Feykir - 17.10.1990, Síða 6
6 FEYKIR 36/1990
hagyröingaþáttur 83
Heilir og sa'lir lesendur
góðir. Það hel'ur haustað
snemma árið sem Indriði
Aðalsteinsson á Skjaldfönn
\ ið ísafjarðardjúp orti s\cr.
Veturinn úr böndum brvst.
blcmi og grösin deyja.
Þetta sumar endist \íst
ekki til að heyja.
.lón Guðmundsson HcSlrna-
koti vrkir svo.
Svört nú hanga svipill sky.
sól á vanga grætur.
Dapurt angur drýpur því
dimmar langar nætur.
Onnur vísa kemur héreftir
Jón og er það hringhenda
eins og sú fyrri.
Jóna lljót í ferðum má
frá sér róta glaumnum.
Hyggin snót með hvra brá
heldur móti straumnum.
Getur einhver af íésendum
þáttarins gefið mér upp-
lýsingar um höfund eftir-
farandi vísu?
Grær á melum rósin rótt,
rauna dvelur stundin.
Eftir hélu eina nótt
er hún heli bundin.
Arndís Sigurðardóttir frá
Straumsfirði er höfundur
næstu vísu.
Elli í llestu á mér sést.
engan frest hún býður.
þrekið brestur. það er \erst.
þegar mest á ríður.
Þá hefur það einhvern
\eginn komist inn á hausinn
á mérað þessi kunna vísa um
Bjarna Bjarnason lækni sé
einnig eftir Arndísi.
Þeir eru fáir svo fræknir
fremstan hann Bjarna ég tel.
Söngvari. leikari. læknir
og lánast það alltsaman vel.
Lengi hafa verið skiptar
skoðanir um skáldskap engu
síður en margt annað. Sá
hefur ekki fengið sérstök
meðmæli, seni ort er um í
næstu vísu. Höfundur er
Arnór Steinsson. áður bóndi
á Narfastöðum i Melasveit.
Helgi myndar hróðrarlag,
hlífist ei við striti.
I nginn hel'ur áður brag
ort af minna viti.
Eitt sinn. ér Arnór hafði
selt góðan reiðhest. orti hann
þessa vísu.
Enga skemmtiferð ég fer
fyrst að þú ert seldur.
Eignaleysið einatt mér
ömurleika veldur.
Ein vísa kemur hér enn
eftir Arnór. og er hún ort um
aldraðan gcíðhest.
Mevjarhugur mörgum brást
\ ið meiri og betri kynni.
en gæðingurinn á sér ást
evkur hverju sinni.
Langt er síðan birst hal'a
vísur hér í þættinum eftir
Agúst Sigfússon. Hér kemur
ein eftir hann, og er hún eins
og flestár hans vísur. hring-
hent.
Þó að sindur biturs böls
bera uni tinda streymi.
ég frá lindum ástar öls
unaðs mvndir geymi.
Mig minnir að ég hafi áður
birt í þessum þáttum vísur
eftir Einar Þórðarson. áður
bónda á Innri-Skeljabrekku í
Andakílshreppi. Hér koma
nokkrar eftir Einar.
Astin mín um æ\ isvið
illa festi rætur.
því ég komst í kvnni við
kvikar Evudætur.
Stundum hevrir maður þvi
fleygt að erfitt sé að rata hinn
rétta veg. Eitthvað hefur
Linar orðið var við það eftir
næstu vísu að dæma.
Lífs ei rötum leiðirnar.
láns er glötum bjargar.
Verða á flötum veraldar
villigötur margar.
Þó talsvert sé enn eftir af
þessum mánuði. höfum við
landsins börn fengið að
kynnast snjó og kulda. Svo
hefur trúlega einnig verið.
þegar Einar orti eftirfarandi
vísu.
Mína skrýða móður fer
mjallar fríða trafið.
enda líður október
út í tíðarhafið.
Oft er gaman af glettum
þeim er skáld senda hvert
öðrti. Sagt er að Heiðrekur
Guðmundsson liafi ort eftir-
farandi vísu.
Það er létt að líða skort.
lífs þá harðnar glíman.
hjá þ\ í sem að hafa ort
hól um Guðnumd Frímann.
Þá hef ég einhvern tímann
hevrt að Steinn Steinarr liafi
varpað að Tómasi Guðmunds-
syni þessari kveðju.
Hér situr Tóniast skáld með
bros á brá.
bjartur og hreinn sem fyrsta
morgunsárið.
O! hve mig tekur vinur sárt
að sjá
að sál þín skuli grána fyrren
hárið.
Það er Aðalsteinn Ólafs-
son frá Melgerði. sem vrkir
svo um Ijóðagerð sumra
ungu skáldanna. og er það
jafnframt síðasta vísan í
þessum þætti.
Valda sóðar vondri pest.
\ íkja góðir siðir.
Gullum þjóðar granda mest
gerviljóða snriðir.
Veriði sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
s:95-27I54
Tékkneski leikmaðurinn Ivan Jonas komst í mikinn ham eftir að
hafa yfirunnið taugaspennnu upphafsmínútna leiksins. Hann
skoraði 33 stig og fékk til þess dyggan stuðning hátt í 700
áhorfenda sem troðfylltu Síkið.
„Stólarnir” stóðust prófið
Sigruðu örugglega í fyrsta heimaleiknum
Það rikti mikil spenna á
Króknum fyrir fyrsta lieima-
leiknunt í Úrvalsdcidlinni,
sem fram fór sl. sunnudags-
kvtíld þegar Grindvíkingar
komu í heimsókn. Ahorfendur
Ijölmenntu í „Síkið" og skemmtu
sér konunglega, því leikurinn
var skemmtilegur og heima-
liðið stóðst prófið fyllilega.
Þrátt fyrir slakan leik Stóla í
hyrjun seinni hálfleiks var
sigurinn nánast aldrei í hættu.
Jafnræði var með liðunum
framanaf og fyrri hálfleikur-
inn jafn, en heimamenn þó
ávallt með frumkvæðið.
Staðan í leikhléi var 49:44. en
í byrjun seinni hálfleiks kom
afar slæmur kafli. Var
gjörsamlega eins og hlemmur
væri yfir körfu gestanna um
tíma og komtist þeir þá yfir
58:55. En þetta óheillaskeið
stóð ekki Iengi og fyrr en
varði voru Stólarnir komnir
yfir að nýju.
Þrátt fyrir ágætan Ieik
heimamanna stóðu gestirnir
það mikið í þeim allan
tímann, að forustan varð
aldrei mjög mikil, mest 13
stig. Hafði þar mikiðaðsegja
að Ivan og Pétur lentu í
villuvandræðum oggátu lítið
beittsérí vörninni lengstum í
seinni hálfleiknunt. Undir
lokin skildu 11 stig liðin af.
96:85.
Ivan. Valur og Pétur voru
sterkastir í liði Tindastóls, en
einnig stóðu þeir Sverrir,
Karl og Einar sig ntjög vel.
Ivan skoraði grimmt eftir að
hann komst af stað. 33 stig.
Valur 26. Pétur 21, Sverrir 12
og Einar og Karl 2 hvor.
Bandaríski ..gonnunnn" An-
tony Lee skoraði mest fyrir
gestina 25 stig og Steinþór
Helgason. sem skoraði úr
hverju 3ja stiga skotinu á
fætur öðru, 22 stig.
Næstu leikir Tindastóls í
úrvalsdeildinni eru nk. fimmtu-
dagskvöld í Keflavík og
síðan konta Þórsarar í
heimsókn nk. sunnudags-
kvöld.
Okkar innilegustu þakkir sendum við fyrir þann
fjárhagslega stuðning og hlýhug
sem þið veittuð okkur vegna utanlandsferðar
dóttur okkar Söru Katrínar
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Guðbrandsdóttir
Stefán Gíslason