Feykir - 26.09.1990, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 33/1990
Kallað á hjálp
Sögn Ingibjargar húsfreyju Markús-
dóttur í Ási í Vatnsdul. 1908.
Handrit Odds Björnssonar.
Arið 1848, laugardag einn
|í ágústmánuði, var fólk allt
við heyvinnu suður og niður
á engjum hjá merkisbóndan-
um Jóni Skúlasyni á Hauka-
gili í Vatnsdal. Þá var
ráðsmaður hjá honum Jóhann
Einarsson, bróðursonur hans,
er síðar varð sjálfseignar-
bóndi á Kistu í Vesturhópi,
| og bjó þar til dauðadags. En
ráðskona var þar Ingibjörg
Markúsdóttir, sögukona mín,
I fósturdóttir Jóns, þá um
tvítugt; voru þau Jóhann
uppeldissystkin. Síðar giftist
hún Guðmundi Jónassyni,
hreppstjóra, í Ási; hún er
merk kona, skýr og fróð. —
Um hádegisbilið sækir svefn
svo mikill á Jóhann, að hann
segir við Ingibjörgu, að hann
haldi að hann verði að'leggja
sig fyrir. Sefur hann svo
lengi, að Ingibjörgu tekur að
undra svefn sá; fer hún þá og
vekur hann og spyr, hvað
hann sé að hugsa; en Jóhann
I bregzt önugur við og leggst
laftur til svefns. Furðar alla,
lhve lengi Jóhann svæfi, því
að eigi var hann maður
værugjarn. Jóhann gat eigi
um drauma sína við menn; en
jsíðar um daginn urðu menn
þess varir, að hann gengur
suður og upp á Háls. sem
Ijalllendið vestan Vatnsdals
nefnist, og kemur eigi aftur
fyrr en einhvern tíma um
nóttina, er menn voru
gengnir til náða. Gat hann
eigi um það við nokkurn
mann, hverra erinda hann
hefði farið. — Um kvöldið
þennan sama dag rakst
Ingibjörg á blað uppi á hillu;
voru þrjár vísur skrifaðar á
það. Litlu síðar kvað hún
vísurnar, svo Jóhann heyrði.
Spurði hann þá, hvaða
vitleysu hún væri að kveða.
Kvaðst Ingibjörghafafundið
vísurnar umrætt laugardags-
kvöld, skrifaðar með hendi
Jóhanns, enda hefði Steinvör,
gömul kona, er á heimilinu
var, sagt sér, að hann hefði
skrifað vísurnar, þegar hann
kom heim að borða miðdegis-
matinn þennan laugardag.
Gat Jóhann eigi borið á móti
því. Fékk Ingibjörg þá að
vita, hvernig á vísunum stóð.
Sagði Jóhann, að þegar hann
hefði sofnað um daginn á
engjunum, er svefninn sótti
fastast á hann, þá þóttist
hann vera staddur vestur á
milli Kvísla, en svo nefnist
llatneskjan uppi á hálendinu
milli Kornsár að austan, er
rennur út með Hálsinum að
vestan, og Gljúfurár að
vestan, er rennur út með
Víðidalsfjalli að austan, en
langdrægt stundar gangur er
milli Kvislanna. Þóttist Jóhann
vera hjá svonefndri Hofsels-
vörðuflá, þar sem haft var í
seli frá Hofi, þó svo að
bærinn sé utar í dalnum.
Kemur þá til hans kona ein,
dökkklædd; hún var áhyggju-
full og kvað vísu þessa:
Hestur hefir horfið mér,
hér frá greina má ég beimi;
hundar éta hræ hans hér,
holtadýr og fugl í geirni.
Þá var það, að Ingibjörg
vakti Jóhann. Var hann þá
svo máttdreginn og svefn-
þrunginn, að eigi fékk hann
staðið upp. Kemur þá enn
hin sama kona til hans og
kveður vísur þessar:
Geng ég hér um grýtta grund
grátandi og styn af mæði.
Komdu nú með karska lund
klár að bjarga úr foræði.
Fyrir mig kom fárleg þraut,
forlög munu valda;
bjargaðu úr blautri laut,
bur ótregur skjalda.
Vaknaði Jóhann þá. Hafði
draumur þessi svo mikil áhrif
á hann, að hann mátti eigi
kyrru fyrir halda. Lagði hann
því af stað, svo fljótt sem
hann fékk því við komið. og
hélt á þær stöðvar, er hann
þóttist staddur í svefninum.
^mrny
■ /Wn ?n'v'
Hittir hann þar fyrir brúnan
stóðhest, afbragðs fallegan;
hafði hann sokkið í dý og
fékk engan veg komizt.
Tókst Jóhanni að kippa
hestinum upp úr dýinu. Eigi
þekkti hann markið; setti
hann það á sig og ætlaði að fá
nánari vitneskju um hestinn,
er stóði yrði smalað þá um
haustið. En það kom fyrir
ekki, því að aldrei framar
varð hann hestsins var, né gat
haft neinar spurnir af honum
eða markeigandanum.
Þess má geta, að Jóhann
var alls eigi skáldmætur og
gat aldrei gert vísu, hvorki
fyrr né síðar, svo að menn
viti.
Reiða til höggs
Fréttaritari Feykis, ritargrein
á baksíðu blaðsins 5. september
sl. er hann nefnir „Álmálið í
brennidepli” og finnst fátt um
atvinnumálaumræðu siðasta Fjórð-
ungsþings Norðlendinga. Sagt
er að Fjórðungssamband Norð-
lendinga hafi reitt hátt til höggs
að nefna umræðufund um
atvinnumál: „Snúum vörn í
sókn Norðurland á tímamótum”.
Þá segir greinarhöfundur að
varla hafi verið minnst á þær
atvinnugreinar sem fyrir eru t.d.
Iandbúnaðarmál. Á þessu þingi
var gerð mjög skelegg ályktun
um landbúnaðarmál og voru
þau mál mikið rædd á þinginu.
Þessi málaflokkur hefur skipað
meira rúm á undanförnum
þingum en ýmis önnur að-
kallandi mál. Tvær sérstakar
ráðstefnur hafa verið haldnar á
vegum Fjórðungssambands Norð-
lendinga á síðustu árum. Á
þessu þingi voru framsöguræður
urn sjávarútvegsmál, ferðamál
og um áhrif þjónustu og
skólakerfis á búsetuþróun í
landinu. Það er því á misskilningi
byggt að ekki hafi verið rætt um
þær atvinnugreinarsemfyrireru
í norðlensku athafnalífi. Á
fjórðungsþingi 1989varrætt um
dreifbýlisverslun og um almennan
iðnað.
Það er ekki að skjóta yfir
markið að ræða það mál sem
getur verið örlagavaldur um alla
búsetuþróun í landinu. Þaðskal
ekki dregið í efa að land-
búnaðurinn stendur höllum
fæti. Þess er að geta að um sania
Ieyti og Fjóðungsþing Norð-
lendinga var haldið á Sauðár-
króki, héldu bændur að Reykjum
í Hrútafirði sitt Stéttarsambands-
þing. Það er þvi að bera í
bakkafullan lækinn að bæta
verulega um með ræðuhöldum
á Fjórðungsþingi Norðlendinga.
Þess er getið í umræddri
fréttagrein að engir sveitarstjómar-
menn hefðu tekið þátt í umræðu
unr álmálið. Það skal tekið undir
það, að þingmenn voru nokkuð
aðgangsharðir um ræðupúltið.
Þegar ályktun atvinnumála-
nefndar um álmálið kom til
umræðu, áttu sér stað umræður
um það mál og atkvæðagreiðsla
sýndi vel hug þingheims til
málsins.
Það er fullyrt hér að grein
þessi er ekki skrifuð af óvild.
Hitt er ljóst að höfundur hefur
ekki notið réttra upplýsinga um
verkefni þingsins.
Með fyrirfram þakklæti
Áskell Einarsson
framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands
Norðlendinga.
Leiðrétting
I grein um Fornbókasölu
Ingólfs Agnarssonar í síðasta
blaði misritaðist nafn fyrir-
tækis þeirra Þorvalds Þorvalds-
sonar og Björns Guðmunds-
sonar. Það hét Bifreiðastöð
Sauðárkróks en ekki Bifreiða-
stöð Skagafjarðar eins og
stóð í blaðinu.
Auglýsendur!
Feykir er lesinn á
velflestum heimilum
Norðvestanlands
Áskrifendur athugið!
Þar sem útgáfa Feykis byggist
að miklu leyti á áskriftum,
eruð þið vinsamlegast beðnir
að draga ekki greiðslu gíróseðla
Feykir