Feykir


Feykir - 17.10.1990, Page 4

Feykir - 17.10.1990, Page 4
4 FEYKIR 36/1990 Frá alda öðli hcfur útþráin hlundað í mörgum landanum. Ekki samt endilega til að öðlast fé og frama að hætti fornkappa, heldur miklu fremur til að sjá sig um og kvnnast nýjum lifnaðarliáttum og lífsstíl annarra þjóða. Til að mynda liefur á síðari árum færst í vöxt að íslcnskar unglingsstúlkur fari sem ,,au-pair” til annarra landa. Margar stúlkur hugleiða þessa leið til að lialda á vit ævintýranna út í hinn stóra heim, en flestar gera þær sér alls ekki grein fyrir að það er annað en segja það, að vera einn í ókunnu landi og alveg undir hælinn lagt hjá hvernig fólki viðkomandi lendir. A einstaka stöðum getur vinnuálagið verið svo mikið, að það jaðri við ,,nútímaþrælahald”, sérlega ef tekið er tillit til launanna. Dögg Kristjánsdóttir 19 ára stúlka frá Sauðárkróki var licppin, en hún segir sumar stöllur sínar sem voru samtíða henni í Sviss ekki jafnheppnar. Dögg við brottförina á fluvellinum ásamt sonum húsfreyjunnar, sem hún ætlar að yæta í mánuð næsta sumar. „Ég mátti teljast sérlega heppin” Spjallað við Dögg Kristjánsdóttur sem var au pair í Sviss ..Mig hafði lengi langað til að gerast au-pair. Ætlaði til Bandaríkjanna, en mamma vildi ómögulega að ég færi þangað. Svo frétti ég af stelpu sem auglýsti eftir plássi í Sviss og setti mig í samband við hana. Með aðstoð hennar réð ég mig til Ijölskyldu ekki langt frá Zurich. Það hiitist þannig á að mamma og pabbi voru erlendis þegar ég ákvað þetta, og daginn eftir að þau komu heim var ég lögð af stað suður og flaug út 24. október í fyrrahaust”, sagði Dögg í upphafi spjalls síns við blaðamann Feykis. Eg hafði gert mér í hugarlund að þetta vrði nú ekki svo ósvipað Króknum, stutt úl í búð og svona. En það var eitthvað annað. svo ólíkt sem mest gat verið. Þetta var sveitaþorp með rúmlega 10 húsum. og ekki einu sinni sjoppa á staðnum. Nokkurs konar svefnbær frá borg þarna í nágrenninu. Leiddist hræöilega fyrstu þrjár vikurnar Síðan féllust mér næstum hendur þegar ég kom heim af flugvellinum til svissnesku fjölskyldunnar. Húsið sem hún bjó í virtist mér ekkert sérlega vistlegt. Það var á þremur hæðum og á efstu hæðinni var herbergi tveggja ungra sona húsfreyjunnar, gríðarstórt. En mér var ætlað pláss þar fyrir framan. Einungis dýna var á gólfinu. náttborð og skápur. Síðan var þarna tjald sem ég gat dregið fyrir, þetta var allt og sumt. En ég fór nú fljótlega á stúfana og fann þarna í húsinu gamlan sófa og fornfálega kommóðu sem ég lekk að flytja inn til mín. Þetta hafa verið mikil viðbrigði fyrir þig. Leiddist þér? ,,Já. mér leiddist hræðilega þrjár fyrstu vikurnar. en þorði ekki að segja neinum frá því. Svo lagaðist þetta þegar ég fór að kynnast betur strákunum sem ég passaði og krökkunum þarna í kring. En hvað gerði þetta fólk sem þú varst hjá? „Konan var enskukennari, en maðurinn vann hjá stóru tölvufyrirtæki. Konan var með dellu fyrir hestum, á fjóra íslenska hesta og einn írskan. Eg hafði það hlutverk að gefa þeim og kemba á hverjum degi. auk þess að hugsa um heimilið á meðan hún var að vinna. En ég fór aldrei í útreiðartúr alla þessa níu mánuði sem ég var úti. Þeir voru svo ungir og ótamdir hestarnir”. Var búin að fá nóg eftir fjóra mánuði Síðan þurfturðu líka að passa tvo aðra stráka? „Já, hjónin voru bæði fráskilin. Maðurinn var í samtökum sem annast börn alkóhólista og eiturlylja- sjúklinga. I sínu fyrra hjónabandi hafði hann tekið barn í fóstur auk sinna fjögurra, sem nú eru öll uppkomin. Því hafði lengi verið lagt að þeim hjónunum að taka börn í fóstur. Þegar ég var búin að vera þarna í mánuð birtust svo tveir strákar til viðbótar, sem ég átti að passa án þess að á það hefði verið minnst við mig. A sama tíma þurfti svo konan að bæta við sig tímum í kennslunni. svo að þetta var orðin stíf vinna hjá mér með strákana. Að auki gerði tungumálið mér erfitt fyrir. Eftir Ijóra mánuði var ég alveg búin að fá nóg og sagði að annaðhvort færi ég eða strákarnir. Synir hjónanna voru líka á mínu bandi. þannig að niðurstaðan var sú að strákarnir fóru. Var vinnuskvldan mikil hjá þér? „Nei, ég held ég megi teljast alveg sérlega heppin miðað við það sem gerist. og ég vissi til með aðrar stelpur þarna. Eg átti t.d. að fara í hesthúsið á sunnudagsmorgn- um, en konan gerði það stundum fyrir mig og lofaði mér að sofa fram eftir. Þau voru aldrei neitt að reka á eftlr mér og voru ákaflega almennileg í alla staði. þannig að ég get ekki sagt annað en mér hafi liðið mjög vel þarna úti. Þau sáu t.d. til þess að ég kæmist í skóla til að læra þýsku einu sinni í viku. mér að kostnaðarlausu. Jólin og áramótin erfiður timi Ég varð hins vegar vör við ákaflega mikið vinnuálag á sumum stelpum. Hjónin áttu SKAGFIRÐINGABRAUT6. SÍMI : 36069 OPIÐ MÁNUD,- FÖSTUD. 'éÁ 9.00-12.00 OG 13.00-18.00 LAUGARDAG 10.00 - 14.00 'VERIÐ VELKOMIN L'ORÉAL

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.