JOGGINGSKÓR • KÖRFUBOLTASKÓR • ADIDAS INNANHÚSSKÓR • INNISKÓR • NÝKOMIÐ ÚRVAL AF ADIDAS TÖSKUM OG POKUM BOLUM OG STUTTBUXUM • HAGLASKOT • RIFFILSKOT BYSSUR VERSLUNIN TINDASTÓLL SPORTVÖRUPUÐ TINDASTOLS FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM Áskell Einarsson. Hólavegi 16 - Simi 35119 • 550 Sauóárkróki

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.